Fréttablaðið - 12.11.2016, Qupperneq 56
| AtvinnA | 12. nóvember 2016 LAUGARDAGUR14
Rými Ofnasmiðjan leitar að öflugum starfsmanni í
uppsetningar á Rennuhurðum, hillubúnaði og fólkslyftum.
Um er að ræða 100% starf.
Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi er kostur.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í frábæran hóp fólks hjá
Rými Ofnasmiðjunni sendu þá umsókn á ragnar@rymi.is
Umsóknarfrestur er til 21. nóvember
ára
Tæknideild
Ljósleiðaradeild GR leitar að starfsmanni sem hefur það hlutverk að stýra
framkvæmdaverkefnum við uppbyggingu Ljósleiðarans þannig að viðskiptavinir
okkar lendi í öruggu hágæðasambandi. Við leitum að jákvæðum, skipulögðum og
samskiptaliprum félaga í samhentan hóp.
ÞÚ HEFUR ALLA ÞRÆÐI Í HENDI ÞÉR:
Starfið felur í sér að skipuleggja og halda utan um gæði og öryggi við lagningu
Ljósleiðarans með því að:
•Bera ábyrgð á undirbúningi framkvæmda
•Bera ábyrgð á framvindu verklegra framkvæmda
•Sinna samskiptum við verktaka og upplýsingagjöf til stjórnenda
Í starfinu færðu góða innsýn í heim ljósleiðaratækninnar og færð að taka þátt í að
koma heimilum og fyrirtækjum í samband við framtíðina.
Til að sækja um þarftu að hafa menntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði verk- eða
tæknifræði, reynslu af verkefnastjórnun og ekki sakar ef þú hefur áhuga á
framkvæmdum! Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Við tökum á móti umsóknum á ráðningarsíðu okkar: starf.or.is/gagnaveitan/ þar sem
nánari upplýsingar er að finna. Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2016.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ernstsdóttur mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@
gagnaveita.is.
Kíktu á www.ljosleidarinn.is eða Ljósleiðarinn á Facebook!
Gagnaveita Reykjavíkur er fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 60 starfsmenn auk
ótal verktaka vinna saman að því að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum aðgengi
að hágæða þjónustu á opnu aðgangsneti Ljósleiðarans. Hjá GR er fagmennska og
góður starfsandi í fyrirrúmi, við leitumst við að vera í fremstu röð hvað varðar jafnrétti,
öryggi, vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð.
KOMDU FÓLKI Í SAMBAND
VIÐ FRAMTÍÐINA
—— VERKEFNASTJÓRI
Starfsmaður sérfræðiteymis um
aðgerðir til að draga úr nauðung í
þjónustu við fatlað fólk.
Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf
starfsmanns sérfræðiteymis, sem starfar skv. 14. gr.
laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk
og reglugerð nr. 970/2012. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni sérfræðiteymis eru að veita þjónustu
aðilum ráðgjöf um aðferðir til að komast hjá beitingu
nauðungar, veita umsögn um beiðnir um undanþágur
frá banni við beitingu nauðungar og taka við tilkynn
ingum um beitingu nauðungar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Þroskaþjálfun eða sambærileg háskólamenntun.
• Þekking og áhugi á mannréttindum fatlaðs fólks.
• Þekking á mismunandi tjáskiptaleiðum
fatlaðs fólks.
• Reynsla af starfi með fullorðnu, fötluðu fólki.
• Reynsla af ráðgjafarvinnu með fötluðu fólki.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfileikar og geta til að starfa sjálfstætt.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi fjármála og
efna hagsráðherra og Félags háskólamenntaðra starfs
manna Stjórnarráðsins. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf 1. janúar 2017 eða fyrr. Ráðuneytið
hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldór Gunnars son, sérfræðingur í ráðuneytinu,
halldor.gunnarsson@vel.is.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil skulu berast velferðarráðuneytinu,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 101 Reykjavík
eða á netfangið: postur@vel.is eigi síðar en
28. nóvember 2016.
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að
sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknar
frestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýs
ingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Velferðarráðuneytinu 11. nóvember 2016