Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 60
Fagið02/14
Hjúkrun gegnir mikilvægu hlutverki í þverfaglegri endurhæfingu.
Lungnasjúklingar eru langveikt fólk og er hjúkrunarmeðferð þeirra
sinnt í heilsugæslu, heimahjúkrun, á sjúkrahúsum, í endurhæfingu og á
dvalarheimilum aldraðra.
tilEFni grEinarinnar er fræðslufundur um hjúkrun lungnasjúklinga
sem boðað var til af fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga vorið
2015. Í greininni er lögð áhersla á endurhæfingarhjúkrun fólks með
langvinna lungnasjúkdóma sem oft er fast í vítahring hreyfingarleysis
og mæði. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í endurhæfingu er að vinna með
sjúklingum í að rjúfa þennan vítahring. Í því felst meðal annars að
kveikja von um bata, veita stuðning og efla trú á betri heilsu.
Reykjalundur er eina endurhæfingarstofnun sinnar tegundar á
Íslandi sem býður upp á þverfaglega endurhæfingarmeðferð fyrir
lungnasjúklinga árið um kring. Markmið slíkrar endurhæfingar er
að bæta færni lungnasjúklinga, daglega virkni þeirra og lífsánægju,
ásamt því að draga úr samfélagslegum kostnaði.
endurhæfingarhjúkrun
Endurhæfingarhjúkrun er sérhæfð grein innan hjúkrunar sem
byggist á viðurkenndum alþjóðlegum rannsóknum (Hoeman, 2009).
Hugmyndafræðin er heildræn, einstaklingshæfð, teymismiðuð og tekur
mið af kenningum um umhyggju og siðfræði. Markmiðið er að koma til
móts við þarfir sjúklinga með fötlun og langvarandi veikindi og veita
stuðning, fræðslu og sérhæfða hjúkrun. Hjúkrunin byggist á gagn-
reyndri þekkingu á meðferð sjúklinga sem glíma við flókna sjúkdóma
og hafa margvíslegar þarfir (Jónína Sigurgeirsdóttir og Sigríður
Halldórsdóttir, 2008). Leitast er við að hindra aukaverkanir sem gætu
hlotist af veikindum, bæta aðlögunarhæfni og viðhalda heilsueflandi
lífsvenjum. Eitt af hlutverkum hjúkrunarfræðings í endurhæfingu er að
vera málsvari sjúklinga og samhæfa vinnu þeirra og fagaðila sem koma
að meðferðinni. Sjúklingur í endurhæfingu tekur þátt í að skipuleggja
meðferð sína og er virkur innan teymisins. Einnig þarf að huga að fjöl-
skyldunni, samsetningu hennar og virkni (Association of Rehabilitation
Nurses, 2014). Hjúkrunarfræðingar á Reykjalundi hafa tekið virkan
þátt í að efla þessa sérfræðigrein innan hjúkrunar, meðal annars með
rannsóknum, kennslu, námskeiðum og lengra framhaldsnámi.