Morgunblaðið - 07.12.2019, Síða 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019
Eins og sakir standa í lok árs
er einungis einn íslenskur
íþróttamaður með keppnisrétt á
Ólympíuleikunum í Japan sem
fram fara næsta sumar.
Þeir munu standa frá 24. júlí
til 9. ágúst. Okkar fólk hefur því
tíma til að bæta úr þessu en á
þessum tímapunkti er staðan
ekkert sérstaklega uppörvandi.
Vonandi mun þetta breytast til
muna á næsta hálfa árinu. Þó að
ekki nema væri til að veita Ant-
oni Sveini McKee félagsskap í
ólympíuþorpinu.
Hér má þó ekki gleyma íslensk-
um þjálfurum. Þeir verða alla
vega þrír í handknattleikskeppni
leikanna: Þórir Hergeirsson,
Dagur Sigurðsson og Aron Krist-
jánsson. Þá þjálfar Vésteinn Haf-
steinsson besta kringlukastara
heims árið 2019 og fer á enn
eina Ólympíuleikana.
Sindri Sverrisson fór vel yfir
möguleika ýmissa Íslendinga í
fróðlegri grein hér í blaðinu í
ágúst. Þar kom til dæmis fram
að kastararnir, Ásdís Hjálms-
dóttir, Hilmar Örn Jónsson og
Guðni Valur Guðnason ættu
ágæta möguleika þegar gerð
væri sú krafa að hámarksfjöldi
keppenda frá hverju landi væru
þrír. Mun erfiðara er að komast
inn á Ólympíuleika en áður í
bæði frjálsum og sundi.
Staða kylfinganna Ólafíu Þór-
unnar Kristinsdóttur og Valdísar
Þóru Jónsdóttur hefur versnað
töluvert hvað leikana varðar.
Karlalandsliðið í handknattleik
er spurningarmerki en þarf á
góðum árangri á EM að halda til
að komast í forkeppni fyrir leik-
ana.
Íslensku keppendurnir voru
óvenjufáir á leikunum í Ríó árið
2016 eða átta. Vonandi verða
þeir fleiri á næsta ári. Þessi
upptalning hér er alls ekki tæm-
andi varðandi þá sem stefna á
leikana 2020.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Austurberg: ÍR – Selfoss ....................... L16
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram .............. L16
Ásvellir: Haukar – KA....................... L17.30
Varmá: Afturelding – Stjarnan ............. L18
Dalhús: Fjölnir – HK......................... S17.30
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – HK.................. L14
Framhús: Fram – Valur......................... L14
KA-heimilið: KA/Þór – Haukar............. L16
Varmá: Afturelding – Stjarnan ............. L16
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Framhús: Fram U – Selfoss .................. L18
Hertz-höllin: Grótta – ÍBV U................. S14
Origo-höllin: Valur U – HK U........... S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Geysisbikar karla, 16-liða úrslit:
Ísafjörður: Vestri – Fjölnir .................... S17
Njarðtaksgr.: Njarðvík – Keflavík ... S19.30
Geysisbikar kvenna, 8-liða úrslit:
Sauðárkrókur: Tindastóll – Haukar ..... L14
Stykkishólmur: Snæfell – Valur............ L15
Dalhús: Fjölnir – KR.............................. L17
Njarðtaksgr.: Njarðvík – Keflavík ... S16.30
1. deild karla:
Ice-Lagoon höll: Sindri – Höttur........... S17
Álftanes: Álftanes – Hamar .............. S19.15
Smárinn: Breiðablik – Skallagrímur S19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Selfoss..... S19.15
1. deild kvenna:
Blue-höllin: Keflavík b – ÍR................... L16
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Laugardalur: Reykjavík – SA ............... L19
Enski boltinn á Síminn Sport
Everton – Chelsea ............................. L12.30
Bournemouth – Liverpool ..................... L15
Manch. City – Manch. Utd................ L17.30
Aston Villa – Leicester ........................... S14
Brighton – Wolves ............................. S16.30
Í KVÖLD!
margt sem má bæta þegar maður
kemur í 50 metra laugina. Ég held
að þetta sé allt á réttri leið en best
hefur mér þótt að sjá að hraðinn er
góður og ég næ að taka löng og góð
sundtök. Það sem hefur skipt mestu
máli er að geta einbeitt sér að sund-
inu en lengst af á mínum ferli hef ég
annaðhvort verið í námi eða vinnu.
Það breytir gífurlega miklu að geta
hvílt á milli æfinga svo líkaminn nái
að jafna sig almennilega fyrir næstu
æfingu eða átök,“ sagði Anton en
hann er þegar kominn með keppn-
isrétt á Ólympíuleikunum eftir að
hafa náð lágmarki síðasta sumar í
200 metra bringusundi.
Þarf ekki að eltast við lágmark
Anton er í þeirri stöðu að þurfa
ekki að hafa „áhyggjur“ af ólympíu-
lágmarkinu. Hann náði því fyrir
nokkru og gat því farið inn í vet-
urinn vitandi að farseðillinn til Tók-
ýó væri tryggður. Hann hlýtur að
vera afslappaðri fyrir vikið?
„Það hefur vissulega hjálpað gíf-
urlega. Ég hef því ekki þurft að
skipuleggja æfingaplanið með það
fyrir augum að þurfa að toppa tvisv-
ar. Ég hefði þá þurft að reyna að ná
lágmarkinu snemma á næsta ári.
Þetta veitir manni ákveðna hugarró
og hjálpar tvímælalaust til,“ sagði
Anton sem mun næst keppa á Ís-
landi á Reykjavíkurleikunum í jan-
úar en þar hefur sundkeppnin oft
verið býsna sterk á undanförnum
árum.
Ilya Shymanovich frá Hvíta-
Rússlandi kom fyrstur í mark í und-
anúrslitunum á 55,89 sekúndum, og
setti nýtt Evrópumet. Hann er því
sigurstranglegur í úrslitunum en
Hollendingurinn Arno Kamminga
er einnig mjög öflugur enda Evr-
ópumeistari. Hann átti besta tím-
ann í undanrásunum um morguninn
þegar hann synti á 56,71 sekúndu.
Landsmet í boðsundi
Íslenska sveitin í 4x50 metra
skriðsundi kvenna setti landsmet í
Glasgow þegar hún hafnaði í þrett-
ánda sæti af sextán sveitum.
Íslensku sveitina skipuðu þær Jó-
hanna Elín Guðmundsdóttir (25,48),
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir (24,64),
Snæfríður Sól Jórunnardóttir
(25,04) og Eygló Ósk Gústafsdóttir
(25,78). Þær komu inn á tímanum
1:40,94. Metið var orðið tíu ára
gamalt og Ingibjörg Kristín tók
þátt í að setja fyrra metið árið 2009.
Eygló Ósk Gústafsdóttir hafn-
aði í 18. sæti af 24 keppendum í 200
metra baksundi og náði sínum besta
tíma á árinu. 2:10,46 mínútur. Ís-
landsmet hennar frá árinu 2015 er
2:03,52 mínútur.
Dadó Fenrir Jasminuson hafn-
aði í 58. sæti af 68 keppendum í 50
metra skriðsundi karla á 22,59 sek-
úndum. Íslandsmetið sem Dadó
deilir með Árna Má Árnasyni er
22,29 sekúndur.
Kristinn Þórarinsson hafnaði í
37. sæti af 53 keppendum í 200
metra fjórsundi á 2:00,44 mínútum.
Besti árangur hans er 2:00,04 mín-
útur en Íslandsmet Arnar Arn-
arsonar frá 2003 er 1:57,91 mínúta.
Nóg um að vera á mótinu í dag
Dadó Fenrir keppir í 100 metra
skriðsundi í dag, Eygló Ósk og Ingi-
björg Kristín í 50 metra baksundi,
Kristinn í 100 metra fjórsundi og
Snæfríður Sól í 200 metra skrið-
sundi. Undanrásir hefjast kl. 9.30
en úrslitasundið hjá Antoni Sveini í
100 metra bringusundinu hefst
klukkan 18.08.
Setti Íslandsmet
fyrstu sex skiptin
Anton Sveinn McKee er í toppformi á EM í Glasgow Syndir í úrslitum í dag
Ljósmynd/SSÍ
Skotland Anton Sveinn McKee laufléttur eftir 100 metra bringusundið á EM í Glasgow í gær.
SUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Anton Sveinn McKee, úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar, hefur farið hamför-
um á EM í 25 metra laug í Glasgow
undanfarna daga. Ekki er allt búið
enn því í kvöld keppir hann í úrslit-
um í 100 metra bringusundi. Hann
fer með áttunda besta tímann inn í
úrslitin úr undanúrslitunum en þá
synti hann á 57,35 sekúndum.
Þau tíðindi urðu í undanúrslit-
unum að Anton setti ekki Íslands-
met. Síðan hvenær er hægt að kalla
það tíðindi að íþróttamaður setji
ekki Íslandsmet, hugsa lesendur ef
til vill með sér. Anton stakk sér þá
til sunds á EM í Glasgow í sjöunda
sinn en í fyrstu sex skiptin hafði
hann hins vegar sett Íslandsmet.
Anton er því í toppformi og í und-
anrásum í 100 metra sundinu í gær-
morgun setti hann einmitt Íslands-
met: 57,21 sekúnda. Var það
næstbesti tíminn í undanrásunum
en Anton synti því hægar í undan-
úrslitunum. Tími hans þar var þó
engu að síður undir gamla metinu,
57,57 sekúndur, sem var einnig í
eigu Antons og stóð í eitt ár.
Nýtur sín í botn
„Það var mjög sætt að smjúga
inn í úrslitasundið. Það var tæpara
en maður vill hafa það en ég er
kominn með braut í úrslitasundinu
og það er allt sem þarf. Ég hef verið
á fullu síðustu þrjá daga en þarf
ekki að keppa í fyrramálið (í dag) og
get því sofið út. Ég næ því vonandi
að endurnærast og get kýlt á úr-
slitasundið annað kvöld (í kvöld).
Ég veit að ég á meira inni,“ sagði
Anton þegar Morgunblaðið náði
sambandi við hann að undan-
úrslitasundinu loknu.
Um árangur sinn í mótinu, og
metaregnið, segir Anton það mega
helst rekja til þeirrar staðreyndar
að hann hefur fengið tækifæri til að
einbeita sér að íþróttinni.
„Þetta er búið að vera æðislega
skemmtilegt mót. Ég hef notið mín í
botn enda lagði á áherslu á að hafa
gaman að þessu. Íslenski hópurinn
er líka skemmtilegur og ég fæ góð-
an meðbyr frá öðrum keppendum.
Ég veit að ég er kominn á réttan
stað fram að Ólympíuleikum. Ég
flutti mig til í Bandaríkjunum fyrir
þremur mánuðum og skipti um
þjálfara. Nú æfi ég hjá Virginia
Tech-háskólanum. EM í Glasgow er
frábær reynsla því ég hef fengið
staðfest að þær áherslur sem ég hef
unnið í virka vel. Á sama tíma er
Brendan Rodgers er ekki á förum
frá Leicester City því hann hefur
nú skrifað undir nýjan samning
sem knattspyrnustjóri félagsins og
hann gildir til sumarsins 2025, eða í
fimm og hálft ár. Fyrri samningur
hans átti að renna út sumarið 2022.
Rodgers, sem er 46 ára gamall
Norður-Íri, hefur verið orðaður við
Arsenal síðustu daga en nú er ljóst
að hann ætlar að halda tryggð við
Leicester, sem hefur blómstrað
undir hans stjórn í vetur og er í
öðru sæti úrvalsdeildarinnar, átta
stigum á eftir Liverpool. vs@mbl.is
Rodgers með
langan samning
AFP
Leicester Brendan Rodgers er með
liðið í öðru sæti deildarinnar.
Martin Hermannsson og liðs-
félagar hans hjá Alba Berlín frá
Þýskalandi máttu þola 102:107-
útitap fyrir Fenerbahce frá Tyrk-
landi í EuroLeague, sterkustu fé-
lagsliðakeppni Evrópu í gær-
kvöldi.
Martin var sterkur hjá þýska lið-
inu og skoraði 12 stig, gaf fjórar
stoðsendingar og tók eitt frákast.
Hann fékk hins vegar sína fimmtu
villu í blálok venjulegs leiktíma og
spilaði ekkert í framlengingunni.
Alba er í 15. sæti af 18 í keppninni
með fjóra sigra og átta töp.
Martin tapaði í
framlengingu
EuroLeague
Tólf Martin Hermannsson skoraði
tólf stig en það dugði ekki til.