Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 17
Fólkið02/06 í HvEragErði stendur lágreist hús sem lætur lítið yfir sér en hýsir mikilvæga starfsemi. Þetta er Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands. Þar starfar Gréta Berg, hjúkrunarfræðingur og myndlist- arkona. Meðal þess sem hún starfar við þar er myndsköpun með andlegu ívafi sem byggist á listmeðferð. Unnið er í þögn, með hug- leiðslu og tilfinninguna hið innra. Þetta er flæðivinna sem virkar vel og kveikir á losun streitu, bætir svefn og gleður. Gréta var tekin tali fyrir stuttu og spurð um starf sitt. „Ég kalla þetta myndsköpun þar sem ég er ekki útlærð, en áhuginn fyrir sköpunarmætti lita vaknaði á listmeðferðarnámskeiði hjá Sigríði Björnsdóttur listmálara og listþerapista. Ég var svo þreytt og alveg búin á því og fann þessa berskjöldun sem svo margir upplifa þegar þeir koma á svona listanámskeið, fannst þetta svaka erfitt, en ég vaknaði inn á við og fann að þetta var eitthvað heilagt fyrir mig. Mér fannst þessi innri vinna vera góð, eiginlega lykillinn að öllu,“ segir Gréta. Bakgrunnurinn „Ég er fædd á Akureyri og alin upp undir miklum spíritismaá- hrifum þar,“ segir hún og hverfur smástund aftur í tímann. „Svo flutti ég til Reykjavíkur árið 1997, fór að vinna á Reykjalundi og tók nokkur námskeið í þessu í Endurmenntun HÍ. Það var alveg æðislegt, það var svo gaman,“ segir hún og hlær. „Ég byggi námskeiðin mín upp á sama hátt og Endurmenntun, finnst uppbyggingin mjög góð. Ég hef starfað sem hjúkrunarfræðingur í fjörutíu ár og er búin að teikna og mála síðan ég man eftir mér, hef haldið fjölda sýninga og er með sýningu heima núna,“ segir hún og áhuginn leynir sér ekki. „Ég vinn aðallega sem klínískur hjúkrunarfræðingur, vinn með stuðningsviðtöl tvo daga í viku og tvo daga í viku með myndsköpun og flétta svo margt annað inn í myndsköpunina. Svo er ég jóga- kennari líka, lærði svo margt um orkustöðvarnar í því. Það besta sem ég veit er að fara í jógabúðir, vera bara í jóga, borða og hugsa inn á við. Ég fór í FB og lærði undirstöðu myndlistar þar, en hef líka sótt alls konar myndlistarnámskeið.“ „Í myndsköpuninni er fólk að vinna með liti og hver litur stendur fyrir ákveðnar tilfinningar.“

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.