Morgunblaðið - 07.12.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 07.12.2019, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019 Fyrir viku var skrifað hérum þau 32 orð í íslenskuað fornu sem hafa veriðviðurkennd sem tökuorð úr fornírsku. Lítið er vitað um gel- ísku málsamfélögin utan Írlands á 9. öld þegar fólk frá Noregi kom sér fyrir á skosku eyjunum (út- rýmdi jafnvel íbúum Hjaltlands og Orkneyja) og í höfnum á Írlandi þar sem menn stunduðu þræla- verslun. Farið var frá þessum slóð- um hingað til lands alla 9. öldina; oftast er talað um papana vegna ör- nefna og ritaðra frásagna um þá en sögur og fornleifafræðin kenna líka að einhver hafi komið hér til að afla fanga í þeirri veiðistöð sem Thule var kölluð. Ísland byggðist ekki úr Noregi, að sögn Ara fróða, fyrr en eftir að land- námsöskulagið féll uppúr 870. Þá hefur fólk einnig tekið sig upp úr nor- rænu byggðunum á Írlandi og skosku eyjunum og sest hér að; rannsóknir á erfðamengi benda til að um 60% kvennanna hafi verið af gelískum upp- runa en um 20% af körlunum – auk þeirra sem voru af genetískum nor- rænum uppruna en komu úr tvítyngdu nýlendunum fyrir vestan haf. Gelísku tökuorðin bárust í íslensku fyrir ritöld. Það er því stór- merkilegt að jafn mörg orð, að ótöldum mannanöfnum og fjölda örnefna, skuli hafa lif- að nógu lengi til að rata á bækur löngu eftir að verslun og alþjóðasamskipti höfðu beinst til Noregs. Í sögunum er teiknuð upp sú mynd að það sé öruggara að sigla til Noregs og eiga þar viðskipti heldur en til Ír- lands og Bretlandseyja. Til samanburðar má nefna að Matteo Tarsi hefur skrifað um 172 tökuorð úr latínu í íslensku – en latína var tungumál kirkj- unnar og allra lærðra manna hér á landi öldum saman, og með latínunni bárust ný trúarbrögð, fræði, stjórn- og menntakerfi. Vegna þess hve mörg þeirra sem hingað komu í öndverðu voru mælt á gelísku ætti að vera ómaksins vert að halda áfram leit eftir ummerkjum um tungu þeirra. Tilhneigingin hefur verið sú að horfa framhjá fjölmenn- ingunni sem hér var á landnámsöld – og er sú afneitun án efa arfur róm- antískrar þjóðernishyggju. Nú skiljum við betur en áður sambúð menn- ingarheima og áhrif valda, stéttar, kyns og stöðu á tungumál og sjálfsmynd í blönduðum málsamfélögum. Til marks um blinda augað sem hefur snúið að írska þættinum má nefna að enginn Egluskýrandi hefur slegið upp í fornírskri orðabók til að skýra viðurnefni Þorgerðar brákar, ánauðugrar fóstru Egils. Í orðabók- inni má lesa að brága merki háls og sé notað í afleiddri merkingu um fanga eða ánauðugan mann sem haldið er föngnum með því að grípa eða hlekkja um hálsinn – en hlekkir sem falla vel að hálsi fólks eru til sýnis í víkingadeild Þjóðminjasafnsins í Dyflinni. Hæfilegra viðurnefni en brák, leitt af írska orðinu brága, um ambátt er því vandfundið. Tímabært er að íslenskir fræðimenn takist á við staðreyndir þessarar dökku hliðar for- sögu okkar – og þau djúpstæðu áhrif sem hún hefur haft á menningu og mannlíf í landinu. Óhreinu orðin hennar íslensku Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Morgunblaðið/Eggert Brákarey Eyjan er sögð nefnd eftir Þorgerði brák, ambátt á Borg og fóstru Egils Skallagrímssonar. Fyrirsögn yfir þvera blaðsíðu 4 hér í blaðinu sl.miðvikudag var svohljóðandi:„26% geta ekki lesið sér til gagns“.Hvernig má það vera að rúmlega fjórð- ungur 15 ára unglinga á Íslandi „geti ekki lesið sér til gagns“? Hvað hefur gerzt? Þessar niðurstöður eru gífurlegur áfellisdómur yfir skólakerfi okkar, hvernig sem á það er litið og sam- félagi okkar til skammar. Tafla sem fylgir með umfjöllun blaðsins sýnir að staðan hefur nánast jafnt og þétt versnað frá aldamót- um með undantekningu þó á milli 2006 og 2009. Það eru einungis 8 ríki fyrir neðan okkar á lista yfir lesskilning í þessari PISA-könnun OECD en 28 fyrir ofan okkur. Það hafa áður komið sambærilegar kannanir sem hafa bent í þessa átt en ýmsir talsmenn skólakerfisins hafa gert lítið úr þeim. Nú er það ekki lengur hægt. Þessar tölur eru of augljósar. Við erum langt fyrir neð- an önnur norræn lönd svo vísað sé til þeirra þjóða sem við berum okkur einna helzt saman við. Hvenær hófst þessi þróun og af hverju? Ég held að mín kynslóð (sem að vísu fæddist þegar danskur kóngur ríkti yfir Íslandi!) hafi yfirleitt haft góða reynslu af skólakerfi okkar og minnist margra kennara okkar með virðingu og væntumþykju. Það sem hér er á ferð er augljóslega eitt af stærstu málum okkar samtíma. Alþingi hlýtur að taka þetta mál til umræðu næstu daga. Það verður að leiða fram í dagsljósið hvernig þetta hefur gerzt. Til allrar hamingju sýnir menntamálaráðherra engin merki um meðvirkni með kerfinu í þessu máli. Þvert á móti fer ekki á milli mála að Lilja Dögg Alfreðsdóttir gerir sér skýra grein fyrir alvöru málsins. Það hefur verið ljóst um nokkurt skeið að það þarf að verða viðhorfsbreyting hér til skólamála. Við erum öll alin upp við að háskólastigið sé mikilvægasta skóla- stigið. Það er rangt. Leikskólastigið er mikilvægasta skóla- stigið. Þar er grunnurinn lagður að framtíðinni. Hlut- verk leikskólakennaranna er þýðingarmeira en prófess- ora við háskóla og er þá ekki gert lítið úr þeim. Við vitum einfaldlega meira nú orðið um mannlífið og hvað það er sem getur ráðið úrslitum um farsæld í lífinu. Og þar ráða fyrstu ár lífsins mestu. Þessi nýja PISA-könnun verður að leiða til vitundar- vakningar í samfélagi okkar. Við verðum að ná betri tökum á skólakerfinu. Því hefur augljóslega hrakað en ekki batnað. Það er athyglisvert að í núverandi ríkisstjórn eru það tveir ráðherrar Framsóknarflokksins sem hafa á sinni könnu verkefni sem geta ráðið meiru um framtíð þessarar þjóðar en nokkur önnur sem unnið er að um þessar mundir. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna- málaráðherra, hefur frá upphafi ráðherraferils síns hleypt af stað mjög viðamiklu verkefni sem snýr að börnum og farsæld þeirra. Gera má ráð fyrir því að lagafrumvörp sem verða afrakstur þeirra vinnu komi fram á vorþingi. Það snýst ekki sízt um það, að eftir því verði tekið mjög snemma, þegar um er að ræða erfiðleika heima fyrir í lífi barna. Fyrir skömmu skýrði ung stúlka frá þeirri lífsreynslu sinni að alast ein upp hjá móður sem átti við geðveiki að stríða án þess að hún fengi nokkra aðstoð. Gerir „kerfið“ sér enga grein fyrir, hvers konar álag þetta hefur verið fyrir þessa stúlku? Hún verður alla ævi að vinna úr þeirri lífs- reynslu. Vonandi verður það átak sem Ásmundur Einar stendur fyrir til þess að fækka mjög þeim börnum sem þurfa að kynnast þeim hliðum lífsins í æsku sinni. En nú er komið í ljós að víðar er pottur brotinn. Og ekki verður betur séð en að þau Lilja Dögg og Ásmundur Einar standi sameiginlega frammi fyrir mjög viðamiklum verkefnum sem snúa að farsæld komandi kynslóða þessa lands. Væntanlega munu þau stilla saman strengi sína og inn í þá mynd hlýtur Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra líka að koma að einhverju leyti. En til þess að ráðherrarnir nái árangri þarf þjóðin að standa fast við bakið á þeim. Auðvitað koma heim- ilin hér líka við sögu. Fullorðna fólkið þarf að horfast í augu við þann veruleika sem að því snýr. Eitt mesta böl í lífi fólks er ofneyzla áfengis. Þau börn sem í því lenda sitja uppi með þá lífsreynslu alla ævi á einhvern veg. Vandi aðstandenda alkóhólista hefur lítið verið ræddur á opinberum vettvangi. Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins, gerði þetta „tabú“ hins vegar að umtalsefni í grein hér í blaðinu fyrir skömmu á þann veg að eftir var tekið. Það er ýmislegt mikilvægara en að auka „frelsi“ í sölu áfengis. Fullorðið fólk verður að skilja hvað það er að gera börnum sínum, hvort sem er með ofneyzlu áfengis eða skilja þau eftir ein í umsjón foreldris sem á við alvar- leg veikindi að etja. Það er augljóst að skýringar á stöðu skólakerfisins liggja dýpra en hjá kennurunum. Það dugar ekki að benda bara á þá. Og raunar mikilvægt að í því mikla starfi sem framundan er í menntamálaráðuneytinu verði haft náið samráð og samstarf við kennarana. Vandinn byrjar á heimilunum en ekki í skólunum. En það hefur eitthvað farið alvarlega úrskeiðis í skól- unum, sem taka verður á. Það sem gefur okkur vonir um góðan árangur er einfaldlega að hér eru á ferðinni sameiginlegir hags- munir fólksins í landinu, sem ekki þarf að rífast mikið um. En allt stjórnkerfið þarf að láta hendur standa fram úr ermum. Eitt stærsta mál okkar samtíma Ný PISA-könnun til- efni til vitundarvakn- ingar í samfélaginu. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Um miðjan nóvember hélt ég fyr-irlestra í tveimur Evrópu- borgum, um rithöfundinn Jan Valtin í Poitiers og um hagfræðinginn Frie- drich A. von Hayek í Vínarborg. Þessar tvær borgir eiga eitt sameig- inlegt: Þar var Evrópu bjargað und- an múslimum, 732 og 1683. Á þeim hundrað árum sem liðið höfðu frá láti Múhameðs spámanns 632 höfðu múslimar lagt undir sig Mið-Austurlönd, Norður-Afríku og Íberíuskagann. Frá Spáni héldu þeir til Frakklands. Árið 732 stefndi fjöl- mennur her þeirra, um 80 þúsund manns, í átt til Poitiers í Mið- Frakklandi og rændi á leiðinni öllu því sem hönd á festi. Foringi liðsins var Abdul Rahman Al Ghafiqi. Frakkland átti þá að heita undir stjórn Mervíkinga, en bryti konungs, Karl Martel, réð mestu og fór fyrir varnarliði Frakka, um 30 þúsund manns. Martel tókst með fót- gönguliði sínu að koma þungvopnuðu riddaraliði múslima á óvart 10. októ- ber, og þegar kvisaðist að hermenn hans væru að láta greipar sópa um hinn dýrmæta ránsfeng múslimanna stukku þeir margir út úr bardag- anum. Frekari flótti brast í liðið eftir að Abdul Rahman hafði verið veginn. Martel sendi skilaboð af vígvellinum með bréfdúfu og sagði þar: „Sarra- centi obtriti.“ Serkirnir sigraðir. Liðu nú aldir. Árið 1683 stjórnaði soldáninn í Miklagarði Balkanskaga, Mið-Austurlöndum og Norður- Afríku og hugðist færa veldi sitt lengra til norðurs og hertaka Vín- arborg. Settist 170 þúsund manna lið undir forystu Kara Mustafa Pasha stórvesírs um borgina í júlí, en innan múranna var 15 þúsund manna varn- arsveit. En nú gerðu keisari Þýska- lands og konungur Póllands banda- lag í fyrsta skipti. Jóhann Sobieski Póllandskonungur skundaði suður með 85 þúsund manna lið og birtist í útjaðri Vínarborgar 11. september. Múslimaherinn réðst á her Sobieskis snemma næsta dag en varð að láta undan síga þegar pólskt riddaralið bættist við fótgönguliðið, sem farið hafði fyrst fram, og síðan geystist austurríska varnarliðið út fyrir borg- armúrana og bættist í hópinn. Flýðu múslimar hver um annan þveran og féllu um 15 þúsund þeirra í orrust- unni en innan við fimm þúsund kristnir hermenn. Mustafa Pasha var kyrktur að skipun soldánsins en Jó- hann Sobieski hnikaði við frægum orðum Sesars og mælti: Veni, vidi, Deus vicit. Ég kom, ég sá, en Guð sigraði. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Milli Poitiers og Vínarborgar V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.