Morgunblaðið - 23.11.2019, Page 64
Yfirlitssýning á verkum Guðjóns
Samúelssonar, húsameistara rík-
isins 1920-1950, sem stendur yfir í
Hafnarborg, hefur vakið mikla at-
hygli. Á morgun, sunnudag, kl. 14
verður sýningarstjórinn, Pétur H.
Ármannsson, með leiðsögn um sýn-
inguna sem sett er upp í tilefni þess
að öld er nú liðin frá því að Guðjón
lauk háskólaprófi í byggingarlist,
fyrstur Íslendinga, árið 1919.
Segir frá verkum
Guðjóns Samúelssonar
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 327. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Það er leiðinlegt að lenda í ein-
hverju svona slysi, sem maður get-
ur ekkert gert í, eftir að hafa unnið
mikla vinnu til þess að jafna sig eft-
ir meiðsli. Núna hef ég haft nokkra
daga til að svekkja mig á þessu og
er búinn að snúa blaðinu við og far-
inn að horfa jákvæðum augum fram
á við,“ segir Alfreð Finnbogason,
landsliðsmaður í knattspyrnu, sem
fór úr axlarlið í leiknum við Tyrki á
dögunum. »54
Farinn að horfa jákvæð-
um augum fram á við
Saxófónleikarinn Tumi Árnason og
slagverksleikarinn margreyndi
Magnús Trygvason Eliassen troða
upp í Mengi við Óðinsgötu í kvöld
klukkan 21. Dúettinn heldur senn í
tónleikaferð til meginlands Evrópu,
þar sem hann kemur fram á vegum
Nordic Jazz Comets, og boða fé-
lagarnir að tónleikarnir í kvöld verði
nokkurs konar forsmekkur og upp-
hitun fyrir það
sem koma skal
austanhafs.
Tumi og Magn-
ús í byrjun árs
út hljómplöt-
una „Allt er
ómælið“ og hef-
ur hún hlotið
góðar viðtökur
rýna.
Tumi og Magnús hita
upp fyrir ferðalag
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eiður Ísak Broddason úr TBR sigr-
aði í einliða- og tvíliðaleik karla á
meistaramóti BH í badminton um
helgina. „Markmiðið er að verða Ís-
landsmeistari og keppa á Ólympíu-
leikum,“ segir Eiður, sem er í A-
landsliðshópnum.
Broddi Kristjánsson, faðir Eiðs,
er sigursælasti Íslendingurinn í bad-
minton með 43 Íslandsmeistaratitla í
einliðaleik karla, tvíliðaleik og
tvenndarkeppni að baki, þar af 14 í
einliðaleik. Hann hefur líka keppt
oftast allra fyrir hönd Íslands og er
enn að með stefnuna á heimsmeist-
aramót öldunga í flokki 60 ára plús
2021.
Andri, yngri bróðir Eiðs, er líka á
fullu í íþróttinni og er í úrvalshópi
U15-U19, keppti meðal annars á
heimsmeistaramótinu í sínum ald-
ursflokki fyrir skömmu. „Ég ætla að
sjá til þess að hann verði í hæfilegri
fjarlægð frá mér í keppni, en hann
hefur alla burði til þess að verða frá-
bær badmintonspilari,“ segir Eiður.
Broddi hefur eðlilega haft áhrif á
synina í íþróttinni. „Pabbi gaf mér
spaða í fæðingargjöf,“ segir Eiður
sposkur um upphaf ferilsins. „Bad-
minton hefur fylgt mér alla ævi og
ég fór snemma með honum út í hús
að leika mér.“ Hann segist muna eft-
ir nokkrum Íslandsmeistaratitlum
föður síns og hafi lært mikið af hon-
um. „Mér er sagt að við höfum svip-
aðan leikstíl og svo held ég að ég hafi
erft skapið hans og lært að nýta það
til að ná sem bestum árangri.“
Með markmiðin á hreinu
Eiður hefur fagnað sigri á mörg-
um mótum og keppt á alþjóðavett-
vangi. Hann segist sjá árangur föður
síns í hillingum en enginn eigi eftir
að komast nálægt honum. „Það
kemst enginn með tærnar þar sem
hann hefur hælana,“ segir hann.
Þrátt fyrir góðan árangur hefur
Eiður aðeins einu sinni orðið Ís-
landsmeistari unglinga og aldrei í
karlaflokki. Vegna meiðsla missti
hann reyndar mikið úr þegar hann
keppti í flokki 19 ára og yngri og eft-
ir að hann byrjaði að keppa í meist-
araflokki hefur Kári Gunnarsson
unnið nánast alla Íslandsmeistara-
titla. „Ég var ekki langt frá því að
vinna hann í hörkuleik í undan-
úrslitum í fyrra en sigurinn datt
hans megin. Þetta er því ekki spurn-
ing hvort heldur hvenær nýtt nafn
verður ritað á bikarinn.“
Thomas-bikarinn (e. Thomas Cup)
hefur verið óformleg heimsmeistara-
keppni karla á tveggja ára fresti síð-
an 1982 en var áður á þriggja ára
fresti frá 1948. Uber Cup er sam-
bærileg keppni fyrir konur. Til
stendur að Ísland taki þátt í keppn-
inni á næsta ári og vonast Eiður til
þess að verða í liðinu. „Flesta bad-
mintonleikara dreymir um að keppa
á Ólympíuleikum. Falli spilin með
mér get ég átt möguleika á leikunum
2024 og ef ekki þá 2028, en næsta
markmið er að vinna Íslandsmeist-
aratitilinn,“ áréttar Eiður.
Morgunblaðið/Eggert
Á æfingu Feðgarnir Broddi Kristjánsson, sigursælasti Íslendingurinn í badminton, Eiður Ísak og Andri í TBR.
Meistari Eiður í bad-
minton frá barnæsku
Synirnir eiga ekki langt að sækja fyrirmyndina