Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Blaðsíða 76
Hér verður fjallað um bókina Crazy Like Us, The Globalization of the
Western Mind eftir Ethan Watters. Bókin var fyrst gefin út árið 2010 af Free
Press, í New York. Bókin er 281 blaðsíða, inngangur, 4 meginkaflar og
niðurstöðukafli, auk heimilda- og atriðaorðaskrár. Bókin fæst á rafrænu
formi.
Höfundurinn ferðast um heiminn og ræðir við ýmsa sérfræðinga á sviði
geðraskana, s.s. geðlækna, sálfræðinga og mannfræðinga um hvernig
bandarískar hugmyndir um geðsjúkdóma hafa breiðst út um veröldina.
Hvernig bandarískar skilgreiningar og meðferðir við geðröskunum hafi orðið
að alþjóðlegum stöðlum. Með því að kenna veröldinni allri að hugsa eins og
ameríska þjóðin hafi hún, til hins betra eða verra, verið að gera sýn heimsins
á geðraskanir mjög einsleita.
Fyrsti kafli bókarinnar (The Rise of Anorexia in Hong Kong) fjallar um heimsókn
Watters til Dr. Sing Lee sem er sérfræðingur í átröskunarsjúkdómum við
Prince of Wales sjúkrahúsið í Hong Kong. Þegar Sing Lee kom til baka til
Hong Kong frá þjálfun sinni á Englandi um miðjan níunda áratuginn, þar
sem hann kynntist fólki með lystarstol fyrst, fór hann að leita eftir kínversku
fólki með sjúkdóminn. Á þessum tíma var lystarstol óþekkt fyrirbæri í Kína
og Hong Kong og hann skoðaði hvort menningin bæri með sér verndandi
þætti. Í sögulegu samhengi voru litlir fordómar til staðar m.t.t. stærri
BÓKARÝNI
Crazy Like Us, The Globalization of
the Western Mind
HILDUR PETRA FRIÐRIKSDÓTTIR
starfsendurhæfingarráðgjafi
ÞAÐ ER
MIKILVÆGT
AÐ MUNA AÐ MÆTA
FÓLKI AF ÓLÍKUM
UPPRUNA MEÐ
OPNUM HUGA,
M.A. VARÐANDI
GEÐRASKANIR
VEGNA ÞESS AÐ
ÞAÐ ERU EKKI ALLIR
„CRAZY LIKE US“.“
76 virk.is