Morgunblaðið - 23.11.2019, Qupperneq 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
Jón L. Árnason lék fyrsta leik-inn á Ísey-skyrs-skákhátíð-inni sem hófst á Hótel Sel-fossi sl. mánudag og er
haldin í tilefni 30 ára afmælis SSON,
Skákfélags Selfoss og nágrennis. Af
nokkrum skákviðburðum sem efnt
hefur verið til af þessu tilefni ber
hæst lokað mót 10 skákmanna sem
eiga það sameiginlegt að hafa á ein-
hverjum tímapunkti fagnað heims-
meistaratitli ungmenna í sínum ald-
ursflokki.
Jón L. var fyrstur Íslendinga til
að vinna þetta afrek í Cagnes sur
mer við frönsku rivíeruna haustið
1977. Meðal keppenda þar var hinn
14 ára gamli Garrí Kasparov. Tíu ár-
um síðar endurtók Hannes Hlífar
Stefánsson afrek Jóns og sama ár
vann Héðinn Steingrímsson heims-
meistaratitilinn í flokki barna 12 ára
og yngri. Helgi Áss Grétarsson varð
svo heimsmeistari unglinga 20 ára
og yngri árið 1994.
Vel hefur tekist til með þá kepp-
endur sem þarna tefla. Jón L. kom
því ekki við að tefla á mótinu en
þarna eru tvær ungar stúlkur, önnur
frá Íran og hin frá Kasakstan, báðar
fyrrverandi heimsmeistarar í
stúlknaflokki.
Eftir þriðju umferð á fimmtu-
dagskvöldið var staðan þessi: 1.
Antipov (Rússland) 2½ v. 2.-3.
Lomason (Rússland) og Leitao
(Brasilía) 2 v. 4.-6. Hannes Hlífar
Stefánsson, Zhigalko (Hvíta-
Rússland) og Adly (Egyptaland) 1½
v. 7.-10. Helgi Áss Grétarsson, Héð-
inn Steingrímsson, Sadukassova
(Kasakstan) og Khademalsharieh
(Íran) 1 v.
Rússnesku skákmennirnir, Anti-
pov og Lomasov, komu skemmtilega
fyrir. Þegar þeir voru nýlentir seinni
part mánudags eftir langt ferðalag
frá Moskvu litu þeir við í Stúkunni á
Kópavogsvelli og tefldu við unga
skákmenn sem voru mættir á æf-
ingu. Búast má við þeim í baráttunni
um sigurinn enda taktarnir
skemmtilegir sbr. eftirfarandi skák
sem tefld var í fyrstu umferð:
Ísey-skyr-skákhátíðin; 1. umferð:
Dinara Sadukassova – Mikhail
Antipov
Grunfelds-vörn
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4.
cxd5 Rxd5 5. h4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7.
h5
Gallinn við þessa leið er kannski
sá að það vantar smá kraft til að
fylgja henni eftir. En bjartsýnin er
ósvikin.
7. … c5 8. e4 Rc6 9. Bb5 Bg4 10.
Db3 Bxh5 11. Rg5?!
Annar möguleiki og ekki síðri var
11. Rh2 sem hótar 12. g4. Svartur
getur svarað því með 11. … g5.
11. … 0-0 12. Rxh7
Lítur vel út en í meðförum Anti-
povs virkar atlagan eins og vind-
gustur á þakskeggi.
12. … Kxh7 13. g4 Rd4!
Snarplega leikið og upphafið að
magnaðri gagnsókn. 14. cxd4 er
svarað með 14. … Dxd4 sem hótar
hróknum á a1 og 15. … Dxe4+.
14. Db1 Rf3+ 15. Ke2 Dc8! 16.
gxh5 Dg4 17. hxg6+ Kg8 18. Kf1
Rh4 19. Ke1.
(Skárra var 19. Hxh4 Dxg4 20.
Bc4 e6 21. Dd3 en svarta staðan er
léttunnin eftir 21. … Had8 o.s.frv.)
19. … Rg2+ 20. Kf1 fxg6 21. Be2
21. … Hxf2+! 22. Kf2 Hf8+ 23.
Kg1 Re3+!
– Glæsilegur lokahnykkur. Hvítur
gafst upp því að mát er óumflýj-
anlegt:
23. Bxg4 Hf1+ 24. Kh2 Be5+ 25.
Kh3 Hxh1 mát.
Keppni í opnum flokki mótsins
hófst á fimmtudaginn. Tefldar verða
sjö umferðir. Þar eru meðal 19 kepp-
enda Hjörvar Steinn Grétarsson,
Guðmundur Kjartansson, Jón Vikt-
or Gunnarsson, Bragi Þorfinnsson
og Björn Þorfinnsson.
Umgjörð mótsins er með miklum
ágætum og er heimasíðan, sson.is/
selfoss-chess-festival/, t.a.m. afar vel
heppnuð.
Heimsmeistara-
þema á Selfossi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Páll Jökull.
Fyrsti leikurinn Jón L. Árnason leikur riddaranum fram fyrir Sadukassovu.
Nú þegar aðventan nálgast óð-
fluga fá mörg okkar fiðring af spenn-
ingi fyrir því sem fram undan er;
gleðinni í augum barnanna, jóla-
bakstri og tónleikum, samveru með
fjölskyldu og vinum svo ekki sé
minnst á jólagjafirnar. Á sama tíma
sækir einmanaleikinn að mörgum.
Það hlakka ekki allir til jólanna eða
gleðjast á þessum dimmustu dögum
ársins. Við hjá Rauða krossinum
leggjum okkur fram, nú sem á öðrum
tíma ársins, að veita
stuðning og félagsskap
þeim sem á þurfa að
halda. Rauði krossinn
starfrækir fjölmörg
vinaverkefni um allt
land. Á ýmsum stöðum
koma hópar saman til
að spjalla og vera sam-
an, grípa jafnvel í
prjóna eða smíða. Í
mörgum bæjarfélögum
starfa sjálfboðaliðar
sem heimsóknarvinir
og kíkja í kaffi og njóta
samvista við gestgjafa
sem oft og tíðum eru fé-
lagslega einangraðir af
ýmsum ástæðum eða
vantar einfaldlega
meiri félagsskap.
Hundavinir eru senni-
legast krúttlegasti
„sjálfboðaliðahópur“
Rauða krossins, en það
eru hundar sem staðist
hafa stranga þjálfun og heimsækja
ýmsar stofnanir, s.s. öldrunarheimili
og sjúkrastofnanir, sem og einka-
heimili, og veita félagsskap, nærveru
og hlýju. Áætlað er að heimsókn-
arvinir á öllum aldri, þar á meðal
hundavinir, heimsæki á annað þús-
und manns í hverri viku.
Sjálfboðaliðinn Ólafur fer í heim-
sóknir á stofnanir með tíkina Emblu
þar sem þau hitta fjölda fólks en að-
spurður segir Ólafur: „Það er af-
skaplega gefandi að taka þátt í þessu
stórmerka framtaki Rauða krossins
enda er Embla einstakur gleðigjafi
með fallega sál og hefur eignast
marga vini sem bíða þess með
óþreyju að hún birtist.“ Við erum af-
skaplega stolt af öllum
okkar vinaverkefnum
og getum alltaf bætt við
okkur sjálfboðaliðum
sem og gestgjöfum.
Hundarnir prýða
jólamerkimiða Rauða
krossins í ár, en þeir
hafa verið gefnir út og
bornir í hús frá árinu
1996. Við vonum að þeir
hafi nýst vel síðastliðin
23 ár, skreytt pakka í
gegnum tíðina og muni
gera svo áfram, en við
hvetjum þau sem geta
til að greiða fyrir mið-
ana og styðja þannig
innanlandsstarf Rauða
krossins með SMS-inu
JOL í 1900, í netbank-
anum eða með gíróseðli
sem fylgir jólamerki-
miðunum.
Rauði krossinn vill
einnig minna á hjálparsímann 1717
og netspjallið, sem er opið allan
sólarhringinn, allan ársins hring –
líka þegar klukkan slær sex á að-
fangadag. Sjálfboðaliðar hlusta og
veita stuðning. Ekkert er hjálpar-
símanum óviðkomandi og ekkert
vandamál of stórt eða lítið.
Njótum aðventunnar saman og
hugsum ekki aðeins til þeirra sem
minna mega sín heldur heimsækjum
þau, hlustum og styðjum og eflum
öflugt starf Rauða krossins um allt
land.
Samvera og stuðn-
ingur á aðventu
Eftir Brynhildi Bolladóttur
»Rauði kross-
inn á Íslandi
minnir á mik-
ilvægi samveru
og stuðnings á
aðventu.
Heimsóknarvinir Sjálfboðaliðinn
Ólafur og tíkin Embla.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Rauða krossins.
brynhildur@redcross.is
Brynhildur Bolladóttir
Ljósmynd/Margrét Lúthersdóttir
Halldór Kristján Friðriksson
fæddist á Stað í Grunnavík 19.
eða 27. nóvember 1819. For-
eldrar hans voru hjónin Friðrik
Kristján Eyjólfsson og Sigríð-
ur Ólafsdóttir.
Halldór varð stúdent frá
Bessastöðum 1842 og las guð-
fræði í Hafnarháskóla en tók
ekki próf. Hann var kennari við
Lærða skólann í Reykjavík
1848–1895 og yfirkennari frá
1874. Hann var bæjarfulltrúi í
Reykjavík 1854–1861, 1873–
1879 og 1880–1900, formaður
stifts-, síðar landsbókasafns-
nefndarinnar 1874–1899 og for-
seti Húss- og bústjórnarfélags
suðuramtsins (Búnaðarfélags
Íslands) 1868–1896.
Halldór var alþingismaður
Reykvíkinga 1855–1864 (vara-
þingmaður 1855 og 1857),
1869–1885 og 1892–1893, kon-
ungkjörinn alþingismaður
1865–1867. Hann seldi Alþingi
kálgarð sinn, þar sem Alþingis-
húsið var byggt, fyrir 2.500 kr.
sem þótti óheyrileg upphæð.
Halldór samdi kennslubæk-
ur, þar á meðal stafrófskver,
um réttritunarreglur, íslenska
málmyndalýsingu og danska
málfræði. Hann var ritstjóri
Fjölnis 1846–1847.
Eiginkona Halldórs var
Charlotte Caroline Leopoldine,
fædd Degen. Þau eignuðust sjö
börn.
Halldór lést 23. mars 1902.
Merkir Íslendingar
Halldór Kr.
Friðriksson
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is