Morgunblaðið - 23.11.2019, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S
Ágúst Ingi Jónson
aij@mbl.is
Framkvæmdir ganga vel við Vífils-
búð, nýjan skála skátafélagsins Víf-
ils í Garðabæ við Grunnuvötn í
Heiðmörk, og er fyrirhugað að taka
skálann í gagnið næsta vor en
skóflustunga var tekin í sumar.
Samkvæmt samningi milli Garða-
bæjar og Skátafélagsins Vífils legg-
ur sveitarfélagið 150 milljónir
króna til verkefnisins sem greiðast
á þremur árum og er miðað við að
heildarkostnaður fari ekki umfram
þá upphæð.
Stendur hátt í Heiðmörkinni
Björn Hilmarsson er formaður
húsnefndar skátafélagsins sem hef-
ur jafnframt umsjón með fram-
kvæmdum við Grunnuvötn. Hann
segir að nú sé búið að steypa
sökkla og fljótlega verði platan
steypt. Í vetur verði húsið, sem
verður úr timbri, byggt á staðnum
að mestu. Eftir nokkra yfirlegu var
sú leið metin heppilegri en að ráð-
ast í innflutning, að sögn Björns.
Björn segir að húsið muni standa
í um 130 metra hæð yfir sjávarmáli
og verði hugsanlega það hús á
höfuðborgarsvæðinu sem standi
hæst. Aðkoma að svæðinu er eftir
gömlum línuvegi frá Heiðmerk-
urvegi upp Vífilsstaðahlíð og vinnur
skátafélagið að endurbótum á hon-
um í samvinnu við Landsnet sem á
veginn. Lögð hefur verið inn beiðni
til Veitna um heimtaug að húsinu
fyrir rafmagn. Þá er unnið að frá-
veitu- og vatnsveitumálum fyrir
skálann.
Starfsemi í anda skátastarfs
Með tilkomu útilífsmiðstöðvar-
innar skapast betri möguleikar á að
efla áhuga barna og unglinga á
starfsemi skátafélagsins og verður
húsnæðið notað til að starfrækja
fjölbreytta uppeldisstarfsemi í anda
skátahreyfingarinnar. Garðabær
getur jafnframt notað húsnæðið
fyrir tómstunda- og fræðslu-
starfsemi á vegum leik- og grunn-
skóla bæjarins.
Við undirskrift samnings um
framkvæmdir lýstu samningsaðilar
yfir áhuga á að húsnæðið verði
nýtt sem áningarstaður í útivist al-
mennings t.d. í skipulögðum úti-
vistarviðburðum í Heiðmörk á veg-
um bæjarfélagsins og skáta-
félagsins. Björn segir að til lengri
tíma sé draumur skáta að þarna
verði tjaldstæði og hægt verði að
halda þar skátamót.
Sama afmælisgjöfin tvisvar
Björn rifjar upp forsögu skála-
byggingarinnar sem spannar
meira en áratug. Árið 2007 hafi
Vífill fengið í 40 ára afmælisgjöf
frá Garðabæ samning um að
byggður yrði nýr skátaskáli. Þá
hafi verið á áætlun að hann yrði
við Hjallaflatir fyrir ofan göngu-
leiðina að Búrfellsgjá. Við banka-
hrunið hafi allt frosið og einnig
hafi komið í ljós að Hjallaflatir
voru á vatnsverndarsvæði Hafn-
firðinga.
Ný staðsetning hafi fundist við
Grunnuvötn í Heiðmörk, en nokk-
ur sveitarfélög eigi land að Heið-
mörk og hafi framkvæmdin því
þurft að fara í aðalskipulag hjá
viðkomandi sveitarfélögum. Árin
liðu og 2017 átti félagið 50 ára af-
mæli og á þeim tímapunkti var
ákveðið að setja kraft í verkefnið
og nú sé miðað við að miðstöðin
verði tilbúin næsta vor.
Hugur í fólki
Björn segir að bæjarfélagið hafi
nýverið hóað saman fulltrúum fé-
lagasamtaka sem eru með starf-
semi á þessum slóðum. Þar hafi
mætt fulltrúar skáta, skógræktar-
félagsins og hestamannafélaga, en
nýlega hafi verið tekinn í notkun
nýr reiðvegar um svonefnda
Grunnuvatnaleið. „Það var hugur í
fólki á fundinum og tilhlökkun að
efla samstarfið á þessum slóðum,“
segir Björn.
Skátar í Garðabæ eiga eldri
skála, gamla Vífilsbúð, og er hann
rétt fyrir ofan golfvöll Odds. Stefnt
mun að því að gamli skálinn verði
seldur.
Vífilsbúð rís við Grunnuvötn
Útilífsmiðstöð skáta í Garðabæ í Heiðmörk Tilbúin næsta vor Afmælisgjöfin tafðist í meira en áratug
Vífilsbúð Nýi skátaskálinn verður myndarleg bygging sem stendur hátt á fallegum stað í Heiðmörk.
Heiðm
erkurvegur
Arnarnesrvegur
Ellið
ava
tns
veg
ur
Elliðavatnsve
gur
Vífi ls-
staða-
vatn
Urriða-
vatn
Útilífsmiðstöð skáta
við Grunnuvötn
í Heiðmörk
Urriðavöllur
Vatnsenda-
hæð
Vífi ls-
staðir
H E I Ð M Ö R K
H E I Ð M Ö R K
K Ó
P A
V O
G U
R
R E
Y K
J A
V Í
K
G
A
R
Ð
A
B
Æ
R
Rey
kjan
esb
rau
t
Útilífsmið-
stöð skáta
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Grunnu-
vötn
Framkvæmdir Búið er að steypa
sökkla og næst á dagskrá er að
steypa plötu.
Skátastarf er öflugt í Garðabæ, að
sögn Björns, og segir hann að það
megi þakka nokkrum þáttum. Hann
nefnir að lengi hafi skátar í Garðabæ
haft öfluga foringja í sínum röðum,
skátafélagið eigi einnig sterkan hóp
eldri skáta sem komi að starfinu á
ýmsan hátt og þjónustusamningur
við bæinn sé félaginu dýrmætur, en
með honum hafi m.a. verið hægt að
ráða starfsmann í hlutastarf.
Garðabær úthlutaði skátunum
þrjú þúsund fermetra lóð við
Grunnuvötn fyrir útilífsmiðstöðina
og er gert ráð fyrir að húsið sjálft
verði um 200 fermetrar að gólffleti
og þar að auki um 100 fermetra
svefnloft. Skátafélagið Vífill stendur
að byggingu hússins og ber ábyrgð
á framkvæmdum.
Húsnefnd nýja skálans fékk
Jónatan Smára Svavarsson frá Þró-
unarfélagi Íslands til að leiða verk-
efnið við Grunnuvötn áfram fyrir
hönd skátafélagins.
Sigurður Hallgrímsson hjá Ark-
þingi arkitektum, er hönnuður
skátamiðstöðvarinnar, verkfræði-
stofan VerkÍs sér um verkfræðilega
hönnun og ráðgjöf en Hnullungur
sér um jarðvegsvinnu og vegagerð.
Verktaki við sjálfa bygginguna er
fyrirtækið Hagsmiður en B.B.-
rafverktakar sjá um raflagnir og
Heimir og Jens ehf. sjá um pípu-
lagnir.
Öflugt skátastarf í Garðabæ
NÝR SKÁLI 200 FERMETRAR AÐ GRUNNFLETI
Vaskur hópur Í húsnefnd skátafélagsins Vífils eru Atli B. Bachmann, Jóhann S.
Erlendsson, Björn Hilmarsson og Brynjar Hólm Bjarnason.