Morgunblaðið - 07.12.2019, Page 44

Morgunblaðið - 07.12.2019, Page 44
44 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019 England B-deild: Millwall – Nottingham Forest ............... 2:2  Jón Daði Böðvarsson var allan tímann á varamannabekk Millwall. Spánn B-deild: Alcorcón – Real Oviedo .......................... 1:3  Diego Jóhannesson var ekki í leik- mannahópi Oviedo. Holland Deildabikar kvenna, 8-liða, fyrri leikur: PSV Eindhoven – Ajax............................ 1:1  Anna Björk Kristjánsdóttir var allan tímann á bekknum hjá PSV. B-deild: Excelsior – Nijmegen.............................. 2:1  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior. Pólland Górnik Zabrze – Wisla Kraków............. 4:2  Adam Örn Arnarson var allan tímann á varamannabekk Górnik Zabrze. Ítalía Inter – Roma............................................. 0:0 Þýskaland Eintracht Frankfurt – Hertha Berlín .... 2:2 KNATTSPYRNA HANDBOLTI Grill 66 deild karla Grótta – Haukar U ............................... 29:28 Þór Ak. – FH U..................................... 30:22 Fjölnir U – Þróttur............................... 23:30 Víkingur – KA U................................... 34:23 Staðan: Þór Ak. 10 8 2 0 307:264 18 Grótta 10 7 0 3 293:283 14 Valur U 9 6 1 2 273:250 13 Haukar U 10 6 1 3 294:262 13 Þróttur 10 4 2 4 299:286 10 KA U 10 4 0 6 294:304 8 FH U 10 4 0 6 288:302 8 Víkingur 10 3 1 6 267:271 7 Fjölnir U 10 2 0 8 251:282 4 Stjarnan U 9 1 1 7 220:282 3 Grill 66 deild kvenna Víkingur – Fjölnir ................................ 20:29 Fylkir – ÍR ............................................ 23:29 Staðan: Fram U 10 10 0 0 349:231 20 FH 10 8 1 1 276:221 17 Selfoss 10 7 2 1 232:210 16 ÍR 11 7 0 4 286:266 14 Grótta 10 6 1 3 247:229 13 Valur U 10 5 1 4 275:258 11 ÍBV U 10 4 1 5 249:247 9 Stjarnan U 10 3 1 6 250:276 7 Fylkir 11 3 0 8 214:244 6 Fjölnir 11 3 0 8 262:303 6 HK U 10 2 1 7 243:300 5 Víkingur 11 0 0 11 247:345 0 Spánn Barcelona – Benidorm........................ 42:25  Aron Pálmarsson skoraði ekki fyrir Barcelona. Svíþjóð Guif – Sävehof ......................................31:31  Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í marki Sävehof. HM kvenna í Japan A-RIÐILL: Serbía – Slóvenía .................................. 29:27 Angóla – Kúba ...................................... 40:30 Holland – Noregur ............................... 30:28  Lokastaðan: Holland 8, Noregur 8, Serb- ía 6, Angóla 4, Slóvenía 4, Kúba 0. B-RIÐILL: Brasilía – Ástralía................................... 31:9 Þýskaland – Suður-Kórea ................... 27:27 Frakkland – Danmörk ......................... 18:20  Lokastaðan: Suður-Kórea 8, Þýskaland 7, Danmörk 7, Frakkland 5, Brasilía 3, Ástralía 0. C-RIÐILL: Svartfjallaland – Spánn ....................... 26:27 Rúmenía – Ungverjaland .................... 28:27 Senegal – Kasakstan............................ 30:20  Lokastaðan: Spánn 10, Svartfjallaland 8, Rúmenía 6, Ungverjaland 4, Senegal 2, Ka- sakstan 0. D-RIÐILL: Japan – Kína ......................................... 35:18 Argentína – Kongó ............................... 25:16 Rússland – Svíþjóð ............................... 30:22  Lokastaðan: Rússland 10, Svíþjóð 8, Jap- an 6, Argentína 4, Kongó 2, Kína 0. Geysisbikar karla 16-liða úrslit: Þór Þ. – Þór Ak..................................... 75:77 Grindavík – KR................................... 110:81 Sindri – Ármann ................................. 124:74 Evrópudeildin Fenerbahce – Alba Berlín ..... (frl.) 107:102  Martin Hermannsson skoraði 12 stig, tók 1 frákast og gaf 4 stoðsendingar fyrir Alba Berlín. KÖRFUBOLTI HM KVENNA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Slæmur lokakafli gegn Hollend- ingum í gær gerir norska kvenna- landsliðinu í handknattleik, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, erfiðara fyrir í baráttunni um heimsmeist- aratitilinn í Japan á næstu dögum. Holland vann leik liðanna í loka- umferð riðlakeppninnar, 30:28, eftir að norska liðið hafði verið yfir nær allan leikinn. Fyrir vikið fer Noregur með tvö stig með sér í milliriðla- keppnina og tekur þennan tapleik gegn Hollendingum með sér þangað. Ljóst er að baráttan í milliriðli eitt verður gríðarlega hörð. Holland fer þangað með 4 stig, Þýskaland með 3, Noregur með 2, Suður-Kórea með 2, Danmörk með eitt og Serbía án stiga. Þetta gæti orðið allt að fimm liða barátta um sætin tvö í undanúrslit- unum því ekki er hægt að afskrifa danska liðið þó það taki aðeins eitt stig með sér. Það sýndu dönsku kon- urnar í gær þegar þær sigruðu frönsku heimsmeistarana, 20:18, í lokaumferð B-riðils með þeim afleið- ingum að Frakkland hafnaði í fjórða sæti og þarf að fara í keppnina um Forestabikarinn, þ.e. um þrettánda sætið á mótinu, á meðan tólf aðrar þjóðir slást um hver þeirra tekur við heimsmeistaratigninni af þeim. Sandra Toft var með tæplega 50 pró- sent markvörslu í danska markinu gegn Frökkum og hreinlega lokaði því langtímum saman í leiknum. Noregur og Danmörk mætast í fyrramálið Noregur og Danmörk mætast í fyrsta leik milliriðilsins í fyrramálið, klukkan 6 á sunnudagsmorgni að ís- lenskum tíma. Serbía mætir Suður- Kóreu klukkan 9 og Holland mætir Þýskalandi klukkan 11.30. Að þeim leikjum loknum verða búnar þrjár umferðir af fimm í milliriðlinum og skýrari mynd komin á stöðuna. Í milliriðli tvö eru heldur skýrari línur. Rússland og Spánn fara þang- að með 4 stig og eru líkleg til að fylgja því eftir og sigla áfram í und- anúrslitin. Svíar og Svartfellingar eru með 2 stig en Rúmenar og Jap- anar mæta stigalausir í milliriðilinn. Þar mætast á morgun Svartfjalla- land – Japan, Rúmenía – Rússland og Spánn – Svíþjóð. Vinni Rússar og Spánverjar sína leiki verða úrslit rið- ilsins nánast ráðin. Slæmur lokakafli dýr fyrir Noreg  Frönsku heimsmeistararnir úr leik AFP Áfram Dönsku handknattleikskonurnar fagna sigrinum á frönsku heims- meisturunum sem eru úr leik á meðan Danir halda áfram keppni. Valdís Þóra Jónsdóttir komst áfram á lokamóti Evrópumótarað- arinnar í golfi í gær en mótið fer fram í Kenía. Valdís lék á tveimur höggum yfir pari í gær, 74 höggum, og samtals á sex yfir pari. Hún er í 57. sæti eftir tvo hringi en 70 efstu komust áfram og Valdís endaði tveimur höggum fyrir ofan niður- skurðarlínuna. Valdís kemur því til með að leika 36 holur til viðbótar í dag og á morgun. Hún er alveg við það að tryggja sér fullan keppnis- rétt á næsta ári og gæti gulltryggt það í Kenía um helgina. Valdís er komin í góða stöðu Ljósmynd/LET Kenía Valdís Þóra Jónsdóttir náði mikilvægum áfanga í gær. Nigel Pearson hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvals- deildarliðsins Watford á samningi sem gildir út leiktíðina. Hann tekur við af Quique Sánchez Flores sem var rekinn í síðustu viku. Pearson var síðast stjóri OH Leu- ven í Belgíu og þar á undan stjóri Leicester. Kom hann Leicester úr C-deildinni og upp í úrvalsdeild. Hann var aðstoðarmaður Guðjóns Þórðarsonar hjá Stoke frá 1999 til 2001. Watford er sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni og aðeins með einn sigur á leiktíðinni. Aðstoðarmaður Guðjóns ráðinn AFP Stjórinn Nigel Pearson er mættur aftur í ensku úrvalsdeildina. KR fékk skell annan leikinn í röð er liðið steinlá fyrir Grindavík í 16-liða úrslitum Geysisbikars karla í körfu- bolta í gærkvöldi. Lokatölur urðu 110:81 og hafa KR-ingar tapað tveimur síðustu leikjum sínum með samanlagt 72 stigum. KR lék án Michaels Craion og Kristófers Acox og réðu meistararnir illa við þeirra fjarveru. Grindvíkingar voru með frumkvæðið allan tímann og voru af- ar sannfærandi. Liðið hitti vel fyrir utan þriggja stiga línuna og Jamal Olasawere skoraði 30 stig. Helgi Már Magnússon gerði 24 fyrir KR.  Þór frá Akureyri vann baráttu Þórsaranna. Akureyringar höfðu betur á útivelli gegn nöfnum sínum frá Þorlákshöfn, 77:75. Terrence Motley skoraði 28 stig fyrir Akur- eyringa.  Sindri úr 1. deild vann sannfær- andi 124:74-sigur á Ármanni, botn- liði 2. deildarinnar, á heimavelli. Tómas Orri Hjálmarsson skoraði 25 stig fyrir Sindra. Morgunblaðið/Hari Rúst Grindavík fór illa með KR-inga á heimavelli í Geysisbikarnum. Vængbrotnir meistarar fengu aftur stóran skell Stjórn handknattleiksdeildar Aftureldingar og Haraldur Þorvarðarson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá fé- laginu. Haraldur kom Aftureldingu upp í efstu deild á sinni annarri leiktíð með liðið, en lítið hefur gengið í Ol- ísdeildinni á tímabilinu og er liðið stigalaust á botni deild- arinnar eftir tíu leiki. Afturelding greindi frá tíðindunum á heimasíðu sinni og er þar tekið fram að ákvörðunin sé niðurstaða hlutaðeigandi aðila eftir skoðun og viðræðum um stöðu flokksins og heildrænt mat. „Stjórnin vill þakka Haraldi fyrir aðkomu hans að upp- byggingu kvennahandboltans hjá félaginu, en hann hefur sýnt mikinn áhuga og metnað í þeim efnum, sem hefur skilað liðinu í efstu deild. Þá óskar Afturelding Haraldi farsældar í framtíðinni í þeim verkefnum sem hann tekur að sér og þakkar gott samstarf,“ segir í tilkynningunni. Ein- ar Bragason og Hjörtur Örn Arnarson stýra liðinu gegn Stjörnunni í dag, áð- ur en hafist verður handa við að finna nýjan þjálfara. johanningi@mbl.is Afturelding leitar að þjálfara Haraldur Þorvarðarson Alþjóðlegi íþróttadómstóllinn, CAS, hefur úrskurðað að félagaskiptabann enska knattspyrnufélagsins Chelsea skuli vera stytt um helming og þar með má félagið kaupa menn á nýjan leik í janúarmánuði. Chelsea var dæmt í bann af FIFA fyrir að brjóta regl- ur um félagaskipti ungra leikmanna og mátti ekki kaupa nýja leikmenn síðasta sumar, og bannið átti að gilda framyfir lok janúargluggans í félagaskiptunum. Chelsea áfrýjaði til CAS og niðurstaða dómstólsins var sú að bannið skyldi stytt. Frank Lampard, nýr knattspyrnustjóri Chelsea, hefur gefið mörgum ungum og efnilegum leikmönnum tæki- færi í vetur og er með lið sitt í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Þar hafa piltar á borð við Tammy Abraham, Mason Mount, Christian Pulisic og Fikayo Tomori fengið að spila mikið og sett mark sitt á leik liðsins. Abra- ham er næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 11 mörk. vs@mbl.is Chelsea má kaupa í janúar Frank Lampard

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.