Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 63
Fagið05/14
markmið í lungnaendurhæfingu
Sjúklingur setur sér markmið í samráði við teymi sitt og vinnur að
þeim yfir meðferðartímann. Markmiðsfundur er haldinn með sjúk-
lingi og teymi hans ef þörf er á því. Algengustu markmið sjúklinga í
lungnaendurhæfingu á Reykjalundi má sjá í töflu 2.
Árangur lungnaendurhæfingar
Góður árangur lungnaendurhæfingar næst með heildrænni og
þverfaglegri vinnu. Samkvæmt ATS (2013) eru helstu áhrif hennar:
Aukið þrek, úthald og líkamleg færni
Minni mæði
Meiri lífsánægja
mæling lífsmarka: Blóðþrýstingur, púls og
súrefnismettun.
slökun: Einstaklingsslökun, hópslökun.
Meðferð til slímlosunar: Hóstahvatning,
lungnabank, úðavél.
mat á súrefnisþörf: Mæling og mat á súr-
efnismettun í hvíld, röltpróf (mæling og mat á
súrefnismettun á göngu).
undirbúningur svefnrannsóknar:
Einstaklingsfræðsla, tenging eða aftenging
búnaðar.
meðferðarhópur, hópfræðsla og einstaklings-
fræðsla: Næringarfræðsla og mat á næringará-
standi (vigt, mittismál og líkamsþyngdarstuðull):
Fræðsla og stuðningur fyrir of létta eða of þunga
lungnasjúklinga.
meðferð til reykleysis: Áhugahvetjandi samtal,
fræðsla, stuðningur, mæling kolmónoxíðs.
Hópeflis- og kynningarfundur fyrir nýkomna
lungnasjúklinga.
Fræðsla um rétta notkun innöndunarlyfja:
Verkleg færni kennd.
Öndunartækni: Mótstöðuöndun, djúpöndun,
tónlistarmeðferð með munnhörpu.
súrefnisfræðsla: Stuðningur, verkleg færni
kennd.
mat á árangri endurhæfingarhjúkrunar: Virk
hlustun, spurningarlistar (MAT, HAD, CAT,
Epworth).
annað: Áhugahvetjandi samtöl, virkjun fjöl-
skyldu, samráð um markmiðssetningu, andlegur
stuðningur, sálfélagslegur stuðningur, sjúkdóma-
fræðsla, heilsulæsi, virk hlustun.
taFla 1. Hjúkrunarmeðferð sjúklinga í lungnaendurhæfingu á Reykjalundi.
Tóbaksleysi
Minni mæði
Aukið þrek og úthald
Betri öndunartækni
Mat á súrefnisþörf
Minni hósti
Minni/enginn slímuppgangur
Rétt notkun innöndunarlyfja
Minni þreyta
Betri neysluvenjur
Bætt næringarástand
Betri svefn
Bætt andleg líðan
Minni kvíði
Minni depurð
Minni verkir
Minni spenna/streita
Aukin þekking
Bætt félagsleg virkni
Meiri lífsánægja
taFla 2. Markmið í lungnaendurhæfingu.