Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 27
Fagið02/09
grEin þEssi byggist á erindi sem ég hélt á málþingi um kennslu og
rannsóknir í hjúkrunarfræði sem haldið var til heiðurs Mörgu Thome
við starfslok hennar í Háskóla Íslands. Þar fjallaði ég um breytingar
á hjúkrunarmenntun á Vesturlöndum og lagði áherslu á flutning
hjúkrunarmenntunar á háskólastig í Evrópu og Norður-Ameríku,
og hin ólíku sjónarmið sem tekist var á um. Einnig leitaðist ég við
að skýra stöðu hjúkrunarmenntunar á Vesturlöndum nú við upphaf
tuttugustu og fyrstu aldar.
Umbætur í hjúkrunarmenntun voru eitt helsta baráttumál
forsvarsmanna hjúkrunarstéttarinnar alla tuttugustu öldina. Við
stofnun Alþjóðasambands hjúkrunarfræðinga (ICN) árið 1899 töldu
stofnendur þess mikilvægt að þeir sem störfuðu við hjúkrun hefðu
hlotið starfsleyfi. Að þeirra mati var þriggja ára hjúkrunarnám
forsenda starfsleyfis (Bursh o.fl., 1999). Þessi krafa var eitt af baráttu-
málum hjúkrunarkvenna, meðal annars á Norðurlöndunum á fyrstu
árum síðustu aldar. Hún var sett fram af danska hjúkrunarfélaginu
sem var stofnað árið 1899 (Petersen, 1998) og af norska hjúkrunar-
félaginu sem stofnað var 1912 (Narvik, 2005). Við stofnun Félags
íslenskra hjúkrunarkvenna árið 1919 var eitt af meginmarkmiðum
félagsins að styðja stúlkur til hjúkrunarnáms. Hér á landi varð hin
þriggja ára námskrá fyrirmynd, líkt og í mörgum öðrum löndum
(Kristín Björnsdóttir, 2005; María Pétursdóttir, 1969; Margrét
Guðmundsdóttir, 2010).
Hugmyndin um að nám í hjúkrunarfræði ætti heima á háskólastigi
á sér einnig langa sögu. Í Norður-Ameríku hófst háskólakennsla í
hjúkrunarfræði um aldamótin 1900 og um miðja öldina var háskóla-
nám orðið nokkuð útbreitt, bæði í Bandaríkjunum og Kanada, þótt
hefðbundið hjúkrunarnám, sem fór fram í hjúkrunarskólum tengdum
sjúkrahúsum, væri enn algengast (Lynaugh, 2008). Í Evrópu komst
hins vegar ekki hreyfing á slík mál fyrr enn eftir miðja tuttugustu öld
þótt hugmyndin hafi átt áhrifamikla talsmenn alla öldina (Brooks og
Rafferty, 2010). Staðan breyttist þó hratt og er leið að lokum aldar-
innar og við upphaf tuttugustu og fyrstu aldar var hjúkrunarnám víða
í heiminum komið á háskólastig.
Á Íslandi hófst nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973
og frá 1986 hefur allt nám í hjúkrunarfræði verið í háskólum hér
á landi. Fyrsti fastráðni kennarinn við námsbraut í hjúkrunarfræði