Fréttablaðið - 12.11.2016, Síða 114

Fréttablaðið - 12.11.2016, Síða 114
Hvernig er vinnuferlið bak við tónlist í kvik-myndir? Horfir þú á myndina og semur svo eða byrjar þetta strax í tökum? Tón- listin hefur spilað stóra rullu í þessum myndum sem við Denis [Villeneuve] höfum gert saman. Partur af því er það að Denis er mjög klár leikstjóri sem hefur mikla ástríðu fyrir og skilur mikilvægi hljóðs og tónlistar í kvik- myndum og að tengja það saman á áhrifaríkan hátt. Við höfum svipaðar hugmyndir þegar kemur að því. Ég er á móti því að það sé of mikil tónlist í kvikmyndum – eins og margar myndir sem eru með tón- list frá byrjun til enda. Tónlistin á að þjóna tilgangi, vera svolítið „state- ment“ þegar hún er notuð. Vera hluti myndarinnar og notuð á sterkan og áhrifaríkan hátt. Þar er alveg eins með hvaða listgrein sem er – þú verður að nota efnið sem þú ert með á réttan hátt og í réttum hlutföllum. Við vinnum þannig að hann fær mig mjög snemma inn í framleiðslu- ferlið. Þannig að ég fæ að vita hvað er að gerast og við tölum saman um hvaða andrúmsloft hann er að reyna að búa til. Hann talar ekki tungumál tónlistarinnar en við tölum saman með stikkorðum og hann gefur mér lykilorð sem ég túlka. Gefur og tekur innblástur Við höfum talað lengi um Arrival og Denis hefur lengi langað að gera þessa mynd. Hann sagði mér frá grunnhug- myndinni og mér fannst hún mjög spennandi. Mig hefur lengi langað til að gera sci-fi mynd. Síðan þegar ég fékk handritið í hendurnar og las líka smásöguna sem myndin er byggð á var ég mjög heillaður, sérstaklega af þessum hugmyndum sem myndin fjallar um sem eru mjög sterkar og frumlegar. Þannig að það er mjög spennandi. Í Arrival var þetta allt öðruvísi en til dæmis Sicario – í Sicario fór ég á tökustað og var svolítið með þeim þar í eyðimörkinni og þessu ótrú- lega landslagi sem er á þessu svæði [Nýju-Mexíkó]. En í Arrival töluðum við voða lítið um tónlistina – hann gaf mér fullkomið frelsi til að búa til og gera þær tilraunir sem þessar hug- myndir kveiktu hjá mér. Það voru svo þessar hugmyndir bæði um tíma og tungumál – hvernig sagan í myndinni fjallar um tungumálið og samskipti og hvernig við upplifum veröldina og alheiminn í gegnum tungumálið. Hvort það sé hægt að breyta upp- lifun okkar á umheiminum með því að læra nýtt tungumál, með því að endurvíra hausinn með því að læra svona „alien“ tungumál. En ég vil ekki segja allt of mikið og eyðileggja myndina. Síðan skoðaði ég líka slatta af kons- eptum sem „production design erinn“ setti fram, þar á meðal ritformið sem geimverurnar nota og það gaf mér líka mikinn innblástur. Bæði hug- myndir í handritinu og þessar hug- myndir um lúkkið á myndinni og þessu ritformi sem geimverurnar nota – og ég byrjaði að semja tónlistina í raun í sömu viku og þeir byrjuðu að skjóta. Þegar hann var búinn að skjóta í svona 10 daga þá sendi ég þeim hugmyndir og eina þeirra greip hann strax á lofti og hafði samband um leið og bað mig að senda sér fimm mínútna hugmynd sem varð að einu lykilþema myndarinnar – það er til að mynda spilað þegar aðalkarakterinn sér geimverurnar í fyrsta skiptið. Denis var að hlusta á þetta þegar hann skaut það. Síðan þegar eftirvinnslan byrjar þá fer af stað svolítið „back and forth“. Ég treysti þeim [sem sjá um eftirvinnslu] mjög vel, þeir eru næmir á tónlist þannig að þeir taka hugmyndir frá mér og klippa við þær og jafnvel klippa þeir stefið allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér það, þannig að þetta er svona „back and forth“ – org- anískt samstarf. Oft innblása þemu og hugmyndir frá mér klippihugmyndir hjá þeim og öfugt. Þeir nota ekki tón- list frá öðrum til að klippa, það er almenna reglan en við höfum ekki alveg getað haldið því. Meðvitaður um kvikmynda- söguna Vinnurðu tónlistina í til dæmis vís- indaskáldskap eins og Arrival og Blade Runner öðruvísi en í drama og spennu eins og Sicario? Maður er svolítið meðvitaður um kvikmynda- söguna, ég er algjör kvikmyndaaðdá- andi og því er maður meðvitaður um hvað eru klisjur í sci-fi myndum og spennumyndum. Denis hvetur mig og gefur mér tækifæri til að gera til- raunir og prófa að gera hluti sem eru óvenjulegir og er óhræddur við að láta vaða með sterkar en óvenjulegar hugmyndir sem eru samt aðgengi- legar. Við erum auðvitað ekki að gera avant-garde myndir – þetta eru „mainstream“ myndir – hann hefur samt bakgrunn í „arthouse“ og ég minn bakgrunn í alls konar tilrauna- tónlist þannig að það kemur fram í þessu ferli okkar. Ein fyrsta ákvörðun mín var að nota raddir vegna þess að þetta [Arr- ival] er mynd sem fjallar um tungu- mál, þá er augljóst að raddir og kórar spila rullu. En mig langar ekki að vinna með eitthvað eins og í 2001 [A Space Oddyssey] þar sem er notuð kórtónlist, mjög flott og áhrifarík tón- list sem ungverska tónskáldið György Ligeti samdi. Það hefur síðan verið kóperað mjög oft og er orðin hálfgerð klisja að mörgu leyti – þannig að ég var meðvitaður um að nota kórinn á hátt sem ég hafði ekki heyrt notaðan í bíómynd áður. Ég nota aðferðir og raddpælingar, liti og áferð sem maður hefur ekki heyrt í kvikmyndatónlist áður – ég var undir miklum áhrifum frá Stimmung eftir Karlheinz Stock- hausen sem er fyrir sex raddir og notar mikið yfirtónasöng. Það er mjög óvenjuleg og áhrifamikil söngtækni sem kórinn sem ég vann með, Theatre of Voices, sérhæfir sig í, svona framúr- stefnulegur söngur. En síðan vann ég líka með öðrum sem voru úr allt ann- arri átt og blandaði þessu öllu saman. Sólótónlistin autt blað Nýjasta sólóplatan Orphée – er þetta öðruvísi tónlist en kvikmyndatónlistin, ertu að fá útrás fyrir annars konar hluti þar? Fyrir mér er þetta allt tengt – ég fer í kvikmyndatónlistina út frá sólóplötunum, fyrstu stóru verkefnin komu frá fólki sem hafði heyrt Engla- börn, 1401 og Fordlandia. Það var sólótónlistin mín sem kveikti í Denis þegar hann ákvað að fá mig til að semja tónlistina fyrir Prisoners. Það var fyrsta stóra verkefnið sem ég fékk og þá var það eitt stykki sem kveikti aðallega í honum og réð úrslitum um að hann fékk mig í þetta verkefni, þannig að ég lít á þetta allt sem eitt heildarverk, sólótónlistina og kvik- myndatónlistina. Þetta eru samt auðvitað mjög ólík- ar aðferðir – það er í rauninni þessi grunnvinna að semja tónlistina og fá hugmyndirnar og svona þessi prósess, þessi grunnsköpunarþáttur er alltaf sá sami, hvort sem það er sólóplata eða kvikmyndatónlist. En úrvinnsl- an úr efninu er öðruvísi – þegar það er sólóplata þá ertu í rauninni með tabula rasa – eitt autt blað sem þú þarft að fylla upp í. Það þarf að búa til eigin umgjörð um tónlistina – mér finnst gaman að búa til umgjörð um tónlistina mína, þær [sólóplöturnar] hafa oft narratív og konsept sem umgjörð. En þegar maður gerir kvik- myndatónlist er þessi rammi auð- vitað þegar til. Síðast en ekki síst er kvikmyndin samvinnulistform. Þetta er listform sem sameinar margar list- greinar og þú sem tónskáld ert með- limur í þessu teymi sem býr til mynd- ina. Denis er mjög góður í því að velja gott fólk sem getur unnið vel saman og hefur góðan sans fyrir því og hann vinnur voða mikið með sama fólkinu. Finnur fyrir mikilli ábyrgð Núna erum við að byrja á Blade Runner sem er þriðja myndin sem við vinnum saman þrír: Denis, klipparinn Joe Walker og ég. Fólkið sem ég vinn mest með er leikstjór- inn og klipparinn þannig að helsti munurinn er að þú ert meðlimur í teymi sem er að búa til kvikmynda- verk, en þegar þú ert að gera sóló- plötu þá er það eigin verkefni. Ég nota reyndar mjög mikið alls konar samstarfsmenn en það eru öðruvísi áherslur, þetta er mín grunnhug- mynd og ramminn og umgjörðin eru upprunnin frá mér. Talandi um Blade Runner, er ekkert stressandi að fyrri myndin sé svona rómuð fyrir tónlistina? Ég held að allir séu mjög meðvitaðir um þenn- an íkoníska status. Það finna allir fyrir mjög mikilli ábyrgð og sérstak- lega fólk eins og við Denis, og meira og minna allir [sem koma að Blade Runner] eru rosalegir aðdáendur. Ég sá hana þegar hún var sýnd í Austur- bæjarbíó en hún hafði mjög mikil áhrif og ég var mjög mikill aðdáandi – var búinn að lesa bókina sem hand- ritið var byggt á og hef síðan fylgst með þessum útgáfum sem Ridley Scott hefur verið að dunda sér við að gera síðan. Hann breytti henni rosalega mikið frá þessari útgáfu sem kom í bíó upphaflega og gekk mjög illa en fékk með tímanum þennan mikla költ-status. Hljóðrásin er nátt- úrulega stór þáttur í að búa til þetta sterka andrúmsloft í myndinni og Vangelis er náttúrulega einn af þeim sem höfðu mikil áhrif á mig, sérstak- lega á einu tímabili. Það er margt þarna sem er spennandi að fást við og á sama tíma dálítið eins og verið sé að fá mig í rosalega mikilvægt verk- efni sem má ekki klúðra. Þetta er samt auðvitað framhald en ekki endurgerð og það hefur ýmislegt breyst og það er mikilvægt að hafa það í huga. Kvikmyndir eru samvinnuverkefni Tónskáldið Jóhann Jóhannsson hefur átt ótrúlega góðu gengi að fagna. Um þessar mundir er hann með mörg járn í eldinum en hann er að vinna tónlist fyrir nýjustu Blade Runner-myndina og ónefnda Aronofsky-mynd. Jóhann Jóhannsson hefur meðal annars tvisvar verið tilnefndur til Óskarsverðlauna og hlotið Golden Globe-verðlaunin eftirsóttu. Mynd/JÓnatan GrétarSSon Ég lít á þetta allt sem eitt heildar- verk, sólótónlistina og kvikmyndatónlistina. Stefán Þór Hjartarson stefanthor@frettabladid.is 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r66 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð Lífið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.