Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 21
Fólkið06/06 ónæmiskerfið styrkist. Líkamsfrumur hafa minni og þú getur treyst á hvaða tilfinningar innsæið vill nota þótt þú skiljir það ekki fyrr en seinna,“ útskýrir hún. „Auðvitað er hægt að komast þangað eftir öðrum leiðum sem hjúkrunarfræðingar beita. Það er til dæmis dáleiðsla hér og svo auð- vitað hreyfingin, við hreyfingu batnar til dæmis þunglyndið. Það er sjúkraþjálfun til staðar og svo öll umhyggjan og samskiptin. Útiveran, staðurinn, friðurinn, trén og gróðurinn: Móðir Jörð. Hjúkrunin er virðingin fyrir sjúklingnum, það að gefa af sér, vera hlýr og láta fólk ekki finna að það sé byrði heldur að það sem við gerum fyrir fólk sé sjálfsagt. Svo er það félagsskapurinn, skemmtanirnar, sundlaugin, maturinn – allt er þetta jákvætt hér. Vinnuandinn er mjög góður hér á Heilsustofnun, allir svo viljugir, glaðir og góðir,“ segir hún og brosir út að eyrum. dásamlegt starf „Ég er orðin sextíu og sex ára og heppin að vera heilbrigð. Ég á fjögur börn og fjögur ömmubörn. Ég man þegar ég var að byrja að læra, þá fór ég fyrst í Myndlistar- og handíðarskólann. Svo fór ég í hjúkrunina, þetta var lífsmottó að geta unnið fyrir mér, myndlistarmenn gátu það ekki á þeim tíma. Þetta var dásamlegur tími, ég vann á geðdeild og bæklunardeild, vann mikið á kvöldvöktum enda komin með fjöl- skyldu,“ segir hún og útskýrir að þá þurfti ekki eins mikla pössun. „Ég bið með fólki ef mér finnst að ég eigi að gera það, ég sé blikið. Ég tók allt inn á mig hér áður fyrr, en er búin að læra að loka á það núna. Ég elska það að hjúkra, finnst það yndislegt að geta hjálpað einhverri manneskju og slegið á óöryggi hennar. Mér gengur vel að nálgast fólk. Það dásamlegasta sem ég get gert er að hjálpa fólki að ná í sig og tilfinningar sínar aftur. Hjálpa fólki að ná í tilfinninguna um góða tíma og gleði og geta nálgast hana þegar það þarf á að halda. Það er ofboðslega gaman að finna það að maður er stundum að gera kraftaverk og fólk ljómar á ný,“ segir hún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.