Fréttablaðið - 12.11.2016, Síða 18
Ég var að lesa nýjustu ljóðabók Sigurðar Pálssonar sem heitir Ljóð muna rödd og er enn í
dálitlum rús, með tárin í augunum.
Ég man eftir honum Sigga Páls sem
unglingi sem var svo flínkur að
yrkja ljóð að við hinir þorðum ekki
að sýna okkar, vissum að þau væru
út í hött. Hann var líka svo yndis
lega öðruvísi en við hin í því hvern
ig hann bar sig að því að vera til.
Einu sinni á þessum árum þegar
ég var staddur heima hjá honum
vestur í bæ sagði hann mér að hann
hefði drepið kvígu með því einu að
horfa í augun á henni, án þess að
segja orð. Ekki man ég hvort hann
sagði þessa sögu sem dæmi um
kraftinn í ósögðum orðum en hitt
er víst að í bókinni nýju breytir
hann draumum í orð af slíkum
mætti að á hann bítur ekki ljár.
Allar götur síðan hann sagði mér
þessa sögu hef ég forðast að horfa
í augun á kúm af því mér þykir svo
vænt um þær. Það má sjálfsagt leiða
að því rök að þessi varúð sé óþörf af
því að augu mín séu bitlaus miðað
við hans, skorti allt sem þurfi til
þess að meiða nautgripi. Þessi augu,
sem eru nú orðin að einu sjáandi,
hafa oft brugðist mér á annan máta
en þann þegar mér hefur mistekist
að deyða spendýr með tillitinu einu
saman. Ég man til dæmis þegar ég
var í sveit austur í Flóa þegar ég var
níu ára að aldri og sleit upp gras af
túninu síðla sumars og sagði við
Brynjólf bónda: „Þetta gras er ekki
grænt heldur blágrænt.“ „Bull,“
svaraði Brynjólfur, „það er grænt en
þegar það lítur svona út er það ljúf
fengt, safaríkt og fullt af næringu.“
Ég man að ég gaf lítið út á svar
bónda af því ég var viss um að
hann hefði aldrei lagt sér gras til
munns og gæti því ekki vitað hvort
það væri ljúffengt eða ekki; ef hann
hefði rangt fyrir sér um bragð væri
fullt eins líklegt að sama ætti við
um lit. Besti vinur minn á bænum
lagði það hins vegar í vana sinn að
bíta gras. Það var hún Lukka, besta
mjólkurkýrin í öllum hreppnum.
Við urðum vinir daginn sem færður
var frá henni kálfur og hún hágrét,
tárin streymdu niður kinnar
hennar og hún saug upp í nefið af
ekka. Þegar ég sá þetta fór ég líka
að gráta ekki bara vegna þess að
ég fann til með henni heldur líka
vegna þess að ég var einmana og
með heimþrá. Upp frá því vorum
við Lukka óaðskiljanleg. Hún hlaut
að vita hvort gras sem leit svona út
væri ljúffengt. Ég reitti fullt fangið
af grasinu og færði Lukku þar sem
hún stóð á bás við kvöldmjaltirnar.
Hún át það með sömu ró og allt
annað grænmeti sem henni var
fært. Þegar hún var búin með það
spurði ég hana hvort henni hefði
ekki fundist heyið vont. Að vanda
var hún fámál þetta kvöldið, horfði
bara á mig sínum stóru, fallegu
og rómantísku augum og sleikti
mig síðan í framan. Þótt tungan á
henni Lukku væri býsna hrjúf var
hún samt það mýksta sem ég fann
fyrir það sumarið. Þögn er sama og
samþykki, heyið var ekki ljúffengt
og grasið því blágrænt.
Það var bókin hans Sigga sem
rótaði þessari sögu upp í hausnum
á mér og það var blágræni liturinn
sem minnti mig á að búið væri að
kjósa til Alþingis en eftir að setja
saman ríkisstjórn. Landslagið í
íslenskri pólitík er allt annað en
það var þegar flokkarnir voru fáir
en stórir og sterkir og lítill vandi að
sjóða saman tveggja flokka stjórn.
Nú eru þeir margir og litlir og má
leiða að því rök að þeir gegni allt
annars konar hlutverki í samfélag
inu. Kannski er fjöldi og fjölbreytni
flokkanna fyrsta skrefið í áttina að
beinu lýðræði. Eitt er víst að ef við
viljum hlúa að lýðræði í landinu
kallar þetta ástand á annars konar
ríkisstjórn en þær sem við höfum
búið við fram til þessa. Það kallar
á að við reynum að mynda ríkis
stjórn sem hýsir alls konar skoðanir
á ýmsum málum og endurspeglar
á þann hátt þjóðarsálina. Eftir því
sem skoðanir í ríkisstjórn endur
spegla stærri hluta af skoðanarófi
samfélagsins þeim mun meiri líkur
eru á friði og sátt sem við þurfum á
að halda til þess að geta hlúð hvort
að öðru. Þess vegna viljum við
hvorki hægri né vinstri ríkisstjórn
heldur þá sem er jafnhent. Sú ríkis
stjórn verður að hafa innbyrðis tvo
stærstu stjórnmálaflokka landsins
sem eru á sitthvorum endanum á
þeirri línu sem við röðum pólitískri
fílósófíu á.
Ég er handviss um að það þarf
ekki annað en kraftinn sem felst í
væntumþykju fyrir íslensku sam
félagi til þess að beygja þessa línu
í hring þannig að endarnir komi
saman. Það væri með öllu óásætt
anlegt ef þessir flokkar létu fílósóf
ískan ágreining koma í veg fyrir
stjórnarsamstarf vegna þess að á
tímum smáflokkanna getur hver
einstakur flokkur ekki haft áhrif
á stjórn landsins án þess að vinna
með þeim sem eru á öndverðum
meiði um margt. Það er hætt við því
að sá stjórnmálaflokkur sem þróar
ekki með sér viljann og getuna til
þessa velkist í erindisleysi uns hans
bíða þau örlög Samfylkingarinnar
að það er ekki lengur hægt að spila
bridge á þingflokksfundum.
Um skyldur stjórnmálaflokka
Með löngum inngangi um ljóðskáld, nautgripi og blæbrigði lita á fæðu þeirra.
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar
Eftir því sem skoðanir í ríkis-
stjórn endurspegla stærri
hluta af skoðanarófi sam-
félagsins þeim mun meiri
líkur eru á friði og sátt sem
við þurfum á að halda til
þess að geta hlúð hvort að
öðru.
Íslandsbanki auglýsir til sölu stórt byggingarland í Mosfellsbæ.
Óskað er eir tilboðum fyrir kl. 14 miðvikudaginn 30. nóvember 2016.
Um er að ræða 15 hektara byggingarland úr landi Blikastaða í Mosfellsbæ,
landanúmer 176813. Landið liggur við bæjarmörk Reykjavíkur og Mosfells-
bæjar, sunnan megin við Korpúlfsstaðaveg og neðan við Vesturlandsveg niður
að ánni Korpu. Sýnileiki landsins frá Vesturlandsvegi er mikill og auglýsinga-
gildi því mikið. Samkvæmt aðalskipulagi Mosfellsbæjar er gert ráð fyrir að
verslunar- og þjónustusvæði / athafnasvæði byggist upp á landinu.
Ekki hefur verið gert deiliskipulag fyrir landið og eru gatnagerðargjöld því
ógreidd. Deiliskipulagstillögur frá árunum 2008 og 2013, sem unnar voru af
eigendum landsins, gerðu ráð fyrir að byggingarmagn á landinu gæti numið
117-130 þúsund m2.
Áhugasamir tilboðsgjafar geta nálgast sölugögn í
gegnum netfangið blikastadir@islandsbanki.is og
þangað skal enn fremur skila tilboðum á rafrænu formi
innan tilgreinds frests.
Blikastaðir
– byggingarland til sölu
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð