Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 46
VIRK í starfsendurhæfingu. Hins vegar
er stundum ekki auðvelt að greina þetta
í upphafi þjónustu og við viljum gjarnan
að fólk fái að njóta vafans. Stundum tekst
að ná góðum árangri þótt ekki hafi blásið
byrlega í fyrstu.
Annað er það að jafnvel þótt viðkomandi
einstaklingar nái ekki í fyrstu atrennu
að komast út á vinnumarkaðinn þá nær
hann oftast betri líðan. Þann árangur ber
líka að meta. Þessu fólki tekst kannski að
komast til starfa sem sjálfboðaliðar eða í
lítið starfshlutfall þótt það sé ekki enn fært
um að fara í fullt starf á hinum almenna
markaði. Það öðlast meiri menntun og lifir
betra lífi með sinni fjölskyldu og þarf jafnvel
að nota lyf og heilbrigðisþjónustu minna en
annars væri. Þetta skilar sér inn á heimilin,
til barnanna og þannig út í samfélagið.“
Hvernig fólk leitar til VIRK?
„Það er búinn að vera mikill „rússíbani“ með
VIRK á allan hátt. Við vissum í upphafi ekki
hvaða fólk kæmi til okkar og við höfum frá
upphafi verið að þróa betur árangursríkar
aðferðir í þjónustunni. Fyrst kom margt
ófaglært fólk en upp á síðkastið hefur
aukist að til VIRK leiti vel menntað fólk sem
hefur kulnað í starfi. Þetta á við til dæmis
um kennara, fólk í heilbrigðisstéttum – ekki
síst þá sem vinna við umönnun. Greinilega
er mikið álag á fólki sem sinnir þessum
störfum og það þyrfti að skoða nánar.
Ingibjörg Jónsdóttir, forstöðumaður hjá
Institutet för Stressmedicin í Gautaborg,
hefur bent á að skoða þurfi uppbyggingu
starfa í fyrrnefndum starfsgeirum. Ingibjörg
hefur stundað rannsóknir á ýmsu því sem
viðkemur starfsþroti fólks. Hún hefur til
dæmis vakið athygli á að fyrirkomulag á
borð við að hafa einn stjórnanda yfir allt
að fimmtíu starfsmönnum sé varla fólki
bjóðandi. Þá er vinnumarkaðurinn að
taka miklum breytingum í kjölfar hinnar
stafrænu þróunar. Allt þetta skapar óróa
sem getur valdið kvíða.“
Hefur aldur eitthvað að segja í þessu
sambandi?
„Já, til okkar leitar oft fólk sem ræður ekki
lengur við núverandi starf, sem það hefur
jafnvel menntað sig til á sínum tíma. Það
fólk þarf að umskóla sig, ef svo má segja,
það þarf að hjálpa því að finna starf við
hæfi.“
Hvernig ræður þú ráðgjafa til VIRK?
„Félagsráðgjafar hafa komið sterkir inn
að nú var virkilega eitthvað að gerast. Fólk
fór að koma inn í þjónustu. Aðstæðurnar
voru þannig að ekki var um annað að ræða
en fara bara af stað og læra af reynslunni.
Ég er ekki viss um að langur undirbúningur
hefði skilað betri árangri. Vissulega höfum
við misstigið okkur í ferlinu – en þá höfum
við stigið til baka og haldið svo áfram.“
Hvernig er varið samstarfi við fyrirtæki?
„Við erum núna að byggja upp mjög
markvisst samstarf við fyrirtæki um að taka
á móti einstaklingum til starfa með skerta
starfsgetu. Þetta verkefni gengur vel og
verður þróað áfram á margan hátt. Hins
vegar er einnig komin í gang umræða um
hvort VIRK gæti komið meira að forvörnum.
Ég er ekki frá því að það geti gengið. En
slíkt þarf að móta m.a. í samstarfi við
Vinnueftirlitið sem hefur lögbundið hlutverk
í forvörnum. Líka höfum við velt fyrir okkur
hvort við gætum hjálpað fólki fyrr í ferlinu.
En vissulega er á hverjum tíma fjöldi fólks á
vinnumarkaði sem líður illa – og hvar eigum
við þá að setja mörkin? Ekkert okkar gengur
í gegnum lífið áfallalaust. Þetta þarf því að
skoða mjög vel en við hjá VIRK erum ávallt
tilbúin til að skoða nýjar leiðir til árangurs.“
VIRK er orðið stórt og
öflugt net
Hvað eru margir sem starfa hjá VIRK?
„Á skrifstofu VIRK í Guðrúnartúni 1 eru
fjörutíu og fimm starfsmenn. Starfsemi
VIRK er umfangsmikil, markviss stuðningur
við ráðgjafa og mikið er um samninga.
Við kaupum úrræði af fimm hundruð
þjónustuaðilum, utan um það þarf að
halda og ekki síður fjármálin. Einnig starfa
í Guðrúnartúni þverfagleg teymi sem fara
yfir málefni einstaklinga í þjónustu og meta
stöðu og framgang í starfsendurhæfingunni
ásamt ráðgjöfunum. Áður var þetta í hönd-
um verktaka en á undanförnu ári höfum við
í auknum mæli verið að færa þennan þátt
starfseminnar frá verktökum til starfsmanna.
Svo starfa hjá VIRK fimmtíu og tveir
starfsendurhæfingarráðgjafar víða um land.
VIRK er í samstarfi við öll stéttarfélög, líf-
eyrissjóðina, samtök atvinnurekenda, allt
heilbrigðiskerfið, endurhæfingarkerfið, alla
heilsugæsluna, félagsþjónustu sveitar-
félaganna, Vinnumálastofnun, Trygginga-
stofnun og ráðuneytið – alla þessa þræði
þurfum við að halda utan um. Hlutverk mitt
er í raun að stýra þessu samstarfi. Þess ber
að geta að veltan hjá VIRK er um þessar
mundir þrír og hálfur milljarður króna á ári.
ásamt fleiri fagstéttum svo sem sjúkra-
þjálfurum og iðjuþjálfum. Í fyrstu voru
menn með þær hugmyndir að það þyrfti
ekki að fá háskólamenntað fólk sem ráð-
gjafa. Talið var þjónustufulltrúar myndu
geta sinnt slíkum störfum. Fljótlega var þó
snúið af þeirri leið og fólk áttaði sig á að til
að endurhæfa fólk til starfa yrði að vera fyrir
hendi staðgóð þekking.
Það er ekki sama hvernig komið er til
móts við fólk sem glímir við vanda. Að
vera ráðgjafi er gríðarlega erfitt starf. Ráð-
gjafinn þarf bæði að ráða við að sýna fólki
stuðning og hvatningu en án þess þó að
taka vandamálin of mikið inn á sig eða
verða meðvirkur. Ekki dugar að ráðgjafinn
„brenni upp“ sjálfur. Við höfum verið
heppin með ráðgjafa og eigum í þeim
hópi öflugt fólk. Ég er þakklát fyrir það.
Ráðgjafarnir fá handleiðslu hjá fagfólki
þegar þörf er á. Almennt þarf fólk í svona
störfum á handleiðslu að halda.“
Skilningur á starfsemi VIRK
hefur aukist
Hvað er lögð áhersla á í samstarfi VIRK
og einstaklinga?
„Við hjá VIRK leggjum mikla áherslu á að
einstaklingar, sem eru í samstarfi við okkur,
ráði sem mest ferðinni í sínum málum. Út
frá því er gengið. Fólk verður að vera bílstjóri
í sínum bíl. Hlutverk VIRK er að hjálpa fólki
til sjálfshjálpar. Það hefur tekist að mestu
leyti en vissulega má alltaf gera betur. Við
erum núna að innleiða nýtt upplýsingakerfi
sem hjálpar til í þessum efnum.“
Hefur skilningur samfélagsins aukist
á starfsemi VIRK?
„Já, mér finnst það. Á undanförnum árum
hefur viðhorfið til VIRK verið að breytast.
Ég viðurkenni að þegar ég, árið 2008, var
nýbyrjuð að starfa fyrir VIRK og bankahrunið
varð nokkrum vikum síðar þá óttaðist ég
að þessi starfsemi yrði lögð af. Ég ákvað að
mæta þessu með því að spýta í. Þeir Gylfi
Arnbjörnsson og Vilhjálmur Egilsson voru
sammála mér þar – sögðu sem svo: „Nú þarf
fólk virkilega á þessari þjónustu að halda.“
Þótt ég væri þá ekki komin langt með
undirbúning þá setti ég starfsemina af
stað. Ég byrjaði með tvo eða þrjá ráðgjafa
í einskonar tilraunaverkefni með nokkrum
stéttarfélögum. Við hrundum þessu af
stað og árið 2009 komu fyrstu ráðgjafarnir
til starfa hjá VIRK. Við héldum fundi með
þessum nýju ráðgjöfum og ég fann svo vel
46 virk.is