Morgunblaðið - 23.11.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
Andrés Magnússon blaðamaðurritar um skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um Rúv. í Viðskiptablað-
ið í vikunni. Þar segir hann:
„Óhætt er að segja að þetta sé
svört skýrsla, veru-
legur áfellisdómur
bæði yfir stjórn-
endum RÚV og um-
gerð þess að lögum.
Það er því nánast
grátbroslegt að lesa
þau viðbrögð
stjórnar RÚV að
skýrslan staðfesti
stórfenglegan árangur liðinna
ára.“ Þetta eru athyglisverð skrif
um áfellisdóm og umhugsunarvert
með hvaða hætti stjórnvöld hafa
(ekki) brugðist við gagnvart þeim
sem mesta ábyrgð bar. Um það
segir Andrés: „Auðvitað væri rétt-
ast að hlutaðeigandi starfsmenn
væru allir látnir sæta ábyrgð, en
það er víst ekki hægt að losa fleiri
störf hjá Þjóðleikhúsinu, svo það
er tómt mál að tala um.“
Andrés segir einnig: „Það semmest stingur í augu er sjálf-
sagt sú staðreynd að Ríkisútvarpið
hefði orðið ógjaldfært ef ekki
hefði komið til lóðabrasks í Efsta-
leiti.“
Þetta er auðvitað sérstakt, enverra er þó hve einbeittur
brotavilji Rúv. hefur verið þegar
kemur að lögum. Andrés rekur að
Rúv. hafi ekki talið sig þurfa að
fara að lögum um stofnun dóttur-
félags þar sem aðgreining í bók-
haldi sé skýr og að íslensku lögin
gangi lengra en evrópskar reglur.
„Þetta þykja ríkisendurskoðanda
fáfengilegar viðbárur og bendir
embættið þurrlega á að það sé
ekki valkvætt að fara að lögum,
RÚV beri sem öðrum að fara að
lögum,“ segir Andrés.
Hvað veldur því að Rúv. telursig hafið yfir lög?
Andrés
Magnússon
Svarta skýrslan
um Ríkisútvarpið
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
skipulags- og samgönguráði hafa
lagt fram tillögu þess efnis að
Reykjavíkurborg reisi minnisvarða
um Auði Auðuns í borgarlandinu.
Listasafni Reykjavíkur verði falið að
velja listamann til að hanna minnis-
varðann og umhverfis- og skipulags-
sviði verði falið að finna honum stað í
borgarlandinu. Tillögunni var vísað
til menningar- og ferðamálasviðs og
umhverfis- og skipulagssviðs til
meðferðar.
Í greinargerð
með tillögunni
kemur fram að
víða í borgarland-
inu megi finna
höggmyndir eða
minnisvarða um
þekkta karlmenn
úr sögunni.
Þeirra kvenna
sem lögðu mark sitt á söguna sé síð-
ur minnst með þessum hætti. Lista-
safn Reykjavíkur hafi tileinkað árið
2019 list í almannarými og því sé
ekki úr vegi að leiðrétta þennan halla
og minnast Auðar.
„Auður fæddist 1911, árið sem ís-
lenskar konur öðluðust rétt til skóla-
göngu, námsstyrkja og embætta til
jafns við karla. Fáar konur hagnýttu
réttinn fyrst um sinn en 19 ár liðu
þar til fyrsta konan hóf laganám við
Háskóla Íslands. Sú var vitaskuld
Auður Auðuns. Auður lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1929 og var semidúx við útskrift.
Auður lauk fyrst kvenna embættis-
prófi í lögfræði árið 1935. Hún varð
fyrst kvenna til að gegna embætti
borgarstjóra (1959-1960) og fyrst
kvenna til að gegna embætti ráð-
herra (1970-1971),“ segir í greinar-
gerðinni.
Auður Auðuns fæddist 18. febrúar
1911 á Ísafirði. Hún var varaþing-
maður 1946 og 1947. Alþingismaður
Reykvíkinga var hún 1959-1974 fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Auður lést 19.
október 1999. sisi@mbl.is
Minnisvarði um Auði Auðuns
Auður Auðuns
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
U
Fallegar aðventuskreytingar
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Við erum með tugi
fyrirtækja á söluskrá
Um er að ræða fyrirtæki í verslun, innflutningi,
útflutningi, matvælaframleiðslu, iðnaði, ferðaþjónustu,
skiltagerð, veitingarekstri, skyndibita og ísgerð
Ráðgjafar / eigendur
Haukur Þór Hauksson, Rekstrarhagfræðingur, MBA
Gsm. 8939855
Thomas Möller, Hagverkfræðingur, MBA
Gsm. 8939370
• Áhugaverður bar / klúbbur í 101 Rvík.
• Þrjú mjög áhugaverð tækifæri í veitingarekstri.
• Öflugt bílasprautunarverkstæði í góðu húsnæði.
• Meðalstórt iðnfyrirtæki með góða afkomu. Ebitda um 20 milljónir.
• Tvö áhugaverð tækifæri í ferðaþjónustu, á sviði afþreyingar og
gistingar.
• Tískuverslun sem er leiðandi á sínu sviði, mjög góð arðsemi.
• Tvær sérverslanir á Laugaveginum, jöfn sala, góð afkoma.
• Leitum að fjárfestum í tvö áhugaverð verkefni.
• Sérhæft fyrirtæki sem vinnur aukaafurðir úr fiski og flytur út.
• Innflutningsfyrirtæki með vörur til fyrirtækja, góð umboð og traust
viðskipti.
• Veitingarekstur á golfvelli á höfuðborgarsvæðinu.
• Sérhæft iðnfyrirtæki sem meðhöndlar yfirborð málma, mjög öflugur
rekstur.
Meðal fyrirtækja á söluskrá eru þessi: