Fréttablaðið - 04.01.2020, Page 71

Fréttablaðið - 04.01.2020, Page 71
Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is 4.  JANÚAR 2020 Hvað? Fyrirlestur á vegum Tón- skáldafélagsins Hvenær? 13.00 Hvar? Tónskóli Sigursveins, Engjateigi Srdjan Teparic, prófessor frá Tón- listarakademíunni í Belgrad, talar. Hvað? Ferskir vindar Hvenær? 14.00 Hvar? Sunnubraut 4, Garðinum, Suðurnesjabæ Listahátíðin Ferskir vindar verður opnuð í sjötta sinn, nú af Elizu Reid forsetafrú. Graham Paul, sendiherra Frakklands, heiðrar samkomuna. Í kjölfarið verður leiðsögn um sýningarsvæðin sem hefst kl. 15.00. Hvað? Gjörningur Hvenær? 16.30 Hvar? Deiglan, Listagilinu Akureyri Listatvíeykið The Bull and Arrow kemur fram. Með því að leita djúpt í ímynduninni og andanum skapa þau lifandi gjörning og innsetn- ingu með ljósi, mynd, gjörningi og hljóði. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Hvað? Sýningaropnun Hvenær? 14.00 Hvar? Gallery Grásteinn, Skóla- vörðustíg 4 Feðginin Guðrún Nielsen og Ólaf- ur W. Nielsen opna ljósmyndasýn- inguna Auðn. Myndir Guðrúnar eru úr nýlegri seríu hennar en elstu myndir Ólafs eru teknar fyrir um 70 árum. Hvað? Kolasmiðja fyrir alla fjöl- skylduna Hvenær? 13.00-15.00 Hvar? Gerðarsafn, Hamraborg 4 Fjölskyldum boðið að fagna hækk- andi sól með kolasmiðju sem tengist sýningunni Fullt af litlu fólki í Gerðarsafni en sýningunni lýkur um helgina. Myndlistar- konurnar Guðrún Vera og Sigrún Halldóra leiða smiðjuna en gestir eru hvattir til að klæðast hlífðar- fötum. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis. Hvað? Nýárs- og afmælisfagnaður Hvenær? 20.00-01.00 Hvar? Nýlistasafnið, Grandagarði 20 Tónlistar- og gjörningadagská og happdrætti. Tilberinn fyrir árið 2019 afhentur. Sérstakir gestgjafar kvöldsins eru Tara og Silfrún með sérstakri aðstoð frá Sean Patrik O'Brien. Aðgangur 1.500 krónur. Vissara er að taka með sér hlífðar- föt í Kolasmiðjuna í Gerðarsafni, því að kol geta farið illa með við- kvæman fatnað. Menningar- og listamiðstöðin Hafnarborg í Hafnarfirði. Hvað? Hvenær? Hvar? Sunnudagur hvar@frettabladid.is 5. JANÚAR 2020 Hvað? Sýningarleiðsögn Hvenær? 14.00 Hvar? Hafnarborg Leiðsögn um yfirlitssýningu á verkum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins, með Ágústu Kristófersdóttur, forstöðumanni og sýningarstjóra. Sýningin var sett upp í fyrra í tilefni þess að öld var liðin frá því að Guðjón lauk háskólaprófi í byggingarlist, fyrstur Íslendinga, og var skipaður húsa- meistari ríkisins ári síðar. Hvað?  Slagverkstónleikar Hvenær? 20.30 Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2 Trymbillinn Ægir Sindri kemur fram í fyrsta skipti með einyrkja- verkefni sem hefur verið í mótun um skeið. 75%AFSLÁTTURAf fartölvu- og spjaldtölvutöskum ALLT AÐ 10.000AFSLÁTTURAf öllum Chromebook FARTÖLVUSPRENGJAFARTÖLVUR Í MIKLU ÚRVALI Á ÓTRÚLEGU TILBOÐSVERÐI ÚT ALLAN JANÚAR EÐA MEÐAN BIRGÐIR ENDAST ÚTSALA ÁRSINS ALLT AÐ 1.990VÍRUSVÖRN!Verð áður 2.990 50.000AFSLÁTTUR ALLT AÐ Af Lenovo fartölvum 30.000AFSLÁTTUR ALLT AÐ Af HP fartölvum 30.000AFSLÁTTUR ALLT AÐ Af Acer fartölvum 4. janúar • Tilboð gilda út janúar 2020 eða m eðan birgðir endast. B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 Opnunartími Í dag laugardag er opið 10-18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 39L A U G A R D A G U R 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.