Fréttablaðið - 04.01.2020, Síða 4
LÖGGÆSLA Embætti ríkislögreglu-
stjóra hefur áhyggjur af því að
fátækrahverfi verði til á Íslandi
samk væmt ný r ri sk ý rslu um
umhverfi löggæslu á Íslandi næstu
fimm árin. Er í skýrslunni vísað til
braggahverfanna svokölluðu á eftir-
stríðsárunum, Pólana við Laufásveg
sem reistir voru eftir fyrri heims-
styrjöld og Höfðaborgina við Höfða.
Þessi hverfi, sem reist voru vegna
húsnæðiseklu, hafi staðið lengi sem
sé til marks um hversu erfitt geti
reynst að vinda ofan af þeim vanda
sem ónóg félagsleg blöndun skapi.
Vísað er til aðlögunar innf lytj-
enda á hinum Norðurlöndunum
sem hafi víða ekki verið í samræmi
við væntingar stjórnvalda. Stórir
hlutar hverfa séu byggðir innflytj-
endum frá ákveðnum svæðum
heimsins. „Í þeim tilvikum mynd-
ast einsleit nærsamfélög að mestu
byggð jaðarsettum þjóðfélags-
hópum,“ segir í skýrslunni. Þessir
hópar eigi á hættu að einangrast,
meðal annars vegna félagslegrar
stöðu og tungumáls, og löggæslan
á hverjum stað hafi ekki nægileg
sambönd eða aðgang að þeim. Lög-
reglan hefur áhyggjur af myndun
gengja og glæpahópa sem skapi álag
fyrir löggæsluna.
Lögreglan óttast að þegar sé hlut-
fall innflytjenda orðið hátt í ýmsum
sveitarfélögum og hverfum borgar-
innar. Samkvæmt tölum frá Hag-
stofunni er hlutfallið í Reykjavík
hæst á Kjalarnesi (75 prósent), þá í
Efra-Breiðholti (35) og í Bökkunum
(29). Þar á eftir koma rótgrónari
hverfi í vesturhluta borgarinnar
eins og Austurbærinn (28), gamli
Vesturbærinn (27), Norðurmýrin
(23) og Háaleitið (23). Hlutfall inn-
f lytjenda er hátt á Suðurnesjum,
svo sem í Reykjanesbæ (28), Suður-
nesjabæ (25), Vogum (24) og Grinda-
vík (21). Einnig í sveitarfélögum
annars staðar á landsbyggðinni,
til dæmis Rangárþingi eystra (24),
Hornafirði (22), Ölfusi (21), Ísafirði
(19) og Fjarðabyggð (17).
Gert er ráð fyrir að Íslendingum
fjölgi um tæplega 80 þúsund á
næstu hálfu öld, að mestu leyti
vegna fólksf lutninga. Fjöldi lög-
reglumanna stendur hins vegar
í stað og menntuðum lögreglu-
mönnum hefur fækkað undanfarin
ár. Núverandi þörf séu 860 lögreglu-
menn að lágmarki en alls eru 645
starfandi í dag. Við þetta bætist
ferðamannasprengjan sem eykur
enn á álag lögreglunnar. Á síðasta
áratug hefur fjöldi lögreglumanna
á hverja þúsund einstaklinga stað-
setta á landinu hverju sinni lækkað
úr 0,9 niður í 0,2.
Í skýrslunni eru einnig settar
upp nokkrar sviðsmyndir fyrir
árið 2035, hvernig aðstæður gætu
orðið miðað við styrk lögreglunnar
og afstöðu almennings. Í f lestum
sviðsmyndunum eru „viðkvæmu
svæðin“, það er hverfi og sveitarfélög
þar sem hlutfall innflytjenda er hátt,
vandamál. Hverfaskipting verði
áberandi, gengjamyndun hefjist og
löggæsla verði erfið. Í einni sviðs-
myndinni, þar sem áhersla á lög-
gæslu er þung og afstaða almennings
jákvæð, er gert ráð fyrir að 100 lög-
reglumenn af erlendu bergi brotnir
hafi tekið til starfa, flestir pólskir, og
starfi að mestu leyti í hverfum þar
sem innf lytjendur eru fjölmenn-
astir. kristinnhaukur@frettabladid.is
Á síðasta áratug hefur
fjöldi lögreglumanna á
hverja þúsund einstaklinga
lækkað úr 0,9 niður í 0,2.
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
Í tilefni af þriggja ára afmæli Jeep® umboðsins á Íslandi bjóðum við
Jeep® Compass Limited hlöðnum lúxusbúnaði á ótrúlegu tilboðsverði
• Leðurinnrétting með rafdrifnum sætum
• Leðurklætt aðgerðastýri
• Rafdrifin opnun á afturhlera
• Hiti í stýri og framsætum
• Íslenskt leiðsögukerfi
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
• Alpine hljómflutningstæki með bassaboxi
• Sjálfvirk tveggja svæða miðstöð með
loftkælingu
• Aðfellanlegir og upphitaðir hliðarspeglar
• Bluetooth til að streyma tónlist og síma
• Svart þak
• 140 hö. diesel, 9 gíra sjálfskipting
• Select-Terrain fjórhjóladrif með 4
drifstillingum
• Bakkmyndavél
• Fjarlægðaskynjarar að framan og aftan
• Árekstrarvari
• LED dagljós og LED afturljós
• 18” álfelgur
• Blindhorns- og akreinavari
• Fjarlægðarstilltur hraðastillir
• Leggur sjálfur í stæði
JEEP® COMPASS LIMITED
jeep.is
FULLT VERÐ MEÐ AUKAHLUTUM: 7.424.000 KR. - TILBOÐ: 5.990.000 KR.
TAKMARKA
Ð MAGN
5.990.000
kr.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
TÖLUR VIKUNNAR 29.12.2019 TIL 04.01.2019
134
fyrirtæki voru komin
með jafnlaunavottun
um áramót.
381
heimili eyðilagðist í
skógareldum í Nýja
Suður-Wales í vikunni.
21
sinni meira svifryk
mældist um áramótin í
fyrra en í ár.
10
voru vistaðir á lögreglu-
stöðinni á höfuðborgar-
svæðinu um áramótin.
14
voru sæmdir riddara-
krossi hinnar íslensku
fálkaorðu í vikunni.
Guðni Th. Jóhannesson
forseti Íslands
sagði í nýárs-
ávarpi sínu
í Ríkissjón-
varpinu að
hann myndi
bjóða sig fram til
endurkjörs í næstu
forsetakosningum sem fara fram
í ár.
Ingveldur Einarsdóttir
dómari við Landsrétt
fékk í vikunni
afhent skip-
unarbréf í
embætti hæsta-
réttardómara.
Skipunarbréfið
var afhent eftir
að forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, féllst á
tillögu Áslaugar Örnu Sigurbjörns-
dóttur dómsmálaráðherra um
skipan Ingveldar í embættið.
John Snorri Sigurjónsson
fjallgöngumaður
ætlar að klífa
fjallið K2, sem
er næsthæst í
heimi og ein-
staklega mann-
skætt og ætlar
John Snorri að
verða fyrstur manna
til að klífa það að vetri til.
Þrjú í fréttum
Forsetinn,
Hæstiréttur og
fjallganga
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Lögreglan hefur áhyggjur af
því að fátækrahverfi verði til
Embætti ríkislögreglustjóra hefur áhyggjur af því að fátækrahverfi myndist á Íslandi samkvæmt nýrri
skýrslu. Vísað er til aðlögunar innflytjenda á hinum Norðurlöndunum sem hafi víða ekki verið í sam-
ræmi við vonir stjórnvalda. Hlutfall innflytjenda er hæst á Kjalarnesi, Vesturbænum og á Suðurnesjum.
Lögreglan á erfiðara með að ná til íbúa í erfiðri félagslegri stöðu sem tala ekki íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð