Morgunblaðið - 07.12.2019, Qupperneq 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019
Ég hlakka svo til nefnist sölusýn-
ing um 160 listamanna sem opnuð
verður í Ásmundarsal í dag, laug-
ardag, kl. 15. Sambærileg sýning
var haldin í salnum fyrir jól í
fyrra og naut bæði góðrar aðsókn-
ar og sölu. Myndlist mun þekja
veggi Ásmundarsalar fram að ára-
mótum og er talið að um 500 verk
verði til sölu. Með þessum jólasýn-
ingum, í fyrra og í ár, er endur-
vakin gömul hefð því svipaðar
sölusýningar voru haldnar fyrir jól
í Listvinasalnum á fimmta áratug
síðustu aldar og upphenging í hin-
um góðkunna salon-stíl, þ.e. frjáls-
leg og veggpláss nýtt til hins ýtr-
asta. Voru þá verk þekktustu
listamanna þjóðarinnar sýnd með
verkum yngri og minna þekktra
listamanna, líkt og gert er nú í
Ásmundarsal.
Seldum verkum verður pakkað
inn í silkiþrykktan jólapappír í
sérstakri innpökkunarstöð grafík-
félagsins Prents & vina sem sér
jafnframt um sýningarstjórnun. Í
Gryfjunni verður sett upp grafík-
verkstæði þar sem valdir lista-
menn vinna svarthvít verk í upp-
lagi á hverjum degi yfir sýningar-
tímabilið sem verða svo sýnd á
veggjum kaffihúss Ásmundarsalar.
200 metrar af jólapappír
Sigurður Atli Sigurðsson rekur
Prent & vini ásamt Leifi Ými Eyj-
ólfssyni og voru þeir önnum kafnir
við undirbúning sýningarinnar
þegar blaðamaður sló á þráðinn.
Voru þá búnir að silkiþrykkja um
200 metra af jólapappír í tveimur
litum og auk þess jólakort sem
seld verða á sýningunni.
Sigurður segir að listamönnum
hafi verið boðið að taka þátt í sýn-
ingunni og að síðan hafi verið val-
ið úr innsendum verkum. Hann er
spurður að því hvort þessi mikli
fjöldi verka komist fyrir í húsinu
og segist hann búinn að reikna út
að um 400 verk komist á veggina
sem lausir eru. Verkunum fækkar
svo eðlilega eftir því sem þau selj-
ast en áhugasamir þurfa ekki að
örvænta því nóg verður til, öðrum
verkum verður bætt við í stað
hinna seldu, á meðan birgðir end-
ast.
Sigurður segir gaman frá því að
segja að verk eftir einn þeirra
sem tóku þátt í sýningunum í
Listvinasalnum fyrir um 70 árum,
Valtý Pétursson, verði á sýning-
unni. „Þetta eru allt listamenn
sem hafa skapað sér eitthvert
nafn, hafa haldið sýningar og eru
virkir,“ segir hann um hinn fjöl-
breytta hóp sýnenda.
Sýningin verður opin milli jóla
og nýárs og lýkur í árslok, sem
fyrr segir. helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Jólastemning Aðstandendur sýningarinnar og hluti fjölbreytilegra verkanna sem þekja veggi Ásmundarsalar.
Verkum þaktir veggir
Jólasýning á verkum 160 listamanna í Ásmundarsal
Seldum verkum pakkað inn í sérþrykktan jólapappírDularfullt hvarf þýsks jarð-fræðings og myndlistar-manns í Öskju árið 1907er efniviður Ínu, sögu-
legrar skáldsögu eftir Skúla Thor-
oddsen og þeirrar fyrstu frá höfundi.
Höfundur fylgir eftir Ínu, kærustu
annars þeirra
horfnu, sem
kemur hingað til
lands í leit að
sannleikanum
um örlög unnust-
ans.
Það er vanda-
samt verk að
skrifa sögulega
skáldsögu; þurfa
að setja sig í spor manna sem raun-
verulega lifðu, segja frá uppá-
tækjum þeirra en gera þeim um leið
upp skoðanir og hvatir. Margir hafa
brennt sig á þessu, en ekki Skúli.
Bókin byggist á ferðasögu Ínu
sjálfrar en þó einkum því ósagða.
Höfundi tekst þar vel til að geta í
eyður og lesendur eiga auðvelt með
að samsama sig með frjálslyndu „nú-
tímakonunni“ sem heldur yfir úthaf-
ið. Hún verður að komast að því hvað
kom fyrir, en óttast sannleikann um
leið, og þessi togstreita verður henni
sem leiðarljós í Íslandsförinni.
Þótt innri átök Ínu séu í forgrunni
er saga ævintýramannanna Walters
von Knebels og Max Rudloffs ekki
síður áhugaverð og raunar athygl-
isvert að henni hafi ekki verið gerð
betri skil í íslenskum skáldskap áð-
ur.
Stíll Skúla er knappur. Stuttar og
snubbóttar setningar. Ein tilfinning
í einu. Svo punktur. Dálítið eins og
hér.
Þetta form er vel til þess fallið að
lýsa óreiðukenndum hugsunum
sögupersóna og yfirþyrmandi áreiti
umhverfisins, þegar við á, en stund-
um finnst manni fullmikið af hinu
góða. Á köflum er erfitt að halda
þræði þegar samhengislausum setn-
ingunum ægir saman, og sagan líður
fyrir það.
„Ég öfunda þig ekki að þurfa að
klára þessa bók,“ sagði vinur minn
þegar ég var á fyrsta kafla, sem ein-
mitt er besta dæmið um þennan stíl.
En bókina má ekki dæma af káp-
unni, og alls ekki af fyrsta kaflanum.
Ína er ekki auðlesin, en hún er fróð-
leg og skemmileg og skilur lesand-
ann eftir með áleitnar spurningar
um sögu þjóðar og bókmenntaarf-
inn, já og guð almáttugan. Ekki
amalegt veganesti.
Morgunblaðið/Hari
Fróðleg Dularfullt hvarf þýsks jarðfræðings og myndlistarmanns í Öskju
árið 1907 er efniviður Ínu, sögulegrar skáldsögu eftir Skúla Thoroddsen.
Ekki dæma bók-
ina af fyrsta kafla
Söguleg skáldsaga
Ína bbbnn
Eftir Skúla Thoroddsen.
Sæmundur, 2019. Innb. 280 bls.
ALEXANDER GUNNAR
KRISTJÁNSSON
BÆKUR
Tvær sýningar verða opnaðar í dag
kl. 15 í Listasafninu á Akureyri,
annars vegar sýning Marzenu Sku-
batz, HEIMAt, og hins vegar sýn-
ing á verkum Elínar Pjet. Bjarna-
son, Handanbirta / Andansbirta –
valin verk úr safneign Listasafns
ASÍ.
Í þeirri fyrrnefndu fer Skubatz á
slóðir þýskra kvenna sem fluttust
til Íslands til að starfa í sveitum
landsins árið 1949. Íslenska konsú-
latið í Þýskalandi auglýsti eftir
verkafólki til starfa í sveitum
landsins það ár og um 900 manns
svöruðu auglýsingunni. Um 280
konur og 79 karlar sigldu með Esj-
unni til Íslands og margar þýskar
konur dvöldu lengur en til stóð og
hófu jafnvel nýtt líf á Íslandi, að
því er fram kemur í tilkynningu.
Skubatz fór á slóðir kvenna úr
þessum hópi og tók ljósmyndir fyr-
ir verkefnið HEIMAt og er útkom-
an sögð ljóðrænt verk þar sem
minningar og að festa rætur á nýj-
um stað séu kjarninn. Sýningin er
sett upp í samvinnu við þýska
sendiráðið á Íslandi.
Elín Pjet. Bjarnason (1924-2009)
bjó í Kaupmannahöfn frá 21 árs
aldri til dauðadags. Hún nam
myndlist við Listaháskólann í
Kaupmannahöfn og tók reglulega
þátt í samsýningum þar í borg en
sýndi aðeins einu sinni í Reykjavík,
með Vigdísi Kristjánsdóttur vefara
árið 1968. Fyrsta einkasýningin á
verkum hennar var haldin í Lista-
safni ASÍ 2011. Safnið geymir um
550 verk Elínar; málverk, teikn-
ingar, grafík og freskur, segir í til-
kynningu og að sýningin á Akur-
eyri sé samstarfsverkefni safnanna
tveggja. Þar verði sýnd nokkur
valin verk úr safninu sem syst-
ursynir listakonunnar, Pjetur Haf-
stein Lárusson og Svavar Hrafn
Svavarsson, færðu Listasafni ASÍ
að gjöf eftir fráfall Elínar árið
2009. Sýningarstjóri er Aðalsteinn
Ingólfsson.
Ljósmyndari Marzena Skubatz.
HEIMAt og verk Elínar
í Listasafninu á Akureyri
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Eplaedik hefur verið notað sem heilsubótarefni í aldaraðir,
bæði sem forvörn sem og vegna læknandi eiginleika.
Auk eplaediks innheldur Apple Cider ætiþistil, túnfífil og
kólín sem getur elft meltinguna, haft góð áhrif á lifrina
og leitt til eðlilegs niðurbrots á fitu.
Svo er króm sem er gott fyrir blóðsykursjafnvægið
og slær þannig á sykurlöngun.
Eplaedik
– lífsins elexír
• Hreinsandi • Vatnslosandi • Gott fyrir meltinguna • Getur lækkað blóðsykur
• Getur dregið úr slímmyndun • Gott fyrir þvagblöðru, lifur og nýru.
Aðeins ein tafla á dag og ekkert bragð!