Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Page 67
VIRK
EINSTAKLINGSMIÐAÐUR
STUÐNINGUR
Á VINNUMARKAÐI
MIKILVÆGUR ÞÁTTUR VARÐ-
ANDI ALMENN LÍFSGÆÐI
FELST Í AÐ VERA Í EINHVERS
KONAR VIRKNI OG UPPLIFA
TILGANG MEÐ LÍFINU.
Óvirkni og tilgangsleysi eru slæm blanda
og afleiðingarnar eru dýrkeyptar fyrir
einstaklinga og samfélög í heild sinni.
Atvinnuþátttaka snýst um svo margt annað
en afkomu og því mikilvægt að sem flestir
komist út á vinnumarkaðinn og fái tækifæri til
að sýna sjálfum sér og öðrum að styrkleikar
og hæfni allra skipta þar máli.
VIRK og geðdeild Landspítalans (LSH)
(Laugarás og Sérhæfð endurhæfingargeð-
deild (SEG)) hafa síðan 2013 unnið að
greiðan aðgang að atvinnulífstenglum VIRK
sem eru þá tilbúnir að aðstoða eftir þörfum
og í samvinnu við þverfaglega teymið.
Áherslan er alltaf á einstaklinginn, að horfa
á styrkleika og áhugasvið hvers og eins og
reyna að finna vinnu þar sem þessir þættir
eru hafðir að leiðarljósi.
Mikið áunnist
Stuðningur við þjónustuþega er mjög
mismunandi og því skiptir miklu máli að
um einstaklingsmiðaða nálgun sé að ræða.
Á meðan sumir þurfa mikinn stuðning við
leit að starfi en svo minni eftirfylgd þegar í
starfið er komið, eru aðrir sem þurfa mikinn
stuðning eftir að vinna hefst og við þessi
fyrstu skref sem fylgir því að takast á við
miklar breytingar.
Það er óhætt að segja að verkefnið hafi
gengið mjög vel og mikið hafi áunnist. Á
vordögum 2018 höfðu um 90 einstaklingar
nýtt sér þjónustuna og af þeim höfðu u.þ.b
75% farið í vinnu. Mjög algengt er að
einstaklingar byrji í 20–50% starfshlutfalli
sem er svo aukið smám saman en alltaf
miðað við stöðu hvers og eins.
Um er að ræða fjölbreytt störf og eftir
áhugasviði hvers og eins; starfsmaður á
leikskóla, afgreiðslumaður á lager, starfs-
maður í gagnavinnslu, starfsmaður í mötu-
neyti, starfsmaður á veitingastað, umönn-
unarstörf, áætlunarbílstjórar, afgreiðslustörf
svo eitthvað sé nefnt.
Flestum hefur gengið vel að aðlagast nýjum
störfum og stór hluti þeirra sem fer í vinnu er
lengi á sama vinnustaðnum. Það skiptir máli
að atvinnurekendur átti sig á mannauðnum
sem er þarna og þegar til lengri tíma er litið
er aukin atvinnuþátttaka ávinningur allra.
Fyrir utan styrkleika og hæfni sem þessir
einstaklingar koma með á vinnumarkaðinn,
er verið að leggja grunninn að betra og
heilbrigðara lífi þessara einstaklinga og þá
um leið að betra samfélagi fyrir okkur öll.
uppbyggingu árangursríkrar starfsendur-
hæfingar fyrir ungt fólk með geðrofs-
sjúkdóma. Samstarfsverkefnið er grund-
vallað á IPS (Individual Placement and
Support) hugmyndafræðinni þar sem lögð
er áhersla á einstaklingsmiðaðan stuðning í
leit að starfi og eftir að viðkomandi er kominn
í starf. Það eru atvinnulífstenglar VIRK
sem koma að verkefninu með stuðningi
þverfaglegs teymis LSH og markmiðið er
alltaf að bæta líðan og heilsu þjónustuþega.
Tvígreiningarteymi LSH, Geðheilsustöð
Breiðholts og Barna- og unglingageðdeild
(BUGL) nýtir líka þjónustuna.
Fyrirtæki og stofnanir hafa verið jákvæð
gagnvart verkefninu. Gott samstarf og
stuðningur við þjónustuþega og atvinnu-
rekendur skiptir miklu máli og eykur líkur
á farsælli atvinnuþátttöku. Stjórnendur hafa
67virk.is