Morgunblaðið - 07.12.2019, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum
nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-350 Lariat Sport
Litur: Magnetic/ Svartur að innan.
6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque
Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up-
phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart
og trappa í hlera, Driver alert og distronic,
Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél.
VERÐ
10.129.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500 35”
Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal
Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö,
togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi-
tanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology
pakki. 35” dekk.
VERÐ
11.395.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat Sport
Litur: Svartur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn-
davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í
öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat
Litur: Platinumhvítur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang &
Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum,
hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6),
10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er eitt háleitasta og fegursta
verk tónlistarsögunnar,“ segir
Hörður Áskelsson um Messías eftir
Georg Friedrich Händel sem hann
stjórnar á tvennum tónleikum um
helgina. Fyrri tónleikarnir eru í
dag, laugardag, kl. 18, og þeir seinni
á morgun kl. 16. Tónleikarnir eru
þeir fyrstu á 38. starfsári Listvina-
félagsins og hluti af Jólatónlistar-
hátíð félagsins sem nú er haldin í
15. sinn.
Flytjendur eru Mótettukór Hall-
grímskirkju, Alþjóðlega barokk-
sveitin í Hallgrímskirkju, þar sem
Tuomo Suni er konsertmeistari, og
einsöngvararnir Herdís Anna
Jónasdóttir sópran, David Erler
kontratenór, Martin Vanberg tenór
og Jóhann Kristinsson bassi.
Aðeins þriðji flutningur
verksins í Hallgrímskirkju
„Þótt Messías sé eitt mest flutta
verk Händel hérlendis er þetta að-
eins þriðji flutningur þess í Hall-
grímskirkju. Pólýfónkórinn flutti
það undir stjórn Ingólfs Guðbrands-
sonar, tengdaföður míns, á sínum
tíma og Schola cantorum undir
minni stjórn á nýársdag 2009 í
skugga hrunsins,“ segir Hörður og
rifjar upp að árið 2009 hafi þess
víða verið minnst að þá voru 250 ár
liðin frá andláti Händel.
Býr yfir mögnuðum krafti
Spurður hvernig megi útskýra
vinsældir Messíasar í gegnum tíðina
bendir Hörður á að verkið búi yfir
mögnuðum krafti. „Verkið einkenn-
ist af miklum andstæðum, þar sem
umfjöllunarefnið er mjög drama-
tískt á sama tíma og laglínurnar eru
allar undurfallegar,“ segir Hörður
og tekur fram að verkið sé ein-
staklega fjölbreytt.
„Þetta er ríkidæmi af fallegum
grípandi laglínum,“ segir Hörður og
bendir á að víða erlendis sé Messías
fluttur á aðventunni, en einn þáttur
verksins tengist jólunum.
Víða flutt á aðventunni
„Mótettukórinn fórnar í ár sínum
hefðbundnu jólatónleikum, sem fólk
hefur sótt mikið í, fyrir þetta stóra
verkefni sem er að sjálfsögðu ansi
miklu flóknara og dýrara að setja á
svið en venjulegir jólatónleikar með
fáum einsöngvurum og hljóðfæra-
leikurum. En okkur fannst kominn
tími til að Mótettukórinn fengi
tækifæri til að upplifa þetta verk í
flutningi,“ segir Hörður og tekur
fram að þar sem Mótettukórinn sé
mun fjölmennari kór en Schola can-
torum munu stóru kórkaflar verks-
ins virka voldugri og kröftugri en á
tónleikunum fyrir tíu árum. „Af
þeim sökum erum við með aðeins
fjölmennari hljómsveit til að bakka
kórinn upp,“ segir Hörður og bend-
ir á að Alþjóðlega barokksveitin í
Hallgrímskirkju sé skipuð úrvals-
hljóðfæraleikurum víðs vegar að úr
heiminum.
„Sveitin hefur átt ómetanlegan
þátt í að kynna flutningsmáta og
hljóðfæri barokktímans hér á
landi,“ segir Hörður og rifjar upp
að sveitin hafi upphaflega verið
skipuð tónlistarfólki sem stundað
hafði nám við barokkdeild Kon-
unglega tónlistarháskólans í Den
Haag í Hollandi. „Í dag koma fæstir
hljóðfæraleikararnir frá Hollandi,
enda fólk snúið aftur heim að námi
loknu. Fjórðungur sveitarinnar býr
og starfar hérlendis,“ segir Hörður
og tekur fram að sá sem komi
lengst að sé óbóleikari frá Suður-
Ameríku. Þess má að lokum geta að
miðar eru seldir á midi.is og við inn-
ganginn.
Ljósmynd/Hannah Linn Janssen
Hátíðleiki Hörður Áskelsson ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju.
„Ríkidæmi af fal-
legum laglínum“
Messías eftir Händel um helgina
Sólveig Pálsdóttir hefur sýntgóða spretti í bókum sínumog bregður ekki út af van-anum í glæpasögunni
Fjötrum. Fléttan er skemmtileg,
persónur eftirminnilegar, glæpir
viðbjóðslegir og spennan töluverð á
köflum.
Lögreglan undir stjórn Guðgeirs
Franssonar fær
það verkefni að
rannsaka andlát
38 ára myndlist-
arkonu, Kristínar
Kjarr, í fangels-
inu á Hólmsheiði.
Svala fangels-
isvörður segir
eitthvað undar-
legt við andlátið
því Kristín hafi
verið kát og glöð og unnið að því að
mála myndir fyrir sýningu. Guðgeir
tekur í sama streng og rannsóknin
leiðir lögregluna að mannshvarfi
fyrir 19 árum. Sagan snýst um
hugsanlega tengingu en mikið á eft-
ir að gerast áður en yfir lýkur.
Nauðgun er stefið og er vel tekið
á glæpnum og því sem honum fylgir
eins og meðvirkni og fjötrum, eins
og bókarheitið gefur til kynna.
Margir koma við sögu og vettvang-
urinn teygir sig frá höfuðborgar-
svæðinu norður og austur á land, til
Bretlands og Ástralíu. Andrea Ey-
þórsdóttir er einn skemmtilegasti
karakterinn. Hún er kynnt til sög-
unnar sem upptekinn áhrifavaldur
af útlitinu, og óneitanlega koma
ljóskubrandarar upp í hugann, en
viðskiptafræðingurinn vinnur á og
er mun skarpari en fyrsta mynd
gefur til kynna.
Guðgeir er í lykilhlutverki og
stendur sig vel, jafnt í vinnunni sem
í fjölskyldulífinu. Traustur í alla
staði, rétt eins og Guðrún, sam-
starfskona hans.
Daði, lögfræðingur og bróðir
Andreu, er kuldalegur og fráhrind-
andi stjórnandi fjölskyldufyrirtæk-
isins, gott dæmi um að sjaldan fell-
ur eplið langt frá eikinni.
Þessi fjögur eru mest áberandi
og halda lesandanum við efnið. Þau
sýna á sér ýmsar hliðar, viljandi eða
óviljandi, en annars er það Kristín
sem flest snýst um. Frásögnin verð-
ur æ hrottalegri eftir því sem á líð-
ur og viðbjóðurinn virðist óstöðv-
andi.
Sagan er ágætlega skrifuð og
samskipti fólks frekar raunsæ, sem
eykur á trúverðugleikann. Hann
bíður þó hnekki undir lokin og
dregur það úr mætti sögunnar.
Morgunblaðið/Hari
Flétta Að sögn rýnis hefur Sólveig Pálsdóttir sýnt góða spretti í bókum sín-
um og bregður ekki út af vananum í glæpasögunni Fjötrum.
Glæpasaga
Fjötrar bbbnn
Eftir Sólveigu Pálsdóttur.
Salka 2019. 286 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Fjötrar í flottri fléttu
Taktur og tilfinning er heiti mynd-
listarsýningar sem Jóhanna V. Þór-
hallsdóttir opnar í Gallerí Göngum
í safnaðarheimili Háteigskirkju kl.
12 á morgun, sunnudag, eða strax
eftir messu. Þetta er sjötta einka-
sýning Jóhönnu hér á landi og vísar
heiti sýningarinnar í tónlistina, sem
leikur stórt hlutverk hjá Jóhönnu
þegar hún málar. „Myndirnar
hreyfast í takt við tónlist sem er
alltaf nálæg í sköpun Jóhönnu.“
Sýning Jóhönnu í Göngum
Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir að störfum.
Um þessar mundir stendur yfir í
Hafnarborg í Hafnarfirði yfirlits-
sýning á verkum Guðjóns Sam-
úelssonar, húsameistara ríkisins
1920-1950. Á morgun, sunnudag,
kl. 14 mun Ágústa Kristófersdóttir,
forstöðumaður Hafnarborgar og
annar sýningarstjóra, vera með
leiðsögn um sýninguna. Öld er nú
liðin frá því að Guðjón lauk há-
skólaprófi í byggingarlist og varð
húsameistari ríkisins ári síðar.
Segir frá sýningu um Guðjón
Húsameistarinn
Guðjón Samúelsson.