Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 22

Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 22
H in árlega keppni F I R S T L E G O L e a g u e ve r ð u r haldin í dag í Háskólabíói. Í ár eru 22 lið skráð til leiks og er þemað Samstarf manna og dýra. „Keppnin snýst fyrst og fremst um það að vinna saman að því að finna lausnir og gefst keppendum tækifæri til að koma með lausnir á helstu áskorunum nútímans á alþjóðavettvangi, m.a. náttúruvá og loftslagsmálum,“ segir Ingunn Eyþórsdóttir, markaðs- og kynn- ingarstjóri Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, um tilgang keppn- innar. „Við leggjum áherslu á að keppn- in sé fyrir alla enda reyna verkefnin á mjög fjölbreytta styrkleika og liðs- heild,“ segir Ingunn. Margt verður í boði fyrir gesti á keppninni. „Það verða sporhundar frá Björgunarsveitarhundum Íslands, býflugur frá Friðheimum verða til sýnis, og hvalasérfræðingur mun fræða gesti um hegðun hvala. Þá verður Krumma með vinnustofur þar sem hægt verður að spreyta sig á Lego-verkefnum undir leiðsögn sérfræðinga. Vísindasmiðjan verður opin og rafknúinn kappakstursbíll Team Spark verður á staðnum. Loks munu strákarnir í BMX bros leika listir sínar á hjólum. Kynnir keppn- innar er Sprengju-Kata,“ segir hún og vill hvetja sem flesta til að mæta. En hvers vegna Lego-kubbar? „Lego býður upp á ótal útfærslu- möguleika, er uppspretta mikillar sköpunar, höfðar til fólks með ólíka styrkleika og breiðs aldurs. Svo er það bara svo skemmtilegt,“ segir Ingunn. Ingunn segir hvert lið hafa einn eða fleiri leiðbeinendur úr sínum skóla. „Það eru miklir eldhugar sem veljast til slíkra verka því undirbún- ingsferlið er bæði langt og strangt. Liðin fá senda þrautabraut í upphafi skólaárs og undirbúa sig í samvinnu við leiðbeinanda úr sínum skóla. Þessu fylgir mikil samvera og sam- vinna og því eignast margir góðar minningar,“ segir hún en gott dæmi um það hvað keppnin hefur gengið vel er að tveir fyrrverandi kepp- endur eru nú dómarar og tóku þátt í að hanna rafknúinn kappakstursbíl Háskóla Íslands (Team Spark). „Þá gefst vinningsliðum kostur á að taka þátt í keppni erlendis og hafa mörg lið farið utan,“ segir hún frá. Ingunn segir margt eftirminnilegt frá fyrri keppnum. „Brúarásskóli vann keppnina árið 2014 og var það í fyrsta skipti sem vinningslið var eingöngu skipað stúlkum. Ári síðar vann skóli sem var að taka þátt í fyrsta skipti en það er algengt að skólar taki þátt ár eftir ár. Lands- byggðin hefur verið afar dugleg að senda lið og í ár eru 12 af 21 liði utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir hún. Ingunn segir það koma fyrir að hún kubbi sjálf. „Að kubba er eins og góð hugleiðsla. Það bætir og kætir. Hef heyrt að fólk hafi kubbað sig út úr þunglyndi. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Ég er að mestu hætt að leika mér en það kemur fyrir að ég kubbi. Ég asnaðist til að gefa dóttur minni Lego-hótel á þremur hæðum í sex ára afmælisgjöf. Verk- efnið endaði mestmegnis á mér og það tók mig tvo mánuði að klára það og mér þótti það mikið afrek. Stuttu seinna datt það í gólfið og brotnaði en minningin er ljúf,“ segir Ingunn. Að kubba er góð hugleiðsla Krakkar keppa í að kubba úr Lego í Háskólabíói í dag. Þemað er samstarf manna og dýra. Á keppninni verður margt áhugavert tengt þemanu í boði fyrir gesti sem geta skoðað býflugur, sporhunda og fræðst um hvali. Team Spark við Lego-keppnisborð. Tveir meðlima kepptu áður í keppninni en eru nú í hlutverki dómara. FréTTabLaðið/ViLheLm Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Lego býður upp á ótaL útfærsLumöguLeika, er uppspretta mikiLLar sköpunar. Ingunn Eyþórsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Menntavísinda- sviðs Háskóla Íslands 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r22 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð helgin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.