Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 12
hrekjast af vinnumarkaði vegna heilsu-
brests. Öflugar forvarnir og heilsuefling á
vinnustöðum geta því komið í veg fyrir að
einstaklingar þurfi á starfsendurhæfingu að
halda. VIRK hefur ekki lögbundið hlutverk í
forvörnum heldur liggur það hjá Vinnueftirliti
ríkisins. Í skipulagsskrá VIRK er hins vegar
opnað á þann möguleika að VIRK geti
tekið þátt í verkefnum sem snúa að eflingu
forvarna og velferðar á vinnustöðum. Slík
verkefni hafa verið í gangi hjá VIRK og
hafa skilað bæði þekkingu og reynslu sem
og ýmsum afurðum sem stjórnendur og
starfsmenn á vinnustöðum hafa getað nýtt
Allar mælingar
sem gerðar hafa
verið á árangri VIRK sýna
mjög jákvæða niðurstöðu
hvort heldur sem litið
er á líðan og lífsgæði
einstaklinganna eða
fjárhagslegan ávinning
fyrir einstaklinga og
samfélag.“
starfseminnar. Dæmi um það er skrásetning
á framfærslustöðu og stöðu á vinnumarkaði
í upphafi og lok þjónustu, þjónustukannanir
og ýmis konar mælingar á líðan einstaklinga
í þjónustu. Einnig hefur á undanförnum
árum verið skipulega hringt í einstaklinga
sem hafa lokið þjónustu og þeir spurðir
út í framfærslustöðu sína í allt að þrjú
ár eftir lok þjónustu. VIRK hefur einnig
fengið Talnakönnun sem utanaðkomandi
aðila til að leggja mat á árangur VIRK með
tryggingastærðfræðilegum aðferðum. Hér
aftar í ársritinu er að finna upplýsingar
um mat á árangri VIRK út frá ýmis konar
gögnum og forsendum. Óhætt er að segja
að niðurstaðan sé í heild sinni mjög jákvæð.
Allar mælingar sem gerðar hafa verið á
árangri VIRK sýna mjög jákvæða niðurstöðu
hvort heldur sem litið er á líðan og lífsgæði
einstaklinganna eða fjárhagslegan ávinning
fyrir einstaklinga og samfélag.
Árangur VIRK og nýgengi
örorku
Það er eðlilegt að menn skoði samhengi
milli starfsemi VIRK og þróun á örorku á
Íslandi þar sem eitt af markmiðum með
stofnun VIRK var að draga úr líkum á því að
einstaklingar færu af vinnumarkaði á örorku.
Það er hins vegar ekki einfalt að meta
árangur VIRK í þessu samhengi því við
vitum aldrei hvernig sviðsmyndin hefði orðið
ef VIRK væri ekki til staðar. Hefði þróun á
sér. Dæmi um þetta er verkefnið „Virkur
vinnustaður“ en nánari upplýsingar um það
er að finna á vefsíðu VIRK.
Stjórn VIRK hefur nú nýlega ákveðið að
fara af stað með nýtt þróunarverkefni til
þriggja ára þar sem markmiðið er að hafa
áhrif á bæði viðhorf og breytni stjórnenda
og einstaklinga í atvinnulífinu með það að
markmiði að koma í veg fyrir að einstaklingar
hrökklist af vinnumarkaði vegna afleiðinga
heilsubrests. Einnig verður unnið að því
að auka þekkingu, stuðning, fræðslu og
rannsóknir á sviði forvarna á vinnustöðum.
Leitað verður eftir samstarfi við fleiri aðila í
þessu verkefni.
Mat á árangri VIRK
Það er flókið að meta árangur starfs-
endurhæfingar því erfitt er að segja til um
hver hefðu orðið afdrif einstaklinganna ef
þjónustunnar hefði ekki notið við. Besta
leiðin væri því ef unnt væri að bera saman
tvo alveg sambærilega hópa þar sem annar
fengi þjónustu en hinn ekki. Þessa leið er
ekki mögulegt að fara þegar árangur VIRK
er metinn því VIRK ber lögum samkvæmt
að veita þjónustu til allra um allt land út frá
tilteknum faglegum skilyrðum.
VIRK hefur frá upphafi lagt áherslu á að
safna saman gögnum sem geta orðið
grunnur að ýmis konar mati á árangri
METNAÐUR
12 virk.is