Fréttablaðið - 04.01.2020, Page 39

Fréttablaðið - 04.01.2020, Page 39
Lögmaður Mosfellsbæjar Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar leita að öflugum lögmanni til starfa Lögmaður Mosfellsbæjar hefur yfirumsjón með lögfræðilegum málefnum á vegum bæjarins. Hann er ráðgjafi bæjarstjóra, bæjarráðs, bæjarstjórnar, nefnda, sviða, deilda og stofnana bæjarins varðandi lögfræðileg málefni. Hann ber ábyrgð á og stýrir undirbúningi og flutningi dómsmála fyrir dómstólum landsins og sér um samskipti við lögmenn utanhúss. Lögmaður veitir ráðgjöf við samningaumleitanir, samningagerð og aðra skjalagerð, ásamt því að veita veita upplýsingar um tryggingamál. Lögmaður Mosfellsbæjar er ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar og sér um boðun funda og samskipti við kjörna fulltrúa í samvinnu við formann bæjarráðs, forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra eftir atvikum. Lögmaður starfar á þjónustu- og samskiptadeild bæjarins. Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is Menntunar- og hæfnikröfur: ● Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði er skilyrði. ● Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi eru skilyrði. ● Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er nauðsynlegt. ● Haldbær reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er skilyrði. ● Þekking á lögum um skipulags- og umhverfismál og verktakarétti æskileg. ● Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti. ● Góð samskiptafærni og tölvukunnátta er nauðsynleg. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2020. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnar Jónsson forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar í síma 525 6700. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Sálfræðingur óskast til starfa Sækja skal um störfin á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is Sálfræðingur sinnir sálfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla bæjarins. Í Mosfellsbæ er öflugt og fjölbreytilegt skólastarf. Sálfræðingur starfar á frístunda- og fræðslusviði Mosfellsbæjar og sinnir sérfræðiþjónustu innan málaflokksins á fræðsluskrifstofu Mosfellsbæjar. Sálfræðingur sinnir almennri sálfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla bæjarins. Starfsmaður ber ábyrgð verkefnum sem tengjast sálfræðilegri ráðgjöf, flóknum greiningum og handleiðslu til barna í skólum og/eða leikskólum og forráðamanna þeirra. Hann tekur þátt í samstarfi við aðra aðila sem koma að málefnum barna, sem og í forvarnarstarfi, almennri fræðslu og upplýsingagjöf, stefnumörkun og framkvæmd nýbreytni- og þróunarverkefna. Menntunar- og hæfnikröfur: ● Starfsbundin réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi. ● Góð fagleg þekking nauðsynleg og starfsreynsla æskileg. ● Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samstarfi. ● Haldbær stjórnunarreynsla svo sem verkefnastjórnun og/eða teymisstjórnun. ● Sjálfstæði í störfum, ríkt frumkvæði, jákvæðni og færni í þverfaglegu samstarfi. ● Góð íslenskukunnátta og hæfni til að setja mál fram í ræðu og riti. Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar 2020. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Udengård framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs í síma 525-6700.Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. Sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Þverholt 2 | Mosfellsbær 270 | Sími 525 6700 | mos.is Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.