Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 79
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og
samúð við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður,
sonar og afa,
Arnar Friðriks Clausen
Sérstakar þakkir færa aðstandendur
starfsfólki Mánateigs, hjúkrunarheimilis
Hrafnistu, fyrir góða umönnun.
Helga Theodórsdóttir
Þóra Björg Clausen Bjarnólfur Lárusson
Ragnar Örn Clausen Þórhildur Ásmundsdóttir
Þóra Hallgrímsson Björgólfur Guðmundsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
Þórunn Erna Þórðardóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
19. janúar. Útförin fer fram frá Neskirkju
fimmtudaginn 30. janúar kl. 15.00.
Þórhildur Andrésdóttir
Sigurlaug Andrésdóttir
Okkar ástkæra eiginkona,
móðir, tengdamóðir og amma,
Hafdís Halldórsdóttir
fv. skrifstofustjóri,
Smárarima 98, Reykjavík,
lést 20. janúar í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Eir. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 30. janúar kl. 13.00.
Páll Pálsson
Lóa Dögg Pálsdóttir Hallvarður Hans Gylfason
Inga Hlín Pálsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Helga Kristín Ágústsdóttir
Boðaþingi 24, Kópavogi,
lést 2. janúar sl. Útförin fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við
þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágúst Alfreðsson, Sigríður Ágústsdóttir
Ástkær dóttir okkar,
systir, mágkona og frænka,
Viktoría Hrönn Axelsdóttir
lést sunnudaginn 19. janúar.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju,
miðvikudaginn 29. janúar kl. 13.00.
Axel Jóhann Ágústsson Steinunn Karólína Arnórsdóttir
Lesley Patricia Dixon
Stella Rut Axelsdóttir Ívar Sæmundsson
Sandra Björg Axelsdóttir Björn Halldórsson
Ágúst Ingi Axelsson Halla Hrund Skúladóttir
Paul Lewis Trosh Hayley Dixon
Linzi Margaret Trosh Bjarki Þór Sigvarðsson
Axel Kristinn Axelsson Sólbjörg Guðrún Vilhelmsdóttir
og systkinabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu.
Sigríðar Jóhannesdóttur.
Jóhanna Björnsdóttir Óskar Bergsson
María Björnsdóttir Þór Bjarkar Lopez
Björn Leví Óskarsson
Sigurður Darri Óskarsson
Þóra Björk Þórsdóttir
Jóhann Bjarkar Þórsson
Elskulegur bróðir minn og vinur okkar,
Kristjón Guðmannsson
Kríulandi 7, Garði,
lést á heimili sínu föstudaginn
17. janúar.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju
miðvikudaginn 29. janúar kl. 15.00.
Þórður Guðmannsson
Guðmundur Jens Knútsson og Anna Marý Pétursdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Árný Freyja Alfreðsdóttir
frá Vesturhúsum,
Vestmannaeyjum,
lést á Ási mánudaginn 20. janúar.
Útförin fer fram frá Þorlákskirkju
miðvikudaginn 29. janúar kl. 14.00.
Hildur Arnardóttir Gilbert Khoo
Jón Alfreð Hreiðarsson
Andrea Hilmarsdóttir
Hólmfríður Garðarsdóttir
Magnús Garðarsson Beata Kilinska
barnabörn og barnabarnabörn.
Markmiðið er að setja fram kennsluefni út frá forsendum sem henta nemendum í nútímasamfélagi best, það er að segja
með stafrænum hætti og með myndefni
sem rímar við lesefnið, segir Sverrir
Árnason um nýjan vef sem hann hefur
gert um Brennu-Njálssögu. Slóðin á
síðuna er brennunjalssaga.is.
Sverrir segir það trú sína að þessi
nálgun við fornsögurnar sé framtíðin.
„Þegar kennari stendur frammi fyrir
því að nemendur eru að glíma við efni
sem þeir eiga erfitt með að meðtaka, þá
grípur hann til örþrifaráða,“ útskýrir
hann.
„Þetta byrjaði þannig að ég tók hluta
af Njálu fyrir í jólafríinu 2014 og teikn-
aði við hana um 70 myndir í teikni-
forriti. Það var eftirspurn eftir f leiri
myndum og ég bætti smátt og smátt
við, komst upp í 160. Samdi líka við Þór-
hildi Jónsdóttur, grafískan hönnuð, því
ég vildi að persónurnar hefðu karakter.
Hún teiknaði 150 myndir – nemendur
geta því valið hvort þeir lesa söguna með
myndum Þórhildar eða mínum.“
Sverrir kveðst líka byrjaður að fikta
aðeins við textann, ekki aðeins staf-
setninguna. „Það er næsta skref að fara
yfir textann og laga hann betur að okkar
máli. Þar sem stendur ek breyti ég því í ég
og þar sem stendur hvortki, breyti ég því
í hvorugt. En ég tek ekki alla fyrninguna
út.“ Hann kveðst hafa fengið góðar við-
tökur við vefnum, sem er að komast í
gagnið, en segir það taka tíma að kynna
hann. „Ég notaði drög að vefnum í Fram-
haldsskólanum í Mosfellsbæ síðasta vor.
Nú færði ég mig yfir í Kvennó í haust, þar
hefur þetta efni verið í notkun og ég veit
að Fjölbraut í Breiðholti er að kenna það.
Ég hef fengið góð orð frá kennurum víðar
sem hyggjast taka það upp næsta haust.“
Spurður hvort Njála sé skyldulesn-
ing í framhaldsskólum svarar Sverrir:
„Ekki endilega Njála. Það er ekki þann-
ig í framhaldsskólum að ákveðnir efnis-
þættir séu skylda en ég held að allir séu
með Íslendingasögu og Njála er vin-
sælust.“ Ég giska á að hann hafi þurft
að liggja talsvert yfir þessu verkefni og
hann viðurkennir það, auk þess sem það
hafi kostað hann talsverðar fjárhæðir.
„Ég fékk Þórdísi til að teikna, ég fékk
tölvunarfræðing til að hjálpa mér og
hönnuð til að hanna síðuna. Tók mér svo
50% frí frá kennslunni á síðustu vorönn
til að ljúka verkinu við vefinn svo það er
gríðarlega mikil vinna í baklandinu. En
ég hef ekki fengið neina styrki enn þá,
þótt ég hafi sótt um, og er búinn að setja
mig í talsverðar skuldir fyrir þetta. Þetta
er hugsjónaverk.“
gun@frettabladid.is
Þetta er hugsjónaverk
Sverrir Árnason framhaldsskólakennari hefur staðið fyrir því framtaki á eigin spýtur
að útbúa myndskreyttan fræðsluvef um Brennu-Njálssögu, ásamt orðskýringum.
1 Njála – í átta frásagnarhlutum.
2 Tvær gerðir mynda.
3 Nemendur geta keypt aðgang að
hljóðbók með sögunni á viðráðan-
legu verði.
4 Orðskýringar.
5 Nöfn helstu persóna í stærra letri
og í lit. Sumt í textanum í lit og/eða
feitletrað.
6 Ættartré á viðeigandi stöðum.
7 Verkefni og krossaspurningar.
Hlekkir á forsíðu
1 Kynning á skiptingu sögunnar auk
stuttra fræðigreina.
2 Hlekkir á staðarkort af Íslandi,
Norðurlöndunum og Bretlands-
eyjum.
3 Hópverkefni, bætt verður við jafnt
og þétt.
4 Gullkistan/ítarefni sem tengist
sögunni og þjóðveldistímanum.
Sverrir er íslenskukennari í Kvennaskólanum og hefur sett fram nýja nálgun á Njálu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mörður Gígja og Unnur dóttir hans sem var „væn kona og kurteis“.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0