Morgunblaðið - 03.10.2019, Page 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2019
Hjólastillingar
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
„Umferðaröngþveitið á höfuð-
borgarsvæðinu er að verða óbærilegt
fyrir íbúa þessa svæðis. Snemma á
morgnana og síðdegis er umferðin
svo gríðarleg að fólk kemst lítið
áfram. Þessi staða mála er ákaflega
þreytandi fyrir þá, sem á annað borð
eru á ferðinni á þessum tímum. Það
liggur í augum uppi að samgöngu-
kerfi höfuðborgarsvæðisins er ekki
hannað fyrir þessa miklu umferð og
sjálfsagt hefur fjölgun bíla orðið
langt umfram það, sem reiknað var
með. Öngþveitið er eftir sem áður
staðreynd.“
Nú gætu lesendur haldið að þessi
orð hefðu verið sett á blað í gær. Svo
er nú ekki, heldur birtust þau í for-
ystugrein Morgunblaðsins 1. nóvem-
ber 2006. Fyrir 13 árum. Já, fyrir 13
árum! Grein sinni lýkur höfundur á
þessa leið:
„Þetta er mesti vandi íbúa höfuð-
borgarsvæðisins.“
Einhvern tíma hefði þetta verið
kallað neyðarástand. En er svarið við
því meiri steypa, stál og malbik?
Orsakir og afleiðingar
Við Íslendingar erum sífellt að
glíma við afleiðingar af öllum sköp-
uðum hlutum. En allt of oft dettur
engum heilvita manni í hug að takast
á við orsök vandamálanna. Skáldið
okkar sagði sem svo að í hvert sinn
sem komið væri að kjarna máls hlypu
Íslendingar út og suður. Hver kann-
ast ekki við það?
Okkur spekingum hér vestra renn-
ur til rifja að fylgjast með þessum
ógöngum Sæluborgar okkar allra,
eins og Bjössi á Ósi kallar Reykjavík-
ina. Hún er nefnilega höfuðborg allra
Íslendinga.
Ein geggjuð hugmynd að vestan
Og er nú komið að erindinu:
Á Íslandi eru í dag rúmlega 300
þúsund bifreiðar og önnur ökutæki á
skrá. Sem sagt upp undir eitt stykki á
mann. Okkur finnst að í stað þess að
byggja endalaus samgöngu-
mannvirki ætti að snarfækka öku-
tækjum í umferðinni strax. Þá væri
tekið á raunverulegri orsök vandans.
Einkum á þetta við um Sæluborgina
okkar. En á landsbyggðinni þurfum
við fyrst og síðast að komast upp úr
moldarvegunum og huga sérstaklega
að þungaflutningum á landi með tilliti
til sjóflutninga.
Lýsingarorðið geggjaður er mjög
vinsælt um þessar mundir. Og er rétt
að spekingarnir að vestan slái nú
fram rétt einni geggjaðri hugmynd-
inni til umhugsunar fyrir landsmenn
og ráðamenn þeirra. Við höfum
nokkra reynslu af slíkri hugmynda-
vinnu og er alveg ókeypis hjá okkur!
Menn fái greitt fyrir minni
akstur í stað steinsteypu
Við leggjum til að ríkissjóður borgi
mönnum fyrir að minnka akstur
einkabíla eða aka þeim alls ekki. Með
nútímarafrænni tækni ætti að vera
hægt að framkvæma þetta auðveld-
lega. Það er nú fylgst með öðru eins
þessa dagana. Hver bíll fengi upp-
hafskvóta um áramót, t. d. 20 þús. km
miðað við meðalakstur einhver ár aft-
ur í tímann. Síðan keyrði hann aðeins
10 þús. km á árinu. Ríkiskassinn
myndi þá greiða fyrir 10 þúsund km
sem ekki voru eknir. Til dæmis 50-75
kr. pr. kílómetra. Þeir peningar
myndu fara beint út í hagkerfið í stað
þess að festast í steypu, stáli og mal-
biki og hvaðeina því tilheyrandi.
Þetta eru að sjálfsögðu frum-
hugmyndir til umræðu. Á þeim geta
verið ýmsar útfærslur með skynsem-
ina að leiðarljósi.
Þjóðhagslegur sparnaður yrði
væntanlega ómetanlegur!
Þjóðhagslegur sparnaður yrði
væntanlega gífurlegur af slíkum að-
gerðum. Almenningur fengi mikla
peninga í hendurnar í staðinn fyrir
hrikalega kostnaðarsöm umferðar-
mannvirki sem áður segir. Margt
mundi breytast til batnaðar ef að lík-
um lætur.
Þörfin fyrir ný samgöngu-
mannvirki myndi snarminnka.
Kannski upp á nokkur hundruð millj-
arða króna til lengri tíma litið. En
viðhaldi núverandi vega mætti ekki
gleyma og byggja vegi upp úr mold-
inni í sveitinni. Umferðarslysum
fækkaði væntanlega verulega. Sér-
fræðingar spá að þau muni kosta allt
að 50-60 milljarða á þessu ári. Og var
einhver að tala um bílakjallara upp á
tugi milljarða. Skotheld neðanjarðar-
byrgi?
Svo má hugsa sér eftirtaldar
hliðarráðstafanir sem kallaðar eru:
Sæluborgin mundi fjölga strætis-
vögnum og hafa ókeypis í strætó fyrir
alla. Fjölga ferðum um að minnsta
kosti helming eða eins og til þarf.
Borg og ríki í sameiningu hefðu sam-
vinnu um að gera leigubíla eins ódýr-
an og hagkvæman kost og hægt er
svo almenningur sjái sér hag í að nota
þá. Og svo auðvitað allir út að hjóla
eins og þar stendur! Fella niður öll
gjöld af reiðhjólum.
En mesti ávinningurinn af þessari
geggjuðu hugmynd er rúsínan í
pylsuendanum: Það er auðvitað að-
lögunin gegn komandi hörmungum
sem allir vita hverjar eru. Um 95%
sérfræðinga um heim allan eru sam-
mála um að við séum á beinni leið til
glötunar að óbreyttu. Ef unga fólkið
fattar það ekki er vá fyrir dyrum,
hvernig sem á er litið.
Neyðarástandið í Sæluborginni: Er svarið
við því meiri steinsteypa, stál og malbik?
Eftir Hallgrím Sveinsson,
Guðmund Ingvarsson og
Bjarna G. Einarsson
» Við leggjum til að
ríkissjóður borgi
mönnum fyrir að
minnka akstur einkabíla
eða aka þeim alls ekki.
Með nútímatækni má
framkvæma þetta auð-
veldlega.
Guðmundur Ingvarsson
Hallgrímur er bókaútgefandi, Guð-
mundur fyrrverandi stöðvarstjóri
Pósts og síma á Þingeyri og Bjarni
fyrrverandi útgerðarstjóri K.D. á
Þingeyri.
Hallgrímur Sveinsson Bjarni G. Einarsson
Áður fyrr fóru Reyk-
víkingar á bílum sínum
í miðborgina, löbbuðu
þar um og einnig
Laugaveginn, sér til
gamans. Nú er nánast
búið að loka fyrir þessa
skemmtigöngu borgar-
búa. Þetta var reyndar
á meðan Ísland var fyr-
ir Íslendinga. Nú eru
aftur á móti ferðamenn
þeir mikilvægustu og Íslendingar
þjónustulið þeirra og eiga að láta sem
minnst fyrir sér fara svo þeir trufli
ekki um of eðlilegt streymi ferða-
manna um borgina og helst ekki fara
um á einkabílnum svo menn tefji ekki
bílaleigubíla ferðamanna.
Engin áform eru um að fækka bíl-
um ferðamanna í borginni, þó að þeir
séu um ein og hálf milljón á ári.
Átroðninginn eiga íbúarnir að taka á
sig með því að greiða
veggjöld í borginni, þó
að Reykvíkingar hafi
borgað gatnakerfið með
útsvarinu og tekju-
skattskerfinu þá eiga
þeir að borga gatna-
framkvæmdir aftur
með veggjöldum vegna
ofurálags ferðamanna.
Þetta er ekki mikið
mál fyrir alþingismenn
og aðra hátekjumenn
því þeir eru yfirleitt á
bílum sem ríkið rekur
eða fyrirtækin sem hálaunamenn
vinna hjá. Það eru því verkamenn
sem verða verst úti vegna þessa
skattstofns Framsóknarflokksins og
Samfylkingar í borginni með stuðn-
ingi frá Vinstri grænum. Ég tel að
heppilegri leið væri að banna bíla-
leigubíla ferðamanna í borginni og
hafa strætó sem gengi á ákveðna
staði fyrir ferðamenn, að minnsta
kosti þar til gatnakerfið væri tilbúið
að taka á móti allri þeirri umferð og
álagi sem ferðamönnum fylgir. Það er
ekki eðlilegt að átroðningur ferða-
manna sé svo mikill að þjóðin bogni
undan álaginu. Neyðist jafnvel til að
yfirgefa svæðið og eftir verði þeir ein-
ir sem hafa aðeins einn hæfileika,
kunna að eyða peningum.
Veggjaldakerfið þarf nauðsynlega
að taka til skoðunar hjá stéttarfélög-
unum því þarna er um verulega tekju-
skerðingu að ræða umfram það sem
var til staðar þegar kjarasamningar
voru gerðir og eyða upp skattalækk-
unum sem lofað var í síðustu kjara-
samningum. Þarna er ráðherra að
læðast ofan í vasa manna og ná sér í
peninga til framkvæmda. Veggjöld
koma einnig mjög illa niður á eldri
borgurum sem enn búa á eigin heim-
ili, þeir eru hreinlega háðir því að nota
bílinn til að sækja þá þjónustu sem
þeir þurfa.
Mér finnst að við kjósendur höfum
verið óheppnir með töluverðan hluta
þess hóps sem okkur var boðið upp á
að kjósa í síðustu kosningum. Sumir
starfa eins og allt eigi að snúast um þá
og þeir séu allt of fínir til að vinna með
sumum þingmönnum. Þingmenn eru
kosnir af þjóðinni og þeir eiga allir að
vinna saman að málum þjóðarinnar,
hvort sem þeim líkar það betur eða
verr. Verði þingstörfin þingmanni of-
viða vegna andúðar á samstarfs-
mönnum á hann þann kost að víkja af
þingi og varamaður taki við. Við kjós-
endur ættum ekki þurfa að hlusta
endalaust á eineltisröfl gagnvart
ákveðnum þingmönnum. Tíma þings-
ins væri betur varið í þarfari umræðu.
Eru verkefnin þingmönnum
og borgarstjórn ofviða?
Eftir Guðvarð
Jónsson » Veggjaldakerfið þarf
nauðsynlega að taka
til skoðunar hjá stétt-
arfélögunum því þarna
er um verulega tekju-
skerðingu að ræða um-
fram það sem var til
staðar þegar kjara-
samningar voru gerðir.
Guðvarður Jónsson
Höfundur er eldri borgari.
Það var athygl-
isvert að fylgjast með
umræðu á hinu háa
Alþingi okkar að
kvöldi hins 11. sept-
ember sl. Þar tóku
þeir til máls þing-
menn okkar hver af
öðrum og í fram-
söguræðu sinni ræddi
forsætisráðherra okk-
ar, Katrín Jakobs-
dóttir, af miklum myndugleika um
hin ýmsu mál sem liggja fyrir
þingi okkar að leysa úr sem og
þau sem helst og fremst hvíla
þungt á okkur jarðarbúum, nefni-
lega umhverfismálin. Þar fór hún
skörpum orðum um þann vanda
sem að okkur Íslendingum sem og
öllum jarðarbúum steðjar með
ógnvænlegum áhrifum hlýnunar á
jörð okkar. Þurfum við ekki að
leita langt til að sjá með eigin aug-
um þau skelfilegu áhrif sem hin
miklu hlýindi hafa á plánetu okkar.
Skoðum árið sem er að líða: Hin
miklu hlýindi suður um alla Evr-
ópu og ekki bara suður um álfuna
heldur einnig í austri, í Rússlandi,
hjá þjóð sem hefur í gegnum ald-
irnar treyst á siglingar á stór-
fljótum sínum vítt og breitt um hið
mikla land sem þeir búa í.
Fréttamiðlar heimsins voru ekki
bara fullir af fréttum af því að
siglingar stöðvuðust víða á stór-
fljótum þessa stóra lands vegna
þess að þær voru vatnslitlar eða
vatnslausar vegna hinna miklu
þurrka sem gengið hafa í landinu,
en Rússar hafa í þúsundir ára get-
að treyst á siglingar á stórám sín-
um og það var ekki bara að sigl-
ingar stöðvuðust vegna þurrka,
heldur barðist rússneska þjóðin við
mikla þurrka og skógarelda í norð-
urhéruðum sinum og það í norð-
anverðri Síberíu sem þekkt er fyr-
ir sína köldu veðráttu. Það liggur
við að menn skjálfi af
kulda þegar minnst er
á Síberíu en þar hafa
svo miklir skógareldar
geisað að ekki dugði
að slökkvilið Rússana
berðust við eldana
heldur varð að kalla á
aðstoð rússneska hers-
ins til aðstoðar við
slökkvistörf. Hugsið
ykkur, þetta var norð-
an heimskautsbaugs,
hafa einhverjum dottið
í hug skógareldar norðan baugs-
ins? Reyndar börðust Kan-
adamenn einnig við skógarelda í
sínum heimskautahéruðum.
Dettur virkilega einhverjum í
hug að forsætisráðherra okkar sé
að fara með rangt mál þegar hún
varar við hinum ógnandi áhrifum
mengunar á jörð vora. Stöldrum
við og leggjum vandlega við hlust-
ir. Föllum ekki sjálf í hina válegu
gildru að horfa fram hjá þeim
áhrifum sem alls staðar blasa við á
jörð okkar og hrópum húrra fyrir
forsætisráðherra okkar. Hún lengi
lifi og megi góður guð vera með
henni á hennar ferli. Áfram Katr-
ín, hvikaðu hvergi frá þinni heil-
næmu braut og skoðunum. Það
kann að muna um rödd okkar þó
að ekki séum við stór þjóð. Við er-
um þó á norðurslóð þar sem þess-
ara áhrifa kann að gæta fyrr og
meir en í öðrum hlutum heimsins.
Samanber bráðnun hafíssins og
opnun siglingaleiða um norðurhvel
jarðarinnar.
Eldhúsdags-
umræður þing-
manna okkar
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar Magnússon
» Föllum ekki sjálf í
hina válegu gildru
að horfa fram hjá þeim
áhrifum sem alls staðar
blasa við á jörð okkar.
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdastjóri.