Morgunblaðið - 03.10.2019, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
ráðherra að mögulegt væri að ljúka
smíði Sundabrautar fyrir árið 2030.
Hugmyndin væri sú að bjóða allt
verkið út, frá hönnun til fram-
kvæmda, og fjármagna verkið með
veggjöldum. Jafnframt boðaði ráð-
herrann að stefnt væri að því í 1.
áfanga að byggja lágbrú yfir
Kleppsvík, frá Sundahöfn yfir í
Gufunes. Þetta er nokkuð á skjön
við niðurstöðu starfshóps sem skil-
aði áliti í sumar. Hann taldi jarð-
göng úr Laugarnesi yfir í Gufunes
fýsilegasta kostinn.
Í þessari fréttaskýringu verður
skoðað hvernig lágbrú yfir Klepps-
vík getur tengst Sæbrautinni. Um
tvær leiðir er að ræða, öðru hvoru
megin við verslunarmiðstöðina
Holtagarða.
Land tekið frá við Holtagarða
Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-
2030, sem samþykkt var í borgar-
stjórn í nóvember 2013 og staðfest
var af Skipulagsstofnun í byrjun árs
2014, er gert ráð fyrir því að Sunda-
braut muni liggja milli Kleppsspít-
ala og Holtagarða. Var tekið frá
land í þessu augnamiði. Vegagerðin
vildi að Sundabraut lægi frá Gufu-
nesi yfir að Gelgjutanga, en þeirri
útfærslu, sem var sú langódýrasta,
var hafnað af borginni. Á Gelgju-
tanga hefur sem kunnugt er verið
skipulögð íbúðarbyggð, svokölluð
Vogabyggð.
Annar möguleiki hefur verið
nefndur. Hann er sá að Sundabraut-
in verði framhald af Holtavegi og
síðan á brú yfir Kleppsvíkina.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
loftmynd er mjög þrengt að gatna-
mótum Holtavegar og Sæbrautar
með byggingum og erfitt að koma
þar fyrir mislægum gatnamótum að
óbreyttu. Ef Sæbrautin yrði lögð
milli Holtagarða og Kleppsspítala
er meira landrými fyrir gatnamót.
Í minnisblaði verkfræðistofunnar
Eflu frá því í febrúar 2019, sem birt
er með skýrslu starfshópsins um
Sundagöng, er einmitt sýnt hvernig
mislæg gatnamót á þeim stað gætu
litið út. Myndin er birt hér með
greininni til upplýsingar fyrir les-
endur.
Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-
2030 segir m.a: „Í skipulaginu eru
þó lagðar til ákveðnar breytingar
sem tengjast Sundabrautinni og
umhverfisáhrifum sem hún gæti
valdið. Lagt er til að mislæg gatna-
mót á Sæbraut verði felld út en í
stað þeirra komi afkastamikil ljósa-
stýrð gatnamót. Slík lausn drægi
ekki einvörðungu úr fram-
kvæmdakostnaði heldur gæti verið
mun ásættanlegri fyrir umhverfis-
áhrif á aðliggjandi byggð.“
Í huga leikmanns er erfitt að átta
sig á því hvað „afkastamikil ljósa-
stýrð gatnamót“ þýða í raun. Mis-
læg gatnamót anna meiri umferð
eins og gefur að skilja enda lagðist
Vegagerðin gegn því að mislæg
gatnamót yrðu felld út úr skipulag-
inu.
Eins og vegfarendur vita af eigin
reynslu er nú þegar þung umferð
um Sæbraut á virkum dögum og
umferðarteppur myndast á álags-
tímum.
Í skýrslu starfshóps undir forystu
Hreins Haraldssonar, sem skilaði
áliti í júlí í sumar, er fjallað um
kosti og ókosti lágbrúar yfir
Kleppsvík:
Helsti kostur lágbrúar er sá að
miðað við fyrirliggjandi gögn er það
líklega ódýrasti kosturinn við það að
þvera Kleppsvík. Lágbrú er sömu-
leiðis besti kosturinn ef horft er til
umferðar gangandi og hjólandi veg-
farenda.
Helsti ókosturinn er áhrif á
skipaumferð en ljóst er að undir
lágbrú, hvort sem hún er 21-26
metra há eða lægri, munu flutn-
ingaskip ekki sigla. Alla uppskipun
innan brúarinnar myndi því þurfa
að leggja niður eða færa utar, þó að
ekki sé útilokað að gáma- og
geymslusvæði yrðu áfram starfhæf
innan hennar.
Stóra myndin sýnir vel hvernig
Sundabraut og lágbrú munu skera í
sundur hafnarsvæði Sundahafnar.
Hvor kosturinn sem valinn verður
mun koma í veg fyrir að flutninga-
skip geti lagt að Vogabakka, at-
hafnasvæði Samskipa. Að auki
myndu 4-6 hektarar hafnarsvæð-
isins fara undir vegamannvirkin.
„Sundabraut er sérstakt verkefni
en af hálfu Faxaflóahafna hefur ver-
ið bent á vankanta þess fyrir flutn-
ingastarfsemina að leggja hana í
gegnum farmsvæðin í Sundahöfn,“
sagði Gísli Gíslason hafnarstjóri
Faxaflóahafna í samtali við Morgun-
blaðið 24. september sl.
Gísli er að taka saman minnisblað
þar sem lagt er mat á áhrif þeirra
tveggja kosta sem starfshópurinn
telur raunhæfasta á hafnsækna
starfsemi við Sundahöfn, þ.e. jarð-
göng og lágbrú. Gísli vonast til að
geta skilað minnisblaðinu fyrir
næsta stjórnarfund Faxaflóahafna í
lok október.
Tvær mögulegar leiðir að lágbrú
Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur á Sundabrautin að liggja milli Holtagarða og Kleppsspítala
Morgunblaðið/Hallur Már
Tveir möguleikar Þessi drónamynd sýnir þær tvær leiðir sem koma til greina fyrir Sundabraut á lágbrú yfir Kleppsvík að Gufunesi. Fyrir miðri mynd er Holtavegurinn og til vinstri á myndinni
má sjá svæðið milli Holtagarða og Kleppsspítala, sem er nú á aðalskipulagi. Hvor leiðin sem valin yrði myndi valda því að flutningaskip gæti ekki siglt að Vogabakka, athafnasvæði Samskipa.
Slaufur Þessi mynd gefur hugmynd
um það hvernig gatnamót milli
Klepps og Holtagarða gætu litið út.
Lega Sundabrautar með lágbrú yfi r Kleppsvík
Tveir valkostir
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Lágbrú í fram-
haldi af Holtavegi
yfi r í Gufunes
Lágbrú frá
Vatnagörðum
yfi r í Gufunes
HAMRAR
GufuneshöfðiHoltagarðar
Holt
aveg
ur
Kleppur
Sundahöfn
Eimskip
Samskip
Sæ
braut
S
æ
b
ra
u
t
Gufunes
FOLDIR
RIMAR
Elliðaárvogur
Grafarvogur
Kleppsvík
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sundabraut hefur verið til umræðu í
næstum hálfa öld, eða frá árinu
1975, þegar hún var fyrst sett fram í
tillögu að aðalskipulagi Reykjavíkur
fyrir árin 1975-95. Þegar orðið
Sundabraut er sett inn á leitarvél
Vegagerðarinnar koma upp meira
en 100 niðurstöður.
Í hinum nýja samgöngusáttamála
ríkis og sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, sem nær fram til
ársins 2034, er Sundabraut ekki
nefnd á nafn. Hins vegar hefur
komið fram að Sundabraut sé meðal
þeirra stóru verkefna sem mætti
framkvæma í „sértækri gjaldtöku“
eins og það er orðað, og þá mögu-
lega í einkaframkvæmd.
Í viðtali við Morgunblaðið laugar-
daginn 21. september sl. sagði Sig-
urður Ingi Jóhannsson samgöngu-
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Kragelund stólar
K 406