Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 57

Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 57
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 12. nóvember 2016 15 Skráasvið - Reykjavík Fyrirhugað er að bæta við jákvæðum og kraftmiklum lögfræðingi á skráasvið ríkisskatt­ stjóra í Reykjavík. Helstu verkefni tengjast félagaréttarlegum úrlausnarefnum vegna skráningar fyrirtækja, samruna/skiptinga, slita, afskráninga o.fl. Einnig er um að ræða verkefni tengd ársreikningaskrá. Hæfnikröfur • Cand. jur. eða próf á meistarastigi á sviði lögfræði • Þekking á félagarétti og lögum um ársreikninga • Frumkvæði • Mjög gott vald á rituðu máli • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð • Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Góð almenn tölvukunnátta Virðisaukaskattssvið - Reykjavík Öflugur, töluglöggur og jákvæður einstaklingur hefur nú tækifæri til að ganga til liðs við góðan hóp starfsmanna virðisaukaskattssviðs ríkisskattstjóra í Reykjavík. Starfið felst einkum í vinnu við framkvæmd virðisaukaskatts, s.s. móttöku tilkynninga, skráningu, mat á tilkynningum um atvinnurekstur, úrvinnslu umsókna, frumálagningu, endur­ álagningu, bréfaskriftir auk annarra tilfallandi verkefna. Hæfnikröfur • Háskólamenntun á sviði lögfræði, viðskiptafræði eða hagfræði • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli • Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Góð almenn tölvukunnátta Þjónustuver - Akureyri Öflugir og jákvæðir einstaklingar hafa nú tækifæri til að ganga til liðs við þjónustuver ríkisskattstjóra sem er á starfsstöðinni á Akureyri. Helstu verkefni eru upplýsingagjöf um skattamál, símaþjónusta og afgreiðsla ýmissa gagna sem viðskiptavinir óska eftir. Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Öguð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfileika til að vinna undir álagi • Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli • Enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta kostur • Góð almenn tölvukunnátta Einstaklingssvið - Egilsstaðir Nú er tækifæri fyrir metnaðarfullan og kraftmikinn einstakling að slást í hóp starfs­ manna ríkisskattstjóra á starfsstöðinni á Egilsstöðum. Um fjölbreytt verkefni er að ræða er tengjast m.a. álagningu skatta, yfirferð gagna, upplýsingagjöf um skattamál ásamt öðru er tengist skattskilum einstaklinga. Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Öguð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfileika til að vinna undir álagi • Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli • Enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta kostur • Góð almenn tölvukunnátta Krefjandi störf á góðum vinnustað Ríkisskattstjóri er í fararbroddi í innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu. Helstu verkefni embættisins eru álagning opinberra gjalda, skatteftirlit og að halda lögbundnar skrár en að auki er embættinu falið að sinna ýmsum sérverkefnum til lengri eða skemmri tíma. Vinnustaðurinn er fjölmennur og dreifist starfsemin á níu starfsstöðvar um landið. Meginstefna ríkisskattstjóra í mannauðsmálum byggir á gagnkvæmu trausti, tillitssemi og virðingu á milli stofnunar og starfsmanna og starfsmanna sín í milli. Sótt er um störfin á rsk.is/starf eða á Starfatorgi. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember 2016 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar. Upplýsingar um störfin veitir Inga Hanna Guðmundsdóttir í síma 442 1151. Gildi ríkisskattstjóra eru fagmennska, jákvæðni og samvinna. Frekari upplýsingar um embættið má finna á vefsíðunni rsk.is. Nánari upplýsingar á rsk.is Þjónustuver 9:30­15:30 442 1000 rsk@rsk.is 365 er framsækið fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtæki sem veitir lifandi og upplýsandi þjónustu við landsmenn, 365 daga ársins. 365 starfar á öllum sviðum fjölmiðlunar; sjónvarps- og útvarpsrekstri, blaðaútgáfu og vefmiðlun, auk þess að bjóða fjarskiptaþjónustu, bæði net og farsíma. Félagið á auk þessa Midi.is sem annast miðasölu á mannfagnaði og viðburði, svo sem á leiksýningar, tónleika, kvikmyndasýningar, íþróttaleiki og fleira. Hjá 365 starfa um 410 manns. 365 óskar eftir góðu fólki YFIRHÖNNUÐUR FRÉTTABLAÐSINS Grafískur hönnuður óskast til að leiða hönnunardeild Fréttablaðsins. Yfirhönnuður vinnur náið með ritstjórn Fréttablaðsins og mótar útlit þess. Viðkomandi þarf að getað hafið störf sem fyrst. Unnið er í dagvinnu. Hæfniskröfur: - Gott vald á InDesign, Illustrator og Photoshop. - Skipulagshæfileikar. - Geta til að vinna undir álagi. - Reynsla af dagblaða- eða tímaritahönnun er kostur. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember nk. Eingöngu er tekið við umsóknum á vef 365 miðla – www.365.is. Frekari upplýsingar veitir Sæmundur Freyr Árnason, framleiðslustjóri Fréttablaðsins, sfa@frettabladid.is.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.