Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 61
Fagið03/14
Styðjum sjúka til sjálfsbjargar
Reykjalundur er í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúk-
linga en þar fer fram læknisfræðileg, sálfélagsleg og andleg endur-
hæfing. Það voru sterkir og framsýnir einstaklingar sem sameinuðust
um að stofna SÍBS 1938 og starfsemi hófst á vinnuheimilinu að
Reykjalundi 1. febrúar 1945. Í upphafi starfaði þar ein hjúkrunar-
kona, Valgerður Helgadóttir. Hún var ráðin, ásamt lækni, tveimur
árum áður en stofnunin tók til starfa. Var hún fyrsta hjúkrunarkonan
á Íslandi sem byggði upp heilan spítala eða endurhæfingarstofnun
(Gils Guðmundsson, 1988). Valgerður Helgadóttir (2011) sagði í
grein, upphaflega birt 1950, að sér hefði lærst fljótt að sjúklingarnir
„… höfðu þann undraverða stálvilja og þrautseigju, sem meðvitundin
um að vera ekki lengur ómagi, heldur þátttakandi í miklu þjóðnýtu
starfi, gaf þeim.“ Þetta er hægt að sjá enn í dag og býr Reykjalundur
yfir meira en 70 ára reynslu í endurhæfingarhjúkrun lungnasjúklinga.
En samhliða fjölgun faghópa í þverfaglegri endurhæfingu hefur
hjúkrunarmeðferðin þróast og orðið sérhæfðari.
Nú á öðrum áratug 21. aldar starfar í lungnateymi Reykjalundar
fólk sem hefur mikla sérþekkingu og reynslu af teymisstarfi. Í teymi
hvers sjúklings er hjúkrunarfræðingur, heilsuþjálfari, félagsráðgjafi,
iðjuþjálfi, læknir, sálfræðingur, sjúkraliði, sjúkraþjálfari og ritari.
Teymið tengist í gegnum sameiginleg verkefni, vinnur þvert á fagleg
landamæri og deilir ábyrgð á niðurstöðum (Lemieux-Charles og
McGurie, 2006). Hjúkrunarfræðingar lungnasviðs starfa sem hluti
af slíku teymi þar sem allir leggja fram sína sérfræðiþekkingu, bera
ábyrgð og kappkosta að skila tilætluðum árangri. Þeir eru sífellt að
upplifa sigra með sjúklingum.
Lungnaendurhæfing
Sérhæfð og þverfagleg lungnaendurhæfing ætti að standa öllum
til boða sem glíma við langvinnan lungnasjúkdóm (ATS [American
Thoracic Society], 2013). Beiðni um endurhæfingu á Reykjalundi þarf
að koma frá lækni en eyðublaðið má finna á heimasíðu Reykjalundar.
Á lungnasviði Reykjalundar geta verið allt að 23 sjúklingar
í endurhæfingu á hverjum tíma – á fimm daga dagdeild með
möguleika á gistingu eða á hjúkrunardeild þar sem veitt er hjúkrun
allan sólarhringinn. Reykjalundur þjónar öllu Íslandi þannig að