Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 41
VIÐTAL
Hvernig er svona hlutastarf skipulagt?
„Við byrjum með þriggja mánaða starfs-
reynslu þar sem ákveðinn vinnutími er
markaður og umsamin laun greidd í hlutfalli
við það. Eftir þrjá mánuði hefur staðan verið
tekin aftur. Viðkomandi aðilar síðan ráðnir í
framhaldi af því í hærra starfshlutfall og loks
í fullt starf. Mitt hlutverk er að gæta þess að
rammanum sé fylgt eftir.“
Hvernig snýr þetta að öðrum
starfsmönnum fyrirtækisins?
„Fyrirtækið verður að undirbúa aðra starfs-
menn varðandi tímarammann – öllum
verður að vera ljóst frá upphafi hver hann
á að vera. Mikilvægt er einnig að ákveðin
væntingastjórnun sé ljós á milli hlutaðeigandi.
Með öðrum orðum þá þarf að ríkja skilningur
á báða bóga á að viðkomandi byrji hægt og
rólega en auki svo starfshlutfallið þegar hann
treystir sér til. Einstaklingurinn verður að átta
sig á að ekki er ætlast til meiru af honum er
ramminn segir til um.“
Samskiptin við VIRK
hafa verið góð
Hvernig gengur að halda tímarammanum
eins og lagt er upp með?
„Atvinnulífstengill hjá VIRK er í sambandi
við hinn nýja starfsmann og okkur hér hjá
fyrirtækinu. Það er mikilvægur stuðningur
við þetta ferli. Það er í raun framhald af því
ferli sem áður hefur átt sér stað hjá VIRK í
þá átt að viðkomandi starfsmaður komist
aftur út á vinnumarkaðinn. Skiljanlega er
auðveldara fyrir hinn nýja starfsmann að tjá
sig við atvinnulífstengilinn til að byrja með, ef
þörf gerist, fremur en vinnuveitandann.
Þýðingarmikið er að öllum sé vel ljóst hvert
ferðinni sé heitið. Það hafa komið mjög
jákvæðir hlutir út úr þessari samvinnu.
Vegna hinna nýju hlutastarfsmanna hafa
komið hingað sjúkraþjálfarar og fleiri til þess
að skoða hið verðandi vinnuumhverfi. Það
hefur svo komið okkur að gagni varðandi
starfsumhverfið yfirleitt. Við höfum í fram-
haldi af þessu lagfært ýmislegt sem við
höfðum ekki hugmynd um að gæti orðið
betra, svo sem varðandi tæki og tól, ákveðna
tegund af stólum og þannig mætti telja.“
Hefur fyrirtækið ykkar haft annan
ávinning af að ráða starfsmann sem
kemur úr samstarfi við VIRK?
„Já, einkum á sviði væntingastjórnunar
gagnvart starfsmönnum yfirleitt. Vissulega
hefur verið hugað að slíku áður. Þær línur
skerpast hins vegar þegar þarf að fara
svona vandlega yfir hvers á og má vænta af
nýjum starfsmanni sem byrjar í hlutastarfi.
Þá skoðar maður samskiptin af aukinni
gagnrýni. Skoðar hvort menn séu almennt
sammála um til hvers er ætlast af hverjum
og einum starfsmanni. Þetta hefur orðið
til að rifja upp og skerpa á markmiðum í
þeim efnum. Á hinn bóginn er ekki auð-
velt í svona fyrirtæki að vera með of
niðurnjörvaða starfslýsingu. Samskiptin við
VIRK hafa verið góð og ég sé ekki betur en
allir hafi grætt á þessu.“
Fólk vill gjarnan sanna
sig á nýjum vinnustað
Hafa engir erfiðleikar komið upp?
„Jú, það er eðlilegt að eitthvað komi upp.
Í okkar tilvikum hefur reyndar helst þurft
að halda aftur af viðkomandi hlutastarfs-
mönnum. Þegar fólki fer að líða betur og
falla til innan fyrirtækisins þá er mikilvægt
að minna á að halda sig við planið. Ekki
vinna meira en lagt var upp með. Það er svo
auðvelt að fara úr þrjátíu prósentum upp í
fimmtíu prósent eftir mánuð eða jafnvel upp
í hundrað prósent. En þá er allt planið fallið
um sjálft sig. Íslenski hugsunarhátturinn er
ríkur í fólki, það vill sanna sig þegar það byrjar
á nýjum vinnustað. Það hefur þurft nokkrum
sinnum að ítreka að verið væri að leggja út
í vegferð sem skipulögð hefði verið af VIRK
og það bæri að halda sig við umsaminn tíma.
Það væri einfaldlega ekki ætlast til meira
vinnuframlags en samið var um.
Menn taka því vel þegar væntingastjórnun
er til staðar. Ég hef orðað það svo að ég
vildi heldur að viðkomandi lyki ferlinu eins
og lagt var upp með og yrði starfsmaður
hjá fyrirtækinu árum saman fremur en að
hann stæði sig súper vel í þrjá mánuði –
en yrði svo að hætta af því að hann hefði
ætlað sér um of. Þá væri ávinningur okkar
beggja horfinn. Svona löguðu þarf að fylgja
vel eftir af hendi yfirmanns. Ég hef fundið
að viðkomandi einstaklingar hafa kunnað
því vel að fylgst sé með á þennan hátt. Að
yfirmönnum sé ekki sama um þá.“
Gleðilegt að sjá menn fá
sjálfstraustið á ný
Hvernig reynsla hefur þetta samstarf
verið fyrir þig sem framkvæmdastjóra?
„Það er mikilsverð tilfinning að geta á þenn-
an hátt látið gott af sér leiða. Stutt einstakling
út á vinnumarkaðinn á ný sem hefur af
einhverjum orsökum orðið að yfirgefa hann
um tíma. Það er gleðilegt, að sjá fólk sem
vegna veikinda hefur orðið niðurdregið,
brjótast út úr skelinni og fá sjálfstraustið á ný.
Fylgjast með sjálfsímynd þess vaxa hægt og
rólega. Það veitir gleði að hafa haft eitthvað
um það að segja að þessir aðilar kæmust
aftur til vinnu – hvort sem viðkomandi
einstaklingar halda áfram störfum við þetta
fyrirtæki eða fara eitthvað annað. Við höfum
góða reynslu af þeim einstaklingum sem
komið hafa úr samstarfi við VIRK og getum
vel hugsað okkur að ráða fleiri ef þörf gerist
í fyrirtækinu.
Væntingastjórnun er málefni sem mætti veita
meiri athygli hér á landi. Ég hef starfsreynslu
frá Danmörku, þar er væntingastjórnun í
heiðri höfð. Ég hef farið eftir því sem ég lærði
þar. Þetta viðhorf í væntingastjórnun er í æði
mörgum tilvikum inngróið fyrirtækjarekstri
í Danmörku. Menn tala þar opinskátt um
væntingar. Starfsfólki er þar fremur hrósað
en viðgengst hér – en á sama hátt er fólk
líka gagnrýnt á beinskeyttan hátt. Það tekur
þeirri gagnrýni ekki neikvætt, fer ekki í vörn,
heldur hummar við og segir: „Já, þetta er
líklega rétt, þarna má bæta sig.“ Á þennan
hátt verða samskiptin hreinskiptnari og
opnari. Af þessu getum við Íslendingar lært
– bæði stjórnendur og annað starfsfólk.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Ég hef orðað það svo að ég vildi heldur að
viðkomandi lyki ferlinu eins og lagt var upp
með og yrði starfsmaður hjá fyrirtækinu árum
saman fremur en að hann stæði sig súper vel
í þrjá mánuði – en yrði svo að hætta af því að
hann hefði ætlað sér um of.“
41virk.is