Fréttablaðið - 12.11.2016, Blaðsíða 59
FRAMLEIÐSLUVERKFRÆÐINGUR
Við leitum að öflugum starfmanni í hóp framleiðsluverkfræðinga fyrir fætur og íhluti.
Við óskum eftir einstaklingi með áhuga á framleiðslu stoðtækja auk menntunar og reynslu sem nýtist
í starfi. Viðkomandi þarf að geta unnið sjáfstætt, undir álagi og sýnt frumkvæði.
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2016. Sótt er um starfið á vef Össurar,
ossur.is/mannaudur. Athugið að velja viðeigandi starf.
Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild í síma 515 1300.
STARFSSVIÐ
• Vinna við stöðugar umbætur á ferlum
í framleiðslu
• Þátttaka í þróun og innleiðingu nýrra vara
• Vinna að gæðamálum í framleiðslu
HÆFNISKRÖFUR
• B.Sc eða M.Sc í verk- eða tæknifræði
• Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla
• Þekking á straumlínustjórnun (e.Lean) kostur
• Reynsla af framleiðslu er kostur
• Mjög góð enskukunnátta
Össur er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja.
Hjá félaginu starfa um 2800 manns í 19 löndum.
Gildi félagsins eru: Heiðarleiki – Hagsýni – Hugrekki. WWW.OSSUR.COM
SÉRFRÆÐINGUR
Í VETTVANGS-
ATHUGUNUM
SÉRFRÆÐINGUR Í
ÞJÓÐHAGSVARÚÐ
Fjármálaeftirlitið
óskar eftir öflugum
sérfræðingi með
góða greiningar- og
samskiptahæfni.
Fjármálaeftirlitið
óskar eftir sérfræðingi í
teymi þjóðhagsvarúðar
á greiningasviði.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND
Hlutverk teymis sem annast vettvangsathuganir er að afla upplýsinga og gagna
með sjálfstæðri skoðun á vettvangi, þar sem athuganir geta m.a. beinst að tilteknum
afmörkuðum þáttum í starfsemi eftirlitsskyldra aðila eða heildarathugunum hjá
einstökum aðilum. Leitað er að sérfræðingi með ríka greiningarhæfni og góða
samskiptahæfni.
Starfssvið
• Undirbúningur og framkvæmd vettvangsathugana
• Greining gagna og skýrslugerð
• Verkefnastjórnun
• Þátttaka í innlendu samstarfi
• Þátttaka í innra starfi Fjármálaeftirlitsins
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• Viðeigandi háskólapróf, t.d. viðskiptafræði, hagfræði eða verkfræði
• Viðeigandi reynsla af störfum á fjármálamarkaði skilyrði
• Rík greiningarhæfni og færni til að tjá sig í ræðu og riti er nauðsynleg
• Reynsla af eftirlitsstörfum kostur
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði, metnaður og góð samskiptahæfni
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Hlutverk þjóðhagsvarúðar er að greina kerfisáhættu og þróun á fjármálamarkaði og
miðla þeim upplýsingum út á við og til annarra starfseininga Fjármálaeftirlitsins. Einnig
framkvæmir teymið álagspróf á valda eftirlitsskylda aðila og gerir tillögur um breytingar
á lögum og mótar reglur og leiðbeiningar er varða stýringu áhættu á fjármálamarkaði.
Starfssvið
• Mat á fjármálastöðugleika og kerfisáhættu
• Gerð og framkvæmd álagsprófa
• Þróun aðferða við mat á kerfisáhættu og mótun þjóðhagsvarúðartækja
• Samskipti við eftirlitsskylda aðila og aðra hagsmunaaðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
Hæfniskröfur
• Háskólagráða í hagfræði, tölfræði, verkfræði eða sambærilegu.
Framhaldsmenntun kostur
• Mikil þekking og reynsla af fjármálamarkaði
• Rík greiningarhæfni og gott vald á tölfræði og líkanagerð
• Þekking og reynsla af gerð og framkvæmd álagsprófa æskileg
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Færni í ritun og framsetningu texta á íslensku og ensku nauðsynleg
• Góð hæfni í samskiptum og teymisvinnu
• Frumkvæði, ábyrgð og metnaður í starfi
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember nk. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að
gegna starfinu rökstudd.