Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 54
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Sirrý Berndsen tók nýlega við sem varaforseti Sálarrannsóknarfélags Íslands. Hún býr í borginni Boston í Bandaríkjunum þar sem hún starfar sem vinsæll og virtur miðill. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það má lýsa því þannig að við dyrnar á milli lífs og dauða bíði löng röð framliðinna sem vilja koma skilaboðum áleiðis til ástvina sinna og við opnum þessar dyr,“ segir Sirrý Berndsen, sem er virtur miðill í Bandaríkjunum, búsett og starfandi í Boston. Sirrý er heima á Íslandi yfir jólin og munu þau Þórhallur miðill, fyrir hönd Sálarrannsóknarfélags Íslands, endurvekja skyggni- lýsingu í Fríkirkjunni á morgun, sunnudag. „Skyggnilýsingar voru algengar í Fríkirkjunni á tímum Haraldar Níelssonar fríkirkjuprests og miðlanna Einars Kvaran og Ind- riða Indriðasonar á fyrri hluta síðustu aldar. Þá var ávallt fullt út úr dyrum og færri komust að en vildu. Sálarrannsóknarfélag Íslands var svo stofnað 1918, þegar frostaveturinn mikli gekk yfir og spænska veikin felldi marga. Þá ríkti mikil sorg hjá íslensku þjóðinni sem þráði að komast í samband við þá sem höfðu látist og tengjast hinum framliðnu því það hjálpar svo mikið við sorgina, og fólk verður ekki eins hrætt við dauðann og í hjartanu þegar þeirra nánustu eru hjá þeim,“ segir Sirrý. Sér, heyrir og finnur lykt Sirrý segir orkuna í Fríkirkjunni vera afar sérstaka. „Fríkirkjan hefur staðið við Tjörnina í meira en heila öld og þar hefur margt gerst. Orka í kirkjum er almennt hlý og þægileg því þar á sér stað mikil andleg starfsemi og er auðvelt fyrir miðla að fljóta á þeim bylgjum,“ segir Sirrý sem hefur þjálfað alla sína skynjun gagnvart framliðnum hjá færustu miðlum Bandaríkjanna og í Bret- landi. „Ég bæði heyri og sé þá fram- liðnu, finn lykt og bragð og stundum veit ég hluti. Það skiptir svo ekki máli hvort maður fari í bænahús kristinna manna, gyðinga, múslima eða annarra; þar sem bænir hafa verið beðnar í ára- tugi eða öldum saman byggist upp þægileg og róandi orka sem gott er að dvelja í,“ segir Sirrý sem bjó um tíma skammt frá Notre Dame- kirkjunni í París. „Þangað fór ég oft og sat löngum stundum til að sækja í orkuna, þrátt fyrir að vera guðleysingi á þeim tíma. Ég er spírítúalisti og spírítúalistar líta ekki á Jesú sem frelsara heldur kennara og að Guð búi innra með okkur öllum. Að ljósið sem Jesús kenndi okkur og talaði um sé Guð, það góða sem í okkur býr og til að finna Guð þurfi að lifa í ljósinu góða,“ útskýrir Sirrý. Engin vofveifleg tíðindi Fólk á öllum aldri sækir í að kom- ast á skyggnilýsingar. Sumir koma til að sjá miðlana vinna á meðan aðrir koma í von um skilaboð að handan og til að vera með öðrum sem eru andlega þenkjandi. „Þeir sem koma á skyggni- lýsinguna á morgun geta búist við skilaboðum að handan, ljósi, gleði og tárum en það þarf enginn að vera hræddur og við flytjum aldrei voveifleg tíðindi á opnum skyggni- lýsingafundum. Berist óþægi- legar fréttir eru þær geymdar fyrir einkafundi,“ upplýsir Sirrý. „Við einfaldlega opnum dyr á milli jarðlífs og andaheima og köllum stundum skilaboðin stuttar kveðjur. Oft vilja þeir fram- liðnu láta hina lifandi vita að þeir vaki yfir þeim og kveðjurnar geta verið mjög hjartnæmar, jafnvel svo að tárin flæði en svo kemur hlátur inn á milli og upplifunin getur verið tilfinningarússíbani,“ segir Sirrý um þá miklu geðshræringu sem gestir skyggnilýsinga upplifa. „Þegar einstaklingar hafa lifað langa ævi hefur svo margt gerst, bæði gleði og sorg. Góðir miðlar geta farið inn á hvort tveggja og rifjað upp mjög nákvæma atburði og tilfinningar sem enginn veit eða getur tekið til sín nema sá sem skilaboðin fær. Þeir framliðnu koma til okkar í gegnum leiðbein- endur sem hleypa þeim í gegn, þeir gera grein fyrir sér og við reynum að koma með sem bestu og mestu sannanir á sem stystum tíma. Þeir sem farnir eru vita að tíminn er skammur og oftar en ekki vilja þeir biðjast fyrirgefningar á einhverju sem var sagt eða gert í jarðlífinu. Því er mikilvægt að vinna úr sem flestu í lifanda lífi svo við tökum ekki með okkur aukafarangur yfir í hitt lífið. Að elska náungann eins og sjálfan sig og reyna að finna það góða í öllum.“ Drögum framliðna til okkar Sirrý hefur verið skyggn síðan hún var barn en segir bestu miðla kunna að halla dyrunum yfir í andaheiminn til að lifa sínu lífi eins og annað fólk. „Þeir dánu eru með okkur í lífinu og sérstaklega um hátíðar þegar minningarnar sækja á sem og söknuður og sorg. Við finnum fyrir þeim og þegar við hugsum til þeirra framliðnu drögum við þá til okkar. Líka þegar við verðum vör við ákveðin teikn og förum óvænt að hugsa til þess sem er fram- liðinn, þá er sá framliðni líklega hjá okkur því þau senda okkur skilaboð, oft með veraldlegum hlutum í vöku og vitja okkar í draumum. Framliðnir eru alltaf að reyna að hafa samband við okkur og þeir eru líka alltaf að hjálpa okkur,“ segir Sirrý sem bæði sér og talar við framliðið fólk. „Ég hef lært þá tækni að tengjast fólki þegar það deyr og veit í gegnum hjarta þess og hugsun hver bíður eftir því og er hjá því við dánarbeðinn. Þegar mamma andaðist um jólaleytið fyrir tveimur árum spilaði ég tónlist sem þau pabbi höfðu haft gaman af í gamla daga, Hauk Morthens og Ragga Bjarna, en pabbi dó fáeinum árum á undan. Ég sagði henni þá að pabbi væri kominn, sem og amma Dúna, mamma hennar. Þá fann ég hvernig sál mömmu léttist og hún gaf upp öndina og ég sá pabba taka í hönd hennar og þau dansa í faðmlögum rétt eins og í gamla daga. Á vakt var líka hjúkr- unarfræðingurinn Sigríður Pálína Ólafsdóttir. Amma mín hét Sig- ríður Pálína (Berndsen) og frænka mín í föðurætt var Sigríður Ólafs- dóttir. Nafn hjúkrunarfræðingsins var því blanda af þeim báðum svo skilaboðin voru allt í kring,“ segir Sirrý sem hefur starfað sem miðill til margra ára vestanhafs og notið þar mikilla vinsælda. „Miðilsstörf í Bandaríkjunum eru allt öðruvísi en hér, þar sem maður fæst við morðmál og fleira. Sem miðill ferðast ég vítt og breitt um Bandaríkin en kem heim af og til og reyni þá að vera með fáeina miðilsfundi. Nýlega tók ég að mér að vera varaforseti Sálarrann- sóknarfélags Íslands þar sem ég held námskeið og einkafundi. Það er mikill kraftur í félaginu undir stjórn nýja forsetans Báru Sigur- jónsdóttur og margt áhugavert og spennandi fram undan.“ Skyggnilýsingin með Sirrý og Þórhalli miðli hefst í Fríkirkjunni klukkan 16 á morgun, sunnudag- inn 5. janúar. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis. Þeir dánu lifa með okkur Tveir af mögnuðustu miðlum þjóðarinnar, Þórhallur Guðmundsson og Sirrý Berndsen, leiða skyggnilýsingu í Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun. Þar opnast dyr á milli framliðinna og lifandi. Framliðnir eru alltaf að reyna að hafa samband við okkur og þeir eru líka alltaf að hjálpa okkur. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.