Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Qupperneq 28
telja almennt mikilvægt að umsækjandi
sé með þá þekkingu sem óskað er eftir
í starfið og að hann hafi upplýsingar um
hver starfsgeta einstaklingsins er. Einnig
finnst honum mikilvægt að eiga góð og
stöðug samskipti við atvinnulífstengil eða
sérfræðinga sem hægt er að leita til ef einhver
vandamál koma upp á vinnustaðnum13.
Stærð skiptir máli
Rannsakendur hafa bent á að hugsanleg
tengsl séu milli stærðar vinnustaðarins
og viðhorfa vinnuveitenda til einstaklinga
með skerta starfsgetu, en almennt virðist
sem vilji til að ráða starfsmann með skerta
starfsgetu aukist með aukinni stærð
vinnustaðarins15,16. Vinnuveitendur í smærri
fyrirtækjum litu frekar á einstaklinga með
skerta starfsgetu sem óhæfari og ólíklegri
til að geta framkvæmt verkefnin á skilvirkan
hátt samanborið við vinnuveitendur hjá
stærri fyrirtækjum þar sem starfsmenn með
skerta starfsgetu voru líklegri til að vera
samþykktir.
Jákvætt viðhorf vinnuveitenda og opið við-
mót á vinnustað gagnvart slíkum ráðningum
auk fyrri reynslu af því að ráða einstaklinga
með skerta starfsgetu eru því helstu þættirnir
sem hafa áhrif á hvort innkoma einstaklings
með skerta starfsgetu á vinnustaðinn er
jákvæð og árangursrík17. En jafnvel þó
vinnuveitendur séu tilbúnir að ráða til sín
einstaklinga með skerta starfsgetu og aðlaga
vinnuumhverfið að getu þeirra þá geta aðrar
hindranir haft áhrif á það ferli eins og t.d.
ef ekki er til staðar inni á vinnustaðnum
viðeigandi stuðningur við starfsmanninn eða
ef fyrirtækið er mjög hagnaðardrifið þá geta
vinnuveitendur verið undir auknu álagi18.
Starfsmenn sem eru greindir með króníska
sjúkdóma af geðrænum eða öðrum toga
lenda stundum í þeim vanda að ráða illa
við aðstæður sínar þegar þeir eru komnir
í vinnu. Þá þurfa þeir að ákveða hvort þeir
segi yfirmanni sínum eða samstarfsfólki
frá sínum sjúkdómi. Starfsmenn eru ekki
skyldugir til að greina vinnuveitanda frá
sjúkdómi sínum en það getur verið mikilvægt
að upplýsa hann um aðstæður, sérstaklega
ef um alvarlegan eða versnandi sjúkdóm er
að ræða sem krefst eftirfylgdar og meðferðar
sem starfsmaður þarf mögulega að sækja á
vinnutíma19. Vinnuveitandinn getur einungis
komið til til móts við starfsmanninn hvað
varðar sveigjanleika og aðlögun á vinnustað
ef hann veit hverjar skerðingarnar/hindr-
anirnar eru, sérstaklega á vinnustöðum
þar sem nauðsynlegur stuðningur er ekki
til staðar. Ákveðinn ávinningur getur fylgt
því að upplýsa um aðstæður eins og aukinn
félagslegur stuðningur, tæknilegar breytingar
á vinnustað og vinnuaðstöðu, sveigjanlegur
vinnutími eða breytingar á verkefnum, en
allt þetta getur stuðlað að stöðugri eða
aukinni framleiðni og aukinni velferð inni
á vinnustaðnum. Mögulegar neikvæðar
afleiðingar tengjast hinsvegar viðbrögðum
frá hinu félagslega vinnuumhverfi og lúta
að félagslegu óöruggi, breyttri framkomu
gagnvart starfsmanni, hann getur verið
talinn vanhæfur og ekki eins duglegur og
hinir, eða fordómar sem samstarfsmenn
eða yfirmenn sýna og geta haft neikvæð
áhrif á starfsferil einstaklingsins og jafnvel
alla velferð hans20. Á vinnustöðum þar sem
vinnustaðamenningin er þannig að hún
ýtir undir traustvekjandi og jákvætt við-
mót sem auðveldar umræðuna um heilsu
og sjúkdóma á vinnustaðnum má koma
í veg fyrir neikvæðar afleiðingar þess að
upplýsa vinnustaðinn um ástæður skertrar
starfsgetu og hindranir21. Atvinnulífstenglar
eða ráðgjafar geta líka komið hér inn í ferlið
og hjálpað til við fyrirhugaða upplýsingagjöf
til vinnuveitanda og/eða samstarfsfólks.
Atvinnulífstenglar gegna einnig mikilvægu
hlutverki þegar kemur að því að finna störf
á almennum vinnumarkaði fyrir einstaklinga
með skerta starfsgetu. Rannsóknir hafa
sýnt að hæfni þeirra, sérstaklega þegar
kemur að því að mynda traust samstarf við
atvinnuleitandann, hefur sterkt forspárgildi
fyrir hversu góðir þeir eru að finna vinnu fyrir
einstaklinga sem eru með alvarleg geðræn
vandamál22. En eins og áður hefur komið
fram spilar vinnumenningin í fyrirtækjunum
afar stórt hlutverk og hefur áhrif á hvernig
starfsfólk þróar með sér tiltekna hegðun og
viðhorf sem ýta undir jákvæðar móttökur
starfsmanna með skerta starfsgetu.
Lokaorð
Vinnuveitendur gegna lykilhlutverki við
ráðningar og stjórnun í fyrirtækjum og
hafa því mikil áhrif á það að starfsmenn
með skerta starfsgetu geti verið áfram í
vinnunni. Framlag þeirra, viðhorf, skilningur
og móttækileiki fyrir fjölbreytileika eru
forsendur þess að einstaklingar með skerta
starfsgetu geti tekið þátt á vinnumarkaði á
árangursríkan hátt. Vinnuveitendur geta
breytt og bætt hvernig tekið er á þessum
málum hjá fyrirtækjunum með því að sýna
forystu í verki og veita stuðning. Vinnu-
markaður án aðgreiningar er vinnumarkaður
þar sem allir geta tekið þátt óháð starfsgetu.
Einstaklingar með skerta starfsgetu og
starfsmenn sem afkasta minna hafa á
Samfélagið
hefur þannig
þörf fyrir
vinnustaði
með aukið
umburðarlyndi
gagnvart
einstaklingum
með geðræn
vandamál og
önnur krónísk
heilbrigðis-
vandamál.“
28 virk.is