Fréttablaðið - 25.01.2020, Page 12

Fréttablaðið - 25.01.2020, Page 12
 Áætlað er að allt að milljarður manna horfi á vorhátíðarveislu kínverska ríkissjónvarpsins, CCTV, sem sýnd verður á laugar- dagskvöld. Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 17. skipti þann 6. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er laugadagurinn 1. febrúar. Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir: • Besta umfjöllun ársins 2019 • Viðtal ársins 2019 • Rannsóknarblaðamennska ársins 2019 • Blaðamannaverðlaun ársins 2019 Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ, www.press.is Blaðamannaverðlaun 2019 KÍNA Líkt og Íslendingar horfa saman á Skaupið á hverju ári horfa kínverskar fjölskyldur saman á vorhátíðarveislu kínverska ríkis- sjónvarpsins, CCTV, sem sýnd verður þessa helgi. Tilefnið er mikilvægasta hátíð Kínverja, ára- mót þeirra samkvæmt hinu forna mána-almanaki. Á þessum síðasta degi ársins sam- einast fjölskyldur og snæða ýmsa táknræna rétti. Líkt og á íslensku aðfangsdagskvöldi fá börnin gjafir eftir matinn. Fjölskyldur horfa síðan á Vorhátíðarveisluna í ríkis- sjónvarpinu. Vorhátíðarveislan er árlegur fimm tíma sjónvarpsþáttur sem stendur yfir á gamlársdag frá klukk- an sjö að kvöldi fram að miðnætti. Þátturinn er talinn með mesta fjölda áhorfenda allra þátta í heim- inum. Þannig er fjöldi áhorfenda áætlaður að minnsta kosti 700 milljónir. Talið er að meira en einn milljarður áhorfenda hafi horft á Vorhátíðarveisluna árið 2018. Vorhátíðarveislan sýnd um helgina Dagskráin inniheldur blöndu af gamanþáttum, söngvum og dansi, fimleikum og töfrum sem fremstu listamenn f lytja. Dagskránni er ætlað að endurspegla hina tugi þjóðarbrota Kína og að vera fyrir alla aldurshópa. Með breyttri sjónvarpstækni hefur sviðið stækkað. Undanfarin ár hefur hluti þáttarins verið sendur út frá sérstökum vinnustofum í öðrum landshlutum Kína, svo sem Guangzhou, Xi'an og Xichang. Dagblaðið China Daily segir að í fyrra hafi meira en 20.000 lista- menn komið fram í dagskránni eftir áralangan undirbúning. – ds Byltingin lifir í Venesúela Nicolas Maduro, forseti Venesúela, á baráttufundi gegn heimsvaldastefnu við Miraf lores-forsetahöllina í höfuðborginni Karakas. Sósíalistaf lokk- ur Venesúela, sem stýrt hefur landinu í tvo áratugi, skipulagði fundinn. Sameinuðu þjóðirnar áætla að meira en 4 milljónir manna hafi f lúið landið vegna stjórnmála- og efnahagsástandsins. Ísland, líkt og f lest vestræn ríki, viðurkennir ekki Maduro sem forseta landsins. NORDICPHOTOS/GETTY Aðalbygging kínverska ríkissjón- varpsins, CCTV, í höfuðborginni Beijing. NORDICPHOTOS/GETTY MANNRÉTTINDI Skýrsla nefndar Evrópuráðsins um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (CPT-nefndin) var birt opinber- lega í gær. Byggir skýrslan á úttekt nefndarinnar sem heimsótti Ísland í maí síðastliðnum en íslensk stjórn- völd fengu skýrsluna afhenta í nóv- ember. Unnið er að greinargerð stjórn- valda vegna málsins en hún þarf að liggja fyrir innan sex mánaða frá afhendingu skýrslunnar. Í júní fengu stjórnvöld senda yfirlýsingu nefndarinnar þar sem fram komu bráðabirgðaniðurstöður. Þar voru meðal annars gerðar alvarlegar athugasemdir við aðgang fanga að geðheilbrigðisþjónustu. „Það eru auðvitað einhver atriði sem við munum benda á í okkar umsögn sem við skilum núna eftir helgi. Almennt líst okkur ágætlega á þá vinnu sem hefur verið í gangi í dómsmálaráðuneytinu,“ segir Guð- mundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun. Sú vinna sem Guðmundur vísar til snýr meðal annars að aðgerða- áætlun um heilbrigðisþjónustu fanga sem fór í gang eftir að athuga- semdir CPT-nefndarinnar bárust í sumar. Samkvæmt áætluninni verður komið á fót sérhæfðu og þverfaglegu geðheilbrigðisteymi fyrir fanga. „Það er stórt skref og það er margt af þessu sem búið er að bæta nú þegar,“ segir Guðmundur Ingi. Í skýrslu CPT-nefndarinnar kemur fram að almennt sé aðbún- aður fanga og þeirra sem sæta gæsluvarðhaldi á Íslandi ásættan- legur. Á það jafnt við um aðstæður á lögreglustöðvum og fangelsum. Engar vísbendingar hafi fundist um slæma meðferð fanga af hendi starfsmanna fangelsa. Þó er bent á að of beldi milli fanga sé vandamál á Litla-Hrauni sem sé greinilega tengt fíkniefnum. Samkvæmt aðgerðaáætlun stjórn- valda verður gerð þarfagreining og aðgerðaáætlun til að sporna gegn dreifingu og neyslu vímugjafa á Litla-Hrauni. CPT-nefndin bendir einnig á að með breytingum á lögum um fullnustu refsinga hafi verið fellt út ákvæði sem tryggi að gerð verði einstaklingsbundin áætlun um meðferð og vistun fyrir alla fanga. Hvetur nefndin stjórnvöld til að breyta þessu. „Þetta er kannski það helsta sem við höfum út á að setja. Að okkar mati þarf að gera einstaklings- bundna meðferðar- og vistunar- áætlun fyrir hvern einstakling sem fer í fangelsi. Það segir sig sjálft að þegar einhver er kominn í fangelsi er eitthvað að,“ segir Guðmundur Ingi. Það þurfi að grafast fyrir um hvað sé að og hvernig eigi að vinna í því. Nú fari fólk í gegnum kerfið án þess að nokkuð sé unnið í þessu. „Það eru ekki gerðar svona áætl- anir nema fyrir lítinn hluta. Ég sá nú í einhverju svari frá ráðherranum um daginn að það séu gerðar með- ferðaráætlanir fyrir 70 prósent. Það er náttúrlega bara af og frá að það sé gert,“ segir Guðmundur Ingi. sighvatur@frettabladid.is Ánægður með viðbrögð stjórnvalda Formaður Afstöðu segist ánægður með þá vinnu sem stjórnvöld hafi farið í eftir athugasemdir nefndar um varnir gegn pyntingum. Skýrsla nefndarinnar var opinberuð í gær en stjórnvöld fengu hana afhenta í nóvember. Er nú unnið að greinargerð um stöðuna. Engar vísbendingar hafa fundist um slæma meðferð fanga af hendi starfsmanna fangelsa hér á landi. BANDARÍKIN Donald Trump Banda- ríkjaforseti skráði sig í sögubæk- urnar í gær þegar hann tók þátt í mótmælafundi gegn þungunar- rofi. „Við erum hér samankomin af einni einfaldri ástæðu, til að verja rétt hvers einasta barns til að fæðast og fá tækifæri til að uppfylla það hlutverk sem guð ætlaði þeim,“ sagði Trump í ávarpi sínu fyrir utan þinghúsið í Washington-borg. Á sama tíma inni í þinghúsinu fóru fram réttarhöld yfir Trump þar sem Demókratar sækja hart fram. Trump er ákærður fyrir að hafa sett eigin hag ofar hagsmunum þjóðar- innar og að hafa misbeitt valdi sínu. Mótmælendur í Washington voru hæstánægðir með að sjá Trump og samkvæmt CNN heyrðust margir kalla til hans hvatningarorðum. Mótmælin hafa verið haldin árlega síðan þungunarrof var lögleitt í Bandaríkjunum árið 1973. Trump er fyrsti forsetinn sem mætir en forverar hans í embætti, George W. Bush og Ronald Reagan, sendu kveðjur til mótmælendanna. – ab Fyrsti forsetinn sem mótmælir Þungunarrofi mótmælt í gær. Það segir sig sjálft að þegar einhver er kominn í fangelsi er eitthvað að. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu 2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.