Morgunblaðið - 07.12.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 07.12.2019, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019 Á göngu Sól er tekin að síga ansi lágt um þessar mundir og verða því eftirmiðdagsgöngutúrar um Seltjarnarnes baðaðir kvöldsólargeislum. Handan við Skerjafjörðinn glittir í Bessastaði. Eggert Samantekinn hagur veiða og vinnslu 2018 var á dögunum birtur á heimasíðu Hagstofu Ís- lands. Þar er tekið sam- an yfirlit um rekstur helstu greina í sjávar- útvegi á rekstrarárinu 2018. Þegar rætt er um rekstrarafkomu sjávar- útvegs berst talið oftar en ekki að veiðigjaldinu. Þannig var sagt frá því í Kjarnanum 3. desember síðastliðinn að hagn- aður í sjávarútvegi hefði verið 27 milljarðar króna árið 2018. Í sömu grein var sagt frá veiðigjaldi, að það hefði hækkað úr 6,8 milljörðum króna í 11,3 milljarða króna á milli áranna 2017 og 2018, en aftur á móti lækkað árið 2019. Veiðigjald 2019 væri þannig áætlað 7 milljarðar króna sam- kvæmt upphaflegu fjárlagafrumvarpi en myndi lækka frekar og verða um 5 millj- arðar króna árið 2020. Á þessum grundvelli var álykt- að í nefndri umfjöllun Kjarnans að veiði- gjaldið yrði 19% af af- komu. Rétt er að hafa í huga að endanleg fjárhæð gjaldsins fyr- ir næsta ár liggur ekki enn fyrir og því er um áætlun gjaldsins að ræða. Það er hins vegar ekki úr vegi að skoða þetta nánar. Var veiðigjaldið lækkað? Stutta svarið er nei. Veiðigjald hefur verið 33% skattur á afkomu fiskveiða og er það enn. Ef tekju- skattsgreiðslur landsmanna lækka eða hækka á milli ára, eru allar líkur á því að það stafi af hækkun eða lækkun á skattstofni, en ekki breyt- ingu á skattprósentunni. Það er í besta falli hægt að kalla það villandi framsetningu að halda öðru fram, því skattprósentu veiðigjalds hefur ekki verið breytt. Ný lög um veiðigjald voru sett í lok árs 2018. Skattprósentan hélst óbreytt frá fyrri lögum, eins og áður segir, en skattstofninn var stækk- aður. Auðvelt er að sýna fram á það, þar sem samanlagt veiðigjald fisk- veiðiáranna 2019-2020 og 2020-2021 hefði orðið um 5,5 milljarðar króna samkvæmt eldri lögum. Það er áþekk fjárhæð og ýmsir hafa slegið fram að verði fjárhæð veiðigjalds árið 2020. Því má segja að veiðigjald næsta árs jafngildi veiðigjaldi tveggja ára, hefðu gömlu lögin gilt. Á mannamáli er þetta hækkun, ekki lækkun. Er veiðigjald 19% af afkomu? Stutta svarið er nei. Veiðigjald hefur verið 33% skattur á afkomu fiskveiða og er það enn. Hér verður að árétta að veiðigjald leggst á auð- lindanýtingu, það er fiskveiðar. Annar rekstur, líkt og fiskvinnsla og sölustarfsemi, er ekki hluti af skatt- stofninum. Veiðigjald næsta árs miðast því við afkomu fiskveiða á árinu 2018. Hreinn hagnaður fisk- veiða fyrir skatt (EBT) árið 2018 var 9,9 milljarðar króna. Ef við gef- um okkur að veiðigjald verði 5 millj- arðar króna jafngildir það 51% skatti á hreinan hagnað. Einnig leggst á 20% tekjuskattur, líkt og hefðbundið er. Rétt farið með tölur Það er bæði sjálfsagt og eðlilegt að ræða um veiðigjaldið, upphæð og fyrirkomulag. Það þarf hins vegar að gæta þess að skoða veiðigjald á grundvelli afkomu í fiskveiðum, en ekki sjávarútvegi í heild sinni, líkt og oft er gert. Það verður að fara rétt með tölur. Hið rétta er að veiði- gjald ársins 2020 byggist á afkomu fiskveiða ársins 2018 og nemur að minnsta kosti rétt rúmlega helmingi af hreinum hagnaði. Það er hátt hlutfall. Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur »Hið rétta er að veiði- gjald ársins 2020 byggist á afkomu fisk- veiða ársins 2018 og nemur að minnsta kosti rétt rúmlega helmingi af hreinum hagnaði. Það er hátt hlutfall. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri SFS. Afkoma fiskveiða Ætla má að sjóð- félagalán verði hlut- fallslega stærri þáttur í starfsemi lífeyris- sjóða á árinu 2019 en undanfarin ár. Breyt- ingin er vissulega um- talsverð en hvorki sér- stæð né söguleg. Sjóðfélagalán voru um 20% af heildar- eignum lífeyrissjóða árið 1991 þegar mest var. Hlutfallið fór niður í 5,3% árið 2015 en vegið meðaltal frá 1991 til 2018 er 10,4%. Þegar nú stefnir í að sjóðfélagalán verði meira en 10% heildareigna líf- eyrissjóða á árinu sem senn líður eru það engin stórtíðindi í sjálfu sér, hvað þá dramatísk. Eðlilegt er að fólk í fasteigna- hugleiðingum horfi til lífeyrissjóð- anna sinna enda bjóðast sjóð- félagalán á hagstæðum kjörum. Algengt er líka að sjóðfélagar sæki um lán til að endur- fjármagna lán og oft skilar það þeim ávinn- ingi. Fregnir berast af því að sumir lífeyr- issjóðir hafi þrengt ákvæði í starfsreglum sínum um sjóð- félagalán. Þannig birt- ist eðlileg eignastýring í verki. Sjóðirnir setja sér viðmiðunarreglur um eignaflokka sína og stuðla að því að hlutur sjóðfélagalána verði innan tiltekinna marka. Slík mörk setur hver sjóður fyrir sig á eigin for- sendum í samræmi við ákvörðun stjórnar. Ég tók eftir því að á dagskrá ný- afstaðins húsnæðisþings var enga rödd úr lífeyrissjóðakerfinu að finna á dagskrá þess frá morgni til kvölds. Lífeyrissjóðir eru samt afar umsvifamiklir við að fjármagna húsnæðiskerfið og hafa verið svo áratugum skiptir. Þá hjó ég eftir því í ávarpi for- sætisráðherra á afmælissamkomu LSR á dögunum að talað var um að lífeyrissjóðir hefðu „komið af mjög auknum krafti inn á íbúða- lánamarkaðinn fyrir örfáum árum“. Fjölgun sjóðfélagalána var nefnd í því sambandi. Rétt er að sjóðfélagalánum fjölg- ar verulega í seinni tíð en þegar á heildina er litið hafa lífeyrissjóðir alla tíð verið umsvifamiklir bak- hjarlar húsnæðiskerfisins. Þannig voru yfir 60% af heildareignum líf- eyrissjóða í húsnæðiskerfinu árið 1991 í sjóðfélagalánum, skuldabréf- um Húsnæðisstofnunar og hús- bréfakerfinu sem þá var reyndar smám saman að taka við uppgreið- anlegum húsbréfum sem seld voru með afföllum. Ártalið 1991 er hér títtnefnt vegna þess að þá hóf Seðlabankinn að mæla eignir lífeyrissjóða á sam- ræmdan hátt. Vísbendingar eru um að hlutfallið hafi verið enn hærra fyrir tíma samræmdra mælinga. Húsbréfakerfið var lagt af með skiptum á húsbréfum og óuppgreið- anlegum íbúðabréfum. Íbúðalána- sjóði hefur nú verið breytt í grund- vallaratriðum, hann var fyrst og fremst lánasjóður en er orðinn stofnun sem ber ábyrgð á fram- kvæmd húsnæðismála. Eftir stend- ur vandi sem skapaðist við það að vextir á íbúðalánum á markaði lækkuðu jafnt og þétt en útlána- vextir Íbúðalánasjóðs stóðu nánast í stað á sama tíma. Fyrir Alþingi liggur nú stjórn- arfrumvarp um málið þar sem fram kemur að á miðju ári 2019 hafi munur á bókfærðu virði og gang- virði eigna og skulda sjóðsins verið neikvæður um 200 milljarða króna, sem væri tap sjóðsins ef hann hefði þá verið gerður upp. Ný lán Íbúðalánasjóðs verða mjög takmörkuð og í heild eru miklar breytingar í deiglunni í hinu opinbera lánakerfi húsnæðismála. Ríkistryggð húsnæðislána- fjármögnun leggst í reynd af með því að leggja af Íbúðalánasjóð í þeirri mynd sem hann var starf- ræktur. Heildarmyndin breytist sem því nemur og fleira kemur til. Sjóðfélagalánum fjöldar sem sagt og hlutdeild banka á fasteignalána- markaði eykst. Bankar fjármagna fasteignalánin að hluta með því að gefa út sértryggð skuldabréf. Op- inberar tölur sýna að lífeyrissjóðir eiga um helming sértryggðra skuldabréfa bankanna. Þegar á allt er litið koma lífeyris- sjóðir að fjármögnun húsnæðis- kerfis landsmanna úr mörgum átt- um. Það er gömul saga og ný. Eftir Ólaf Sigurðsson »Eðlilegt er að fólk í fasteignahugleið- ingum horfi til lífeyr- issjóðanna sinna enda bjóðast sjóðfélagalán á hagstæðum kjörum Ólafur Sigurðsson Höfundur er framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs. Húsnæðiskerfið og umsvif lífeyrissjóða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.