Fréttablaðið - 25.01.2020, Síða 100
Lífið í
vikunni
19.01.20-
25.01.20
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
LO-FI HUGLJÓMUN
Valdís Thor, ljósmyndari og lista-
kona, opnaði sýningu á klippimynd-
um í 12 tónum. Innblásturinn fékk
hún frá Ömmu Lo-Fi en andspænis
einni mynda hennar fékk hún ein-
hvers konar hugljómun.
GUÐJÓN Á HÁLUM ÍS
Guðjón Jóns-
son er eini
íslenski
leikstjórinn
sem kemur
að sænsk/
íslensku
spennuþátt-
unum Thin Ice,
sem hefja göngu
sína á RÚV í febrúar. Hann fann fyrir
létti og söknuði við verklokin sem
hann upplifði á forsýningu fyrstu
þáttanna í Bíói Paradís.
SÁTTUR Í SUMARBÚSTAÐ
Ásgeir Trausti tekur forskot á
sæluna um mánaðamótin með tón-
leikum, í Háskólabíói, viku áður en
nýja platan hans kemur út. Platan,
sem hann samdi meðal annars inni-
lokaður í sumarbústað, heitir Sátt.
YRSA Á KAFI Í FRÖNSKUM
GLÆPUM
Frönsk kvik-
myndahátíð
er í fullum
gangi Bíói
Paradís og
á sunnu-
daginn ætlar
krimmadrottn-
ingin Yrsa Sigurðar-
dóttir að fjalla almennt um glæpa-
sögur í bókum og kvikmyndum
þegar þegar tvær sígildar franskar
glæpamyndir, L'assassin habite au
21 og Les Diaboliques, verða sýndar
á sérstöku glæpakvöldi.
Þráðlaus fjarstýring
með 2 minnisstillingum
Janúar
útsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Mögnuð tilboð
í fjórum búðum
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorg)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Aðeins 283.140 kr.
VERÐDÆMI: 2 x 90 x 200 cm stillanlegt C&J Silver rúm
með Nature’s Rest Luxury heilsudýnum: Fullt verð: 337.800 kr.
C&J SILVER stillanlegt rúm
C&J Silver er með sterkum stálbotni og kraftmiklum en hjóðlátum mótor.
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
af Rest Luxury dýnu og
15% af C&J Silver
botni
Rúminu fylgir þráðlaus fjarstýring með tvöföldu minni og ljósi.
Margir nota annað minnið fyrir svefn stillingu. Seinna minnið er svo
t.d. notað fyrir lestur eða sjónvarpsáhorf. Botn rúmsins dregst að
vegg þannig að þú ert í eðlilegri fjarlægð frá náttborði og lampa.
Sérstakur takki kemur rúminu í upphaflega stöðu.
PURE COMFORT
teygjulak
Mjúkt og gott teygjulak
fyrir allar dýnustærðir.
Langir bómullarþræðir
tryggja góða endingu. 95%
bómull, 5% lycra. Má þvo á 60°c og setja í þurrkara.
Stærð í cm Fullt verð Útsöluverð
90/100 x 200/220 x 35 3.490 kr. 1.396 kr.
120/140 x 200/220 x 35 3.990 kr 1.596 kr.
180 x 200/220 x 35 5.490 kr. 2.196 kr.
60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Almennur áhugi á pílu-kasti hefur aukist jafnt og þétt á Íslandi á liðnum árum og síðasti fjörkippurinn í sportinu er ekki síst
rakinn til þess að Stöð 2 Sport fór að
sýna frá heimsmeistarakeppninni
í greininni. Þar hefur Páll Sævar
Guðjónsson verið hittinn, hnytt-
inn og slegið svo hressilega í gegn
með lýsingum sínum að engan þarf
að undra að hann er nú þekktastur
sem Palli píla.
Palli þykir standa fyllilega undir
viðurnefninu þó
ekki væri nema
fyrir þátt sinn
í því að nöfnin
Michael van
G e r w e n ,
Peter Snake-
bite Wright og
Gerwyn Price
eru orðin sæmi-
lega þekkt hér
á landi ásamt
orðum á borð
v ið út skot ,
þrefaldur 20
og 180. Nú
ber hins vegar svo við að pílunafn-
bót Palla fylgir sú ábyrgðarstaða að
koma á laggirnar og halda utan um
Íslandsmeistarakeppni fyrirtækja
í pílu.
Sundurstungið píluspjald
„Við erum með alls konar spil
hérna hjá okkur, körfuboltavélar
og shuffle-borð,“ segir Elís Árnason,
eigandi Sport & Grill í Smáralind,
sem verður keppnisstaður og varn-
arþing firmakeppninnar. „Þegar við
sáum hvað margir voru byrjaðir að
biðja okkur að stilla á Stöð 2 þegar
keppnin var í gangi þá dreif ég mig
og fjárfesti í spjaldi og góðum pílum
sem hafa verið í stanslausri notkun
síðan,“ heldur Elís áfram að útskýra
tilurð Íslandsmeistarakeppni fyrir-
tækja í pílukasti.
„Meðeigandi minn er ansi klár í
að skipuleggja alls konar viðburði
og hann setti sig í samband við Palla
pílu og hann var klár í þetta með
okkur,“ segir Elís og Palli fer hvergi
leynt með hversu hress hann er með
stöðu mótstjóra sem grilluðu sport-
félagarnir skutluðu lóðbeint í fangið
á honum.
Pílur svífa í meðbyr
„Það er ekki hægt að segja annað
en að það er bullandi meðbyr með
pílunni þessa dagana,“ segir Páll
sem er við pílu kenndur og bætir við
að þótt mótastarf pílufélaganna sé
öflugt vanti einmitt keppni eins og
þessa, þar sem byrjendur og lengra
komnir geti keppt.
Fyrirkomulag Íslandsmeistara-
keppni fyrirtækja í pílukasti er
þannig að fjögur lið keppa í þremur
umferðum og kastað verður á mið-
vikudagskvöldum frá 29. janúar til
11. mars þegar úrslitin fara fram.
„Ég segi bara, allir með og nú fyll-
um við þessa keppni. Eitt af þessum
sextán liðum getur unnið hundrað
þúsund kall. Það er nú eitthvað
myndi ég segja,“ segir Palli píla víg-
reifur. benediktboas@frettabladid.is
Íslandsmóti skotið í
mark hjá Palla pílu
Páll Sævar Guðjónsson, Palli píla, á drjúgan þátt í því að áhugi
fólks á pílukasti teygir sig nú langt út fyrir rökkvuð skúmaskot
íslenskra ölstofa og axlar hiklaust ábyrgð á nýju móti í sportinu.
Stuðið er oft ótrúlegt á HM í pílukasti. Skráning á öllu minna mótið í Smáralind fer fram á pantanir@sportgrill.is.
ÞAÐ ER BULLANDI
MEÐBYR MEÐ PÍLUNNI
ÞESSA DAGANA, ÞAÐ ER EKKI
HÆGT AÐ SEGJA ANNAÐ.
Palli
Píla
2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð