Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 3
Ritstjóraspjall
Í tilefni þess að Tímarit hjúkrunarfræðinga kemur nú aftur út
á prenti eftir að hafa verið gefið út í app-útgáfu um nokkurt
skeið var efnt til ljósmyndasamkeppni til að prýða forsíðu
blaðsins undir yfirskriftinni Með augum hjúkrunarfræðingsins.
Forsíðumyndin, sem valin var úr á þriðja tug ljósmynda, er eftir
Elnu Albrechtsen en hún var tekin á hjartadeild 14EG fyrir
verkefni í starfsþróun hjá nýjum hjúkrunarfræðingum á hjar-
tadeildinni.
Tímaritið verður nú gefið út að vori og hausti jafnframt því
að haldið verður úti vefriti á nýrri vefsíðu, hjukrun.is, sem er í
vinnslu, þar sem uppfærsla á efni verður meiri, leit og flokkun
verður stórbætt og vonumst við til að þessi breyting verði af
hinu góða. Þá verður enn hægt að fletta blaðinu rafrænt sem
og að lesa einstakar greinar. Greinar eða hugmyndir að efni og
viðmælendum eru vel þegnar því blaðið verður skemmtilegra
með þátttöku ykkar lesenda.
Helga Ólafs.
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 93. árg. 2017 3
Efnisyfirlit
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sími 540 6405
Netfang helga@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Helga Ólafs. Ritnefnd: Ásta Thoroddsen, Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir, Áslaug
Birna Ólafsdóttir, Dóróthea Bergs, Margrét Hrönn Svavarsdóttir, Þorgerður Ragnarsdóttir, Þórdís Katrín
Þorsteinsdóttir. Blaðamaður: Ragnheiður Gunnarsdóttir. Forsíðumynd: Elna Albrechtsen. Ljósmyndir: ýmsir.
Yfirlestur og próförk: Ragnar Hauksson. Auglýsingar: Guðrún Andrea Guðmundsdóttir, sími 540 6412.
Hönnun og umbrot: Egill Baldursson ehf.
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu ritstjori@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræði-
greina er að finna á vefsíðu tímaritsins.
ISSN 2298-7053
Félagið
Bls. 4 Formannspistill.
— 6 Nýjar siðareglur Félags íslenskra hjúkr unarfræð inga.
— 7 Með augum hjúkrunarfræðingsins forsíðumyndakeppni.
— 10 Starfshlutfall hjúkrunarfræðinga aldrei verið lægra. Lítill
hvati að hækka starfs hlutfall og lítill hljómgrunnur fyrir
breyt ingum eftir Gunnar Helgason.
Pistlar
Bls. 14 Ill meðferð á öldruðum eftir Ragnheiði Gunnarsdóttur.
— 16 Samstaða og samkennd eftir Aðalbjörgu Helgadóttur.
— 28 Þankastrik: Tölum um handleiðslu eftir Helenu Braga-
dóttur.
Viðtöl
Bls. 19 Þriðjungur hjúkrunarfræðinga á Eir er frá Filippseyjum.
Viðtal við Moniccu Tulagan og Ian Glenn Munoz.
— 23 Er verið að gjaldfella fagmennskuhugtakið í hjúkrun?
Viðtal við Klöru Þorsteinsdóttur.
— 26 Engar einfaldar lausnir á samskiptavanda á vinnustað.
Viðtal við Evu Hjörtínu Ólafsdóttur.
Fagið
Bls. 30 Geðheilbrigði til framtíðar eftir Aðalbjörgu Finnboga-
dóttur.
— 32 Árin sem enginn man: Áhrif frumbernsku á börn og full-
orðna eftir Stefaníu B. Arnardóttur.
— 36 Geðheilbrigði barna og unglinga: Forvarnir og fram-
tíðar sýn eftir Kristínu Ingu Grímsdóttur.
— 40 „Bifhárin lamast“: Unga fólkið, áfengis- og fíknivandi og
forvarnir eftir Helenu Bragadóttur.
— 42 Við getum — Ég get. „Krabbamein kemur okkur öllum
við.“ 20 ára afmæli fagdeildar krabbameinshjúkrunar -
fræð inga.
— 56 Nýlegar doktorsvarnir í hjúkrunarfræði
— 60 Ritrýnd grein: Notkun FINDRISK-mats tækisins til að
meta hættu á sykursýki af tegund 2: Megindleg rannsókn.
tímarit
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
the icelandic journal of nursing 1. tbl. 2017 • 93. árgangur