Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 50
Fólkið02/06
Einn af aðalræðumönnunum á ráðstefnunni Integrative nursing,
sem haldin var í Reykjavík í maí sl., var Jos de Blok. Hann rekur afar
forvitnilegt fyrirtæki í Hollandi þar sem boðið er upp á heimahjúkrun.
Jos og samstarfskona hans frá Bandaríkjunum, Michelle Michels, tóku
sér tíma til að útskýra inntak og stefnu fyrirtækisins fyrir lesendum
Tímarits hjúkrunarfræðinga.
jos dE Blok las hagfræði í háskóla en hætti eftir nokkur ár og snéri
sér að hjúkrun. Hann hefur fimmtán ára reynslu meðal annars frá
legudeildum á spítala og úr geðhjúkrun en hefur aðallega starfað í
heilsugæslu og heimahjúkrun. Þá var hann einnig lengi í stjórnunar-
stöðum innan heilsugæslunnar. Árið 2006 stofnaði hann fyrirtækið
Buurtzorg en á íslensku mætti útleggja nafnið sem hverfisumönnun
eða umönnun á heimaslóðum.
Öflugt fyrirtæki
„Ég var ekki ánægður með hvernig hlutirnir voru í Hollandi,“ segir
Jos. „Heimahjúkrunin var orðin að framleiðsluferli þar sem miðað
var við að skila afurðum og klukkustundum. Siðfræði fagmanna hafði
minna og minna vægi og þetta leiddi af sér versnandi umönnun,
hærri kostnað og ergelsi meðal hjúkrunarfræðinga. Hugmynd mín var
að ef þessu yrði snúið við og kastljósinu beint að hjúkrunarfræðingun-
um og skjólstæðingum þeirra þá mundu gæðin batna, kostnaður
minnka og hjúkrunarfræðingar yrðu ánægðari í starfi.“ Þetta hljómar
eins og óskhyggja en hefur gengið eftir. Athuganir gerðar af virtum
fyrirtækjum eins og Ernst&Young og KPMG hafa sýnt að Buurtzorg
þarf 35-40% færri klukkustundir en önnur fyrirtæki til þess að sinna
sjúklingum sínum en þeir eru samt talsvert ánægðari. „Annað sem
hefur verið kvartað yfir í Hollandi er hversu brotakennd umönnunin
er orðin. Skjólstæðingurinn getur fengið allt að 40 starfsmenn í
heimsókn á einum mánuði og fyrirtækin hafa ráðið fólk með minni
og minni menntun til þess að lækka kostnaðinn á hverja klukkustund.
Hjúkrunarfræðingunum er sagt að sinna ekki umönnun en við vildum
gera þetta öðruvísi. Það verður að sameina umönnun og sérhæfðari
hjúkrun. Á þann hátt fá hjúkrunarfræðingarnir tækifæri til að kynnast
skjólstæðingnum og árangurinn verður betri.“
Í Hollandi hafa allir heilbrigðistryggingu og sjúklingurinn