Morgunblaðið - 23.11.2019, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 23.11.2019, Qupperneq 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019 ✝ Hjörtur JónssonHjartar fæddist 11. júní 1948 á Flat- eyri við Önundar- fjörð. Hann lést á taugadeild Land- spítalans 17. nóv- ember 2019. Foreldrar hans voru hjónin Jón F. Hjartar, íþrótta- kennari og skrif- stofumaður frá Suðureyri við Súgandafjörð, f. 15. ágúst 1916, d. 31. maí 1996, og Ragna H. Hjartar, bankastarfsmaður frá Flateyri við Önundarfjörð, f. 3. júlí 1927, d. 11. nóvember 2019. Bræður Hjartar eru Friðrik J. Hjartar prestur, f. 8. október 1951, kvæntur Önnu Nils- dóttur, og Rúnar J. Hjartar vélvirkjameistari, f. 27. sept- ember 1958. Kona hans er Ás- laug Arndal. Hjörtur kvæntist 14. mars 1970 Jakobínu Sigríði Sig- tryggsdóttur, f. 21. janúar 1948. Foreldrar hennar voru Sigtryggur Klemenzson seðla- bankastjóri, f. 20. ágúst 1911, d. 18. febrúar 1971, og Unnur Pálsdóttir húsfreyja, f. 23. maí 1913, d. 1. janúar 2011. Hjörtur og Jakobína eign- uðust tvö börn. Þau eru 1) forstöðumaður hjá Olíuverzlun Íslands og hagfræðingur Fé- lags íslenskra iðnrekenda. Hann hóf störf hjá Eimskipa- félagi Íslands 1987. Fjöl- skyldan fluttist til Rotterdam 1989 þar sem hann veitti starfsstöðvum Eimskips for- stöðu. Í sömu erindagjörðum fóru þau til Hamborgar og Gautaborgar og síðast Árósa fram til 2006, með stuttu stoppi á Íslandi um aldamótin þegar Hjörtur var fram- kvæmdastjóri TVG Zimsen. Frá 2006 fram til 2008 var Hjörtur í viðskiptaþróun- arverkefnum í Bosníu og Kró- atíu og seinna vann hann í sérverkefnum fyrir Arion banka. Hjörtur var í stjórn og stjórnarformaður Orf Líftækni frá 2010 til 2017 og formaður FIVE Invest ehf. fram á dauðadag. Hjörtur var virkur félagi í Oddfellow-reglunni, Skýrslu- tæknifélagi Íslands sem og Sænsk-íslenska viðskipta- ráðinu. Hjörtur og Jakobína áttu stóran vinahóp og félags- skapurinn í Union of Icelandic Badminton Players og göngu- hópnum Sigurtá var honum mikilvægur og voru farnar margar ferðir bæði innanlands og utan. Útför hans verður gerð frá Neskirkju í dag, 23. nóvember 2019, klukkan 14. Sigtryggur Klemenz, f. 30. júlí 1970, kvænt- ur Ragnheiði Guðmundsdóttur. Fjögur börn þeirra eru Hjört- ur Páll, f. 1993, Herdís Helga, f. 1995, Halldór Klemenz, f. 2000, og Helena Krist- ín, f. 2011. 2) Ragna, f. 5. júní 1983. Sam- býlismaður hennar er Simon Reher. Sonur þeirra er Hjört- ur S. Hjartar, f. 2017. Hjörtur lauk gagnfræða- prófi frá Núpi í Dýrafirði 1966, símvirki frá Póst- og símaskólanum 1969. Próf í kerfisfræði frá Ålborg Handelsskole (EDB-skolen) 1974. HA í viðskiptafræði frá Álaborgarháskóla 1977. Cand. merc. í rekstrarhagfræði frá sama skóla 1979. Hjörtur var starfsmaður í tölvudeild Loftleiða hf. frá 1970 til 1973 þegar hann hélt til náms í Danmörku. Hann vann með námi í tölvudeild Aalborg Kommune og rekstr- ardeild Álaborgarháskóla eftir nám. Hjörtur fluttist aftur til Íslands 1980 og varð rekstrar- ráðgjafi hjá Hagvangi, Ótrúlega heppin. Hvernig væri hægt að ímynda sér betri pabba? Þetta er okkar tilfinning þegar við kveðjum ástkæran föð- ur okkar núna á laugardaginn eftir erfið veikindi. Pabbi okkar ólst upp á Kamb- inum á Flateyri og fór í fyrsta skipti til útlanda þegar hann var 25 ára til náms. Þessi ferð mark- aði líf okkar allra þar sem bæði foreldrar okkar og við öll bjugg- um á ýmsum stöðum í Evrópu síðan þá. Það var ekkert sem við gerð- um sem hann hafði ekki áhuga á. Hann studdi við bakið á okkur í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Hafði ómælda bjartsýni fyrir okkar hönd og trú á því sem við vorum að gera. Hann hafði sterka réttlætiskennd, stóð fast á sínu en var alltaf opinn fyrir rökræðu og að greina stöð- una. Hann var líka nákvæmnis- maður og stundum svolítið pirr- aður á að við börnin hans höfðum ekki erft alla hans hæfileika á því sviði. Hann sagði alltaf frekar já heldur nei. Hans dyr voru alltaf opnar fyrir gestum og hann naut þess að vera í góðra vina hópi. Hann var örlátur og höfðingi heim að sækja. Hvar sem þau bjuggu eignuðust þau nána vini og oft hlupu þau undir bagga með fólki sem þurfti á því að halda. Á síðustu árum hefur verið gaman að fylgjast með honum takast á við formennskuna í Orf Líftækni. Hann hellti sér í það verkefni og það var honum mikið áhugamál fram á síðasta dag. Pabbi greindist með MND- sjúkdóminn ALS í byrjun 2014. Hann tókst á við sjúkdóminn af æðruleysi og jafnaðarskapi og sá lausnir þar sem við hin sáum vandamál. Hann klæddist upp á hvern einasta dag. Það var öllum augljóst að foreldrar okkar ræktuðu vinagarð sinn í gegnum ævina og sást það vel á því hvernig vinir þeirra stóðu ötult að baki þeim í gegnum veikindin. Ótrúlegast af öllu er þó hvernig mamma tókst á við þetta verk- efni og lyfti grettistaki. Hún á okkar ævarandi þakkir ómælda virðingu skilið. Við komum til með að sakna hans óendanlega mikið. Sigtryggur Klemenz Hjartar, Ragna Hjartar. Þegar Þóra amma okkar á Akranesi lést skaut upp þeirri spurningu hver yrði næstur, þar sem hún var síðasti hlekkurinn af þeirri kynslóð. Sama hugsun læddist að mér þann 11. þessa mánaðar þegar móðir okkar kvaddi þetta líf. Svarið kom fyrr en varði. Það er ekki óeðlilegt að kveðja 92 ára gamla konu sem átt hefur gott líf og vissulega er söknuðurinn fyrir hendi. Sýnu átakameira er að sjá á bak Hirti bróður á góðum aldri, en hann hefur jafnan verið mikilvæg fyr- irmynd sem gott var að líta til. Hann var mikill heimsmaður. Lærði og starfaði erlendis og jafnan umkringdur stórum og góðum vinahópi, en gestrisnin var rík hjá fjölskyldunni og ætíð gaman og gefandi að njóta sam- félags þeirra hjóna. Á menntaskólaárum mínum naut ég þess að búa á heimili þeirra í tvo vetur. Ég fékk strax matarást á Jöggu og naut þeirra forréttinda endrum og sinnum að passa Klemma lítinn. Löngum stundum þar á eftir skildu okkur lönd og höf. Við hjónin fórum í brúðkaupsferð til þeirra í Álaborg og eigum góðar minningar frá heimsóknum til Þýskalands og Hollands. Sam- eiginlega héldum við upp á brúð- kaupsafmæli okkar beggja á heimili þeirra í Árósum. Hjörtur var einstakur maður sem sýndi fólki áhuga, var skemmtilegur, hjálpsamur og átti einstaka skaphöfn. Í veikindum hans hafa Jagga, fjölskyldan og vinirnir staðið ein- stakan vörð um velferð hans og ef einhver ætti að fá orðu er það Jagga fyrir hversu vel hún hefur annast alla hagi hans. Það er sérstakt að kveðja bæði móður og bróður á sama tíma, en mynd þeirra í huganum er full af ljósi og fallegum litum sem ekki verða frá okkur teknir. Við Anna þökkum fyrir gengin spor og felum þau góðum Guði og biðjum hann að leiða og styðja Jöggu, Klemma, Rögnu og fjölskyldur, vinina og alla sem eftir standa. Friðrik J. Hjartar. Það er hálf öld liðin síðan Jagga systir mín kynnti Hjört Hjartar, verðandi eiginmann sinn, fyrir fjölskyldunni og í mars næstkomandi hefðu þau átt gullbrúðkaup. Okkur yngri systrunum fannst spennandi þegar þær eldri eignuðust kær- asta og við vorum hæstánægðar með val þeirra. Hjörtur hafði með eindæmum gott geðslag. Hann var þolinmóður, um- hyggjusamur og elskulegur. Því fór þó fjarri að það væri logn- molla í kringum hann. Hann hafði góða nærveru og naut þess að gera sér glaðan dag í góðra vina hópi. Á Núpi lærði hann að dansa og hafði gaman af að tjútta af lífi og sál. Hann og Jagga voru einstak- lega bóngóð, alltaf reiðubúin að rétta fram hjálparhönd og tilbú- in að lána manni hvað sem var, jafnvel heimilið sitt. Nám og seinna vinna bar fjöl- skylduna á erlenda grund og þangað var ekki leiðinlegt að heimsækja þau. Á námsárum Hjartar undu þau sér vel í Ála- borg og heimili þeirra stóð opið öllum sem vildu. Hjörtur var óþreytandi að fara með gestina um allar trissur og sýna þeim helstu merkisstaði hvort sem þeir tengdust fjölskyldunni, þjóðinni eða heimsmálunum. Honum fannst ekkert tiltökumál að aka um Evrópu þvera og endilanga ef svo bar undir. Vinahópur Hjartar og Jöggu er stór og traustur. Hvar sem þau bjuggu var alltaf líf og fjör í kringum þau og mikill og vel- kominn gestagangur hvort sem það var í Reykjavík, Álaborg, Rotterdam, Hamborg, Gauta- borg, Króatíu eða Árósum. Þau iðkuðu golf, skíði og göngur og Hjörtur að auki badminton í hópi góðvina. Stuttu eftir aldamótin tóku nokkrir af gömlu vinunum sig saman, buðu nýrri vinum með og hófu að fara í árlegar gönguferð- ir á erlendri grundu og seinna meir einnig innanlands. Við hjónin vorum svo heppin að til- heyra þessum hópi, sem hlaut heitið „Sigurtá“ eftir fallegum garði við Gardavatn sem hópur- inn heimsótti. Innan hópsins myndaðist skemmtileg stemning þar sem hinir ýmsu meðlimir fengu ákveðin hlutverk en ekki verður farið nánar út í það hér. Það var mikið áfall fyrir alla þegar Hjörtur greindist með MND-sjúkdóminn fyrir um það bil sex árum. Sjúkdóm sem er svo óvæginn og engin bót er gegn. En æðrulaus aðlagaði hann sig breyttum aðstæðum. Hann hélt áfram að fylgjast með þjóðmálum og skeggræða við vini sína, sem sýndu honum inni- lega og trygga vináttu með reglulegum heimsóknum. Aldrei heyrðist Hjörtur kvarta yfir ör- lögum sínum. Hann naut dyggr- ar umönnunar Jöggu og stuðn- ings barna sinna, fjölskyldu og vina. Hann hélt reisn sinni og átti í góðum samskiptum við ætt- ingja og vini fram á síðasta dag. Nánasta fjölskylda á um sárt að binda því með tæplega viku millibil falla bæði Hjörtur og móðir hans Ragna frá og send- um við fjölskyldunni okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Jóhanna Sigtryggsdóttir, Guðjón Steingrímsson. Svili minn og kær vinur, Hjörtur Hjartar, er látinn á 72. aldursári. Fyrir um fimm árum greindist hann með skelfilegan hrörnunarsjúkdóm, MND. Þrátt fyrir að vera bundinn við hjóla- stól og geta sig hvergi hreyft tók Hjörtur örlögum sínum af karl- mennsku og miklu æðruleysi. Hann notaði tölvu og fylgdist vel með því sem fram fór bæði á Ís- landi og annars staðar. Hirti kynntist ég þegar hann og Jagga, mágkona mín, giftu sig árið 1970. Okkur varð strax vel til vina og úr varð náin vinátta sem aldrei bar skugga á. Hjörtur var þægilegur í umgengni, róleg- ur og yfirvegaður. Hann var greiðvikinn og alltaf tilbúinn að reiða fram hjálparhönd. Lengst af starfaði Hjörtur hjá Eimskipafélagi Íslands, bæði á Íslandi og sem forstöðumaður félagsins á ýmsum stöðum í Evr- ópu. Hann naut ávallt velgengni í starfi og var vinsæll starfsmað- ur, enda sannkallaður öðlingur. Þá var hann stjórnarformaður Orf Líftækni, en sagði sig úr stjórninni fyrir nokkrum árum vegna veikinda. Hann fylgdist þó alltaf vel með starfsemi fyrir- tækisins og velgengni þess. Kletturinn í lífi Hjartar var Jagga. Hún var stoð hans og stytta í veikindum hans og sam- an börðust þau við þennan illvíga sjúkdóm. Einnig var aðdáunar- vert að sjá hversu margir ætt- ingjar og vinir studdu vel við bakið þá þeim. Í sumar hafði Hjörtur orð á því að hann óskaði þess að móðir hans, Ragna Hjartar, fengi hvíldina á undan sér. Sú varð raunin en hún lést viku fyrr. Við leiðarlok vil ég þakka svila mínum og vini fyrir samferðina. Við Anna vottum Jöggu, Klemma, Rögnu og fjölskyldum þeirra innilega samúð við fráfall þeirra mæðgina. Jón Ingvarsson Kær vinur og góður félagi er fallinn frá. Ég vil kveðja hann með nokkrum minningar- og þakklætisorðum. Virðing, aðdáun og þakklæti kemur strax fram í hugann. Hjörtur var allt í senn traustur, hjálpsamur og greiðvikinn, fé- lagslyndur, gestrisinn og rausn- arlegur, glettinn húmoristi, skoðanafastur, en athugull og pólitískur í þess orðs bestu merkingu. Hjörtur var veraldarvanur maður. Menntaður í Danmörku og átti að baki farsælan og fjöl- breyttan starfsferil í alþjóðleg- um verkefnum víða um heim. Heimili og fjölskylduhagir þeirra Jöggu báru þess fagurt merki. Sterk dönsk áhrif komu meðal annars fram í einstakri huggu sem umlukti þau hjónin hvar sem komið var til þeirra, hvort sem var í Rotterdam, Hamborg, Danmörku, Skerjafirði, á Mýr- argötunni eða í drykk á hótelher- bergi í Ölpunum. Danska hugtakið „hygge“ á sömu málfarsrætur og hugtakið umhyggja. Umhyggja þeirra og hlýja var jafnan við völd þegar þau opnuðu heimili sitt og faðm fyrir okkur vinunum sem var ósjaldan. Fjölskyldan, Jagga, börnin, tengdabörn og barnabörnin voru honum kær og fengum við vinir hans að fylgjast með fréttum af þeim, þegar tekið var spjall i vinahópnum. Hjörtur var stoltur af sínu fólki og hafði ríka ástæðu til þess. Hann hafði unun af góð- um samræðum og oft gaf hann okkur vinum sínum ábendingar um áhugavert lesefni og undir- rituðum þá gjarnan volgar frétt- ir af AP Möller og dönsku við- skiptalífi. Leiðir okkar Hjartar lágu saman á vettvangi Félags iðn- rekenda, í badmintonklúbbnum Union, í golfi, á skíðum, í leikfimi með Vöskum öldungum og á ferðalögum hér heima og að heiman. Á öllum þessum víg- stöðvum var Hjörtur virkur, skemmtilegur og hvetjandi. Allt- af tilbúinn að ganga í verk sem leysa þurfti. Svarið nei var ekki til í hans huga – sjálfsagt, ekkert mál, var viðkvæðið. Hjónin Hörtur og Jagga voru alla tíð einstaklega samstillt og samtaka í leik og starfi á lífs- göngunni. Í veikindum Hjartar sýndu þau bæði aðdáunarvert og fáheyrt æðruleysi, styrk og þol- gæði. Báru ávallt jákvætt og uppbyggilegt viðhörf til lífsins. Sama má segja um börnin þeirra og þeirra nánustu. Það er engu líkara en Hjörtur og Jagga hafið tekið inn í lífs- viðhorf sitt heilræði úr Fjallræð- unni, sem margir hugsa og íhuga, en fæstir geta tileinkað sér: „Hafið ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagur- inn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þján- ing.“ (Mt 6:34) Að upplagi var Hjörtur lítillát- ur, orðvar og grandvar maður, sem hallmælti aldrei náungan- um. Guð styrki elskulega Jöggu okkar og fjölskyldu á þessari sorgarstundu. Við Inga og fjöl- skylda okkar kveðjum kæran vin með söknuði og virðingu en um- fram allt miklu þakklæti. Þakk- læti fyrir að hafa verið í háttum og hegðun okkur samferðafólk- inu góð fyrirmynd. Minningin um mætan og góðan mann mun lifa. Kristján Jóhannsson. Fyrstu kynni okkar Hjartar voru haustið 1982 þegar hann og Sigurður Skagfjörð hófu að stunda badminton í KR-heim- ilinu þar sem fyrir var á sama tíma sex manna hópur, sem ég tilheyrði, á tveimur völlum. Í okkar hópi voru meðal annars strákar sem höfðu verið samtím- is Hirti og Sigurði við nám í Dan- mörku og þekktust vel. Er skemmst frá því að segja að þeim félögum var snarlega kippt inn í okkar hóp. Í framhaldinu byggðist upp órofa vinátta sem nú hefur staðið í 37 ár og aldrei borið skugga á. Auk undirritaðs og þeirra Hjartar og Sigurðar eru í hópnum Jens Pétur Hjalte- sted, Jón Eiríksson, Kristján Jó- hannsson, Sigmundur Hannes- son og Þórður Valdimarsson. Hópurinn sem síðar fékk nafnið Union og of langt mál er að skýra, hefur lengst af stundað badminton í tvo tíma á laugar- dögum með tilheyrandi sturtu- spjalli. Þar hafa þjóð- og heims- málin verið rædd og oftast leyst, þar til fyrir fáum árum að íþróttameiðsl settu strik í reikn- inginn. Félagið kom sér upp eig- in myndmerki, sem skrýðir bún- inga, fána og fleiri hluti, sem tengjast félaginu, svo og lögum og ýmsum hefðum, sem allt er í anda góðs húmors og vináttu. Þessi vinátta þróaðist fljótt út í vaxandi samveru með okkar mökum og fjölskyldum af ýms- um tilefnum. Árshátíðir haldnar á heimilum okkar, þar sem við félagarnir sáum um eldamennsk- una og eiginkonurnar voru send- ar í dekur. Þá héldum við mörg sumur fjölskylduhátíð í Skorra- dal, golfmót auk ferða til út- landa. Að öðrum ólöstuðum kom fumkvæðið að mörgum samveru- stundum hópsins hvað oftast frá Hirti með góðum stuðningi hans góðu eiginkonu, Jakobínu. Nutu sín þar hans framúrskarandi eig- inleikar, frumkvæði, dugnaður, góður húmor og einlæg vinátta gagnvart hópnum. Að ekki sé talað um einstaka gestrisni þeirra hjóna. Meðan Hjörtur starfaði erlendis stóðu þau hjón fyrir nokkrum heimsóknum hópsins til þeirra. Frá þeim heimsóknum eigum við margar ljúfar minningar, en ekki síður skondnar og skemmtilegar, sem ekki verður farið nánar út í hér, en koma í máli og myndum, þeg- ar saga félagsins verður skráð. Hjörtur var kappsfullur keppnismaður, kvikur í hreyf- ingum og gaf sig ekki fyrr en í fulla hnefana í íþróttum og leik. Sama gilti um hans störf, sem hann sinnti af miklum dugnaði, eljusemi og áhuga. Hann hafði sterkar skoðanir og færði fyrir þeim ígrunduð rök. Í erfiðum veikindum undan- farin ár hafa allir hans góðu mannkostir nýst til þess ótrúlega æðruleysis, sem hann sýndi fram á síðasta dag. Stuðningi og um- hyggju Jöggu er verður ekki lýst með orðum. Þótt sjúkdómurinn hafi smátt og smátt minnkað getu hans fann hann alltaf leið til að geta fylgst með þjóð- og heimsmálum og lét ekki sitt eftir liggja í rökræðum þar sem leiftr- andi húmorinn var aldrei langt undan. Elsku Jagga, fyrir hönd okkar Maju, fjölskyldu okkar og ann- arra Union-félaga, maka þeirra og fjölskyldna, sendi ég þér og fjölskyldu ykkar Hjartar innileg- Hjörtur J. Hjartar Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.