Fréttablaðið - 25.01.2020, Page 2
Þetta er afar leiðin-
legt en við höfum í
raun engar aðrar upplýs-
ingar um hvað hafi gerst
ytra.
Héðinn Gunnarsson,
forstöðumaður hjá Íslandspósti
VERÐ FRÁ 103.900 KR.
Á MANN M.V. TVO FULLORÐNA & TVÖ BÖRN
12. - 19. FEBRÚAR
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS
GARA SUITES 4*
SAMFÉLAG Fjölmargir viðskipta-
vinir Íslandspósts eru í sárum vegna
þess að jólagafir til ástvina í Banda-
ríkjunum skiluðu sér ekki í tæka tíð.
Flesta grunaði að sendingunni hefði
seinkað en núna, mánuði eftir jól,
bólar ekkert á pökkunum.
Í hópi þessara viðskiptavina eru
hjónin Davíð Bjarnason og Unnur
Karlsdóttir en þau sendu tvo pakka
til dóttur sinnar og barnabarna
ytra. Pakkarnir fóru í póst þann 6.
desember en síðan hefur hvorki sést
tangur né tetur af þeim. Davíð vakti
athygli á málinu á Facebook-síðu
fyrir Íslendinga í Bandaríkjunum
og þá kom í ljós að fjölmargir voru í
sömu sporum. Hjónin eru verulega
ósátt við þjónustu Íslandspósts.
„Við höfum hringt margoft út af
pökkunum í Íslandspóst en fáum
aldrei nein skýr svör. Einu upplýs-
ingarnar sem við höfum fengið eru
þær að beðið sé eftir staðfestingu
frá bandaríska póstinum,“ segir
Davíð. Þau hafi reynt að rekja afdrif
pakkans með þar til gerðu númeri á
heimasíðu Íslandspósts en síðustu
upplýsingarnar voru þær að verið
væri að undirbúa pakkann fyrir
f lug þann 9. desember.
„Dóttir okkar ytra hefur síðan
fengið þær upplýsingar að pakkinn
virðist aldrei hafa yfirgefið Ísland,“
segir Davíð. Heildarverðmæti pakk-
anna var um 60 þúsund krónur og
segist Davíð ekki hafa fengið neinar
upplýsingar frá Íslandspósti um
hvort að sú upphæð fáist bætt. Þá
hafi verið talsverð vandræði með
pakka sem dóttir þeirra sendi til
þeirra frá Bandaríkjunum.
„Sá pakki fór í hraðsendingu frá
Bandaríkjunum talsvert fyrir jól
en barst ekki fyrr en löngu eftir jól,“
segir hann.
Héðinn Gunnarsson, forstöðu-
maður vörustýringar hjá Íslands-
pósti, staðfestir að sendingin með
gjöfunum hafi týnst á JFK-f lug-
velli. Hann segist ekki muna eftir
því að slíkt tilvik hafi áður komið
upp hjá fyrirtækinu. „Þetta er afar
leiðinlegt en við höfum í raun engar
aðrar upplýsingar um hvað hafi
gerst ytra. Það hefur komið fyrir að
sendingar finnist ekki í nokkra daga
en að sending týnist alfarið, eins og
margt bendir núna til, er mjög sjald-
gæft,“ segir Héðinn.
Að hans sögn gefur Íslandspóstur
sér 90 daga þar til að sendingin er
afskrifuð og hafist er handa við að
greiða út bætur. Héðinn hvetur við-
skiptavini sem glötuðu gjöfunum til
að senda þegar í stað endurkröfu-
skýrslur á Íslandspóst en bíða ekki
þar til að 90 dagar séu liðnir.
bjornth@frettabladid.is
Bretti með jólagjöfum
týndist á JFK-flugvelli
Vörubretti Íslandspósts með 200 jólagjöfum frá Íslandi týndist í New York
rétt fyrir jól. Tjónið hleypur á milljónum króna en afar sjaldgæft er að slíkt
gerist. Viðskiptavinir eru ósáttir við skort á upplýsingum frá fyrirtækinu.
Íslandspóstur gefur sér 90 daga þar til pakkar eru afskrifaðir og tjón bætt.
Flottir taktar á svellinu
2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Veður
S- eða breytileg átt 5-10 m/s og
stöku él, bjartara austast á landinu.
Vaxandi A- og N-átt með snjókomu
í kvöld, 15-25 m/s í nótt og víða
snjókoma eða él. SJÁ SÍÐU 40
STJÓRNSÝSLA Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs, og Margrét
Friðriksdóttir, forseti bæjarstjórnar,
lýstu yfir stuðningi við Birki Jón
Jónsson, stjórnarformann Sorpu,
og stjórnina í máli er tengist gas- og
jarðgerðarstöð í Álfsnesi.
Á bæjarráðsfundi á fimmtudag
var stjórnin harðlega gagnrýnd af
fulltrúum BF, Viðreisnar, Samfylk-
ingar og Pírata. Sagði bæjarfulltrú-
inn Theodóra S. Þorsteinsdóttir að
ábyrgð stjórnarformannsins væri
mest, hann ætti að tryggja upplýs-
ingagjöf til stjórnar. Lýsti hún yfir
vantrausti á Birki og óskaði eftir að
bærinn tilnefndi annan fulltrúa.
Ármann og Margrét vísuðu
hins vegar til þess að misbrestur
hefði verið í upplýsingagjöf fram-
kvæmdastjóra til stjórnar.
„Undirrituð lýsa yfir stuðningi
við stjórn og stjórnarformann í
þessari vegferð,“ var bókað. – khg
Styðja Birki Jón
og stjórnina í
Sorpumálinu
HEILBRIGÐISMÁL Minnst 26 eru
látnir af völdum kórónaveirunnar
og hátt í þúsund hafa smitast. Veir-
an kom fyrst upp í borginni Wuhan
í Kína í kringum áramótin. Hefur
umferð til og frá 16 borgum í land-
inu verið lokað. Alls nær lokunin
til 46 milljóna manna. Í gærkvöldi
staðfesti heilbrigðisráðherra Frakk-
lands að búið væri að staðfesta eitt
tilfelli í landinu. Tvö tilfelli hafa
verið staðfest í Bandaríkjunum, er
nú verið að kanna ástand á sjöunda
tug sjúklinga þar í landi. Grunur er
um að veiran hafi borist til f leiri
landa, þar á meðal Finnlands.
Um er að ræða áður óþekkt
af brigði kórónaveiru sem kallast
2019-nCoV. Veiran er sennilega
upprunnin í dýrum en hefur nú
öðlast hæfileika til að sýkja menn.
Staðfest er að veiran getur smitast
manna á milli en óljóst er hversu
smitandi hún er. Einkenni geta líkst
kvefi en einnig valdið alvarlegum
veikindum.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læk nir hef u r, í samráði v ið
almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra, hafið vinnu í samræmi við
fyrirliggjandi viðbragðsáætlunum
um alvarlega smitsjúkdóma. Allar
heilbrigðisstofnanir á landinu hafa
verið upplýstar um hina nýju veiru
og þær hvattar til að uppfæra sínar
viðbragðsáætlanir og huga að ein-
angrunaraðstöðu. – ab
Hátt í þúsund
manns smitaðir
Ferðalangur frá Wuhan fær ekki að
snúa til síns heima frá Rússlandi.
Þrettándu Reykjavíkurleikunum lýkur núna um helgina. Keppt er í 23 íþróttagreinum, allt frá akstursíþróttum til pílukasts. Leikarnir hófust um
síðustu helgi með keppni í badminton. Allt að þúsund erlendir keppendur eru nú staddir hér á landi til að taka þátt í leikunum. Í gær fór fram keppni
á listskautum í Skautahöllinni. Mátti þar meðal annars sjá þessa hæfileikaríku stúlku sýna það sem fagfólk kallar túlkun á tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR