Morgunblaðið - 03.10.2019, Side 17
FRÉTTIR 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
ASKJA · Krókhálsi 11–13 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi.
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
Rúmgóður og fjölskylduvænn tengiltvinnbíll á mögnuðu verði
Kia Optima Plug-in Hybrid er vel búinn og sparneytinn tengiltvinnbíll með allt
að 64 km rafdrægi og yfir 1.000 km heildardrægi. Þessi vinsæli fjölskyldubíll
er bæði fáanlegur sem Sportswagon með 440 lítra skotti og Sedan með 307
lítra skotti. Hann fæst nú á einstökum sérkjörum, með innifalinni hágæða
lakkvörn sem verndar ytra byrði bílsins ásamt fyrstu þjónustuskoðun hjá Kia.
Einnig bjóðum við hagstæða fjármögnunarmöguleika í samvinnu við Ergo.
Komdu og reynsluaktu Kia Optima Plug-in Hybrid. Við tökum vel á móti þér.
34.777 kr.50% fjármögnun til 84 mánaða. Vextir6,85%. Heildargreiðsla vegna bifreiðarer 5.141.863 kr. Árleg hlutfallstalakostnaðar er 7,69%.
Afborgun á mánuði:
*F
or
se
nd
ur
áb
yr
gð
ar
er
u
re
gl
ul
eg
t
þj
ón
us
tu
ef
tir
lit
se
m
ka
up
an
di
be
r
ko
st
na
ð
af
.L
es
tu
m
ei
ra
um
áb
yr
gð
in
a
á
w
w
w
.k
ia
.c
om
/a
by
rg
d.
Kia Optima PHEV á sérkjörum frá:
Rafmagnaður Kia Optima með veglegum kaupauka
Orkupakki sem
allir tengja við!
4.490.777 kr.
Verð áður: 4.850.777 kr.
50% afsláttur af lántökugjöldum
7 ára ábyrgð framleiðanda
á öllum nýjum Kia bílum
Afbragðsgóður gangur hefur ver-
ið í framkvæmdum við Hús ís-
lenskunnar á Melunum í Reykja-
vík. Tugir starfsmanna hafa
keppst við að slá upp fyrir undir-
stöðum hússins og bílakjallara við
það.
Fram kemur í frétt á heimasíðu
Framkvæmdasýslunnar að „hola
íslenskra fræða“ eins og hún var
gjarnan kölluð, sé óðum að fyllast
af fagurlega mótaðri steinsteypu.
Góð tíð undanfarið hafi gert
starfsfólki á svæðinu mögulegt að
komast ögn á undan áætlun.
Búast megi við að botnplata húss-
ins verði steypt að fullu í febrúar
2020, hamli vetrarveður ekki
framkvæmdum úr hófi.
Lilja Alfreðsdóttir menntamála-
ráðherra og Guðrún Ingvars-
dóttir, forstjóri Framkvæmda-
sýslunnar, undirrituðu 30. ágúst
síðastliðinn samning við Ístak um
byggingu Húss íslenskunnar.
Karl Andreassen, forstjóri
verktakafyrirtækisins, undirritaði
samninginn fyrir þess hönd.
Framkvæmdir hafa því staðið yfir
í rúman mánuð. sisi@mbl.is
„Hola íslenskra fræða“
er nú óðum að fyllast
Mynd/Framkvæmdasýslan
„Holan fræga“ Steinsteyptir veggir fylla nú upp í grunninn á Melunum sem staðið hafði óhreyfður árum saman.
Landsréttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Vesturlands þess efnis
að karlmaður skuli sæta nálg-
unarbanni gagnvart ólögráða pilti
næstu þrjá mánuði. Báðir foreldrar
piltsins óskuðu eftir því við lög-
reglu að maðurinn yrði settur í
nálgunarbann gagnvart syni þeirra
snemma í septembermánuði, en
kynni tókust með manninum og
piltinum er maðurinn dvaldi um
skeið á lögheimili piltsins.
Samkvæmt því sem fram kemur í
greinargerð lögreglustjóra, sem
vísað er til í úrskurði héraðsdóms,
hafði pilturinn lýst því að í fyrstu
hefði honum liðið vel í samskiptum
við manninn, en að undanförnu
hefði hann orðið fyrir skömmum og
aðkasti af hans hálfu, sem væru
meðal annars þess efnis að pilt-
urinn ætti að segja tiltekna hluti við
barnaverndaryfirvöld sem eru með
málefni og aðstæður piltsins til
meðferðar.
Úrskurðaður í nálg-
unarbann gagnvart
ólögráða pilti
Fuglavernd hefur tekið saman upp-
lýsingar á vef sínum, fuglavernd.is,
um 37 sjófuglabyggðir við Ísland.
Sjófuglabyggðir hér við land eru
með þeim stærstu í heiminum og
áætlar Náttúrufræðistofnun Ís-
lands á vef sínum að á Íslandi verpi
um 10 milljónir fuglapara og að 7,5
milljónir þeirra séu sjófuglar.
Í tilkynningu frá Fuglavernd seg-
ir m.a. að þessar sjófuglabyggðir
séu allar alþjóðlega mikilvæg
fuglasvæði, svonefnd IBA-svæði,
oftast vegna fjölda þeirra sjófugla
sem reiða sig á þau. Eru 99 slík
svæði skráð í heiminum í dag.
Vefur um sjófugla-
byggðir landsins
Ljósmynd/Fuglavernd
Langanes Sjófuglar á Stóra-Karli.
Eignarhaldsfélagið Festi hf. og
dótturfélögin N1, Krónan, Bakkans
og ELKO skrifuðu í gær undir
samning við Kolvið sem felur í sér
að útreiknuð losun gróðurhúsa-
lofttegunda vegna beinna áhrifa frá
rekstri Festar og dótturfyrirtækj-
anna verður kolefnisjöfnuð. Samn-
ingurinn gildir fyrir tímabilið 2018
til 2019. Rúmlega 5.000 tré verða
gróðursett til að framkvæma kol-
efnisbindinguna, en það jafngildir
um hektara af skóglendi árlega á
þeim svæðum sem Kolviður hefur
umsjón með. Áður hafa fyrirtæki í
eigu Festar innleitt hugbúnaðar-
lausn til að kortleggja og reikna út
losun gróðurhúsalofttegunda frá
starfseminni.
Kolefnisjafna starf-
semi með trjám