Skessuhorn


Skessuhorn - 27.03.2019, Síða 27

Skessuhorn - 27.03.2019, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 27 Þessa dagana heyrum við hljóma úr ýmsum áttum gamalkunnug orð og orðasambönd sem jafnvel gleðja al- þingismenn íhaldsins svo að þeir halda að Kalda stríðið hafi verið sært upp frá dauðum. Orð eins og: arðrán, auðvald, kapítalistar, vor í verkó, óvinir alþýðunnar og fleira í þeim dúr. Þetta eru auðvitað allt gamlir kunningjar, ekki síst hjá mér sem alin er upp af verkalýðsleiðtogum sem í raun voru gamaldags kreppukomm- ar. Ég hef aftur og aftur á þeim 40 árum sem ég hef tekið þátt í starfi verkalýðshreyfingarinnar þurft að skóla sjálfa mig til. Þær vinnuað- ferðir sem dugðu þegar leiðtogarnir helltu niður mjólk, grýttu lögregl- una, eða jafnvel börðu lögreglu- menn í hausinn með hömrum í slagsmálum um málefnin, duga ekki til árangurs í dag. Mér var til dæm- is innrætt að hjá Verslunarmanna- félagi Reykjavíkur réði íhaldið og verslunarráðið, á Akureyri væru bara Framsóknarmenn sem væru leiðitamir Sambandinu, en það væri í lagi að vinna með Húsvíkingum því þar væru framsæknir foringj- ar, Gvendur Jaki hefði verið góður leikari og fleira í þeim dúr. Þetta er veganestið sem ég fékk í þeim verkalýðsháskóla sem ég stundaði nám við í gömlu kommahöllinni á Siglufirði. Síðan líða árin, samfélagið tekur breytingum, nýtt fólk kemur fram á sjónarsviðið og baráttuaðferðirnar sem dugðu vel á árunum fyrir stríð heyra nú sögunni til. Það er hollt að þekkja söguna og getað horft til baka og metið hvað af því sem mað- ur lærði af gömlu meisturunum er sígilt og hvað var beinlínis rangt, eða stenst ekki tímans tönn. Starf í forystu lítils stéttarfélags er oftast vinna 24 x 7 ekki 9-5 vinna og frí um helgar. Allan þann tíma sem ég hef starf- að fyrir verkalýðshreyfinguna hefur það verið ákveðið ströggl að fá fólk til starfa. Nákvæmlega þessa dagana er ég að leita að trúnaðarmönnum fyrir félagið mitt og gengur ekkert alltof vel. Það er ákveðinn þrösk- uldur sem þarf að toga fólk yfir, en oftast eru þeir einstaklingar sem koma til starfa á endanum mjög ánægðir, þegar þeir kynnast síðan starfinu. Ég hef líka kynnst einstak- lingum sem koma með látum og vilja endilega gerast trúnaðarmenn, því það þurfi sko að breyta og bæta ýmislegt. Visslulega þarf mörgu að breyta og margt að bæta, en það gerist sjaldnast með látum. Þeir sem halda að það sé nóg að arga og stappa niður fæti einu sinni, endast sjaldan lengi í þessum störfum, gera jafnvel meira ógang en gagn. Lífið er langhlaup Alþýðusamband Íslands, sem er samband landssambanda og félaga með beina aðild, fetar nú fyrstu árin á sínu öðru hundraði. Sigr- ar samstöðunnar hafa verið marg- ir og merkilegir. Þeir sem tilheyra 21. öldinni eru t.d. fræðslusjóðir al- menns verkafólks og Fræðslumið- stöð atvinnulífsins. Eins mætti nefna Virk starfsenduhæfingu og alla þá starfsemi sem þar fer fram. Nýjasta stórvirkið sem er í burðarliðnum er Bjarg íbúðafélag, þar sem unnið er með BSRB og er að danskri fyrir- mynd. Okkur verkamönnum þess- arar hreyfingar hættir stundum til að vera ekki nægilega meðvituð um hversu stór þau mál eru sem unnið er að hverju sinni, meðan við erum á kafi í vinnunni. Ef einhver vinur minn er enn að lesa, þá gæti verið að sá hinn sami spyrji sig: Hvert er konan að fara? Jú, ég hef áhyggjur af nýbreytni í þessari hreyfingu. Nýbreytni sem þó er gamalt vín á nýjum belgjum. Upp eru risnir nýir frelsarar, ein- staklingar sem telja sig geta frelsað verkafólk á Íslandi frá óvinum al- þýðunnar. Hvar eru svo þessir óvin- ir? Jú, þeir eru víst í miðstjórn ASÍ með forsetann í fararbroddi. Þeir eru víst líka í eftirlaunasjóðunum okkar, þar grasserar gróðahyggja og geymsluþrá, sjóðasöfnun sem er af hinu illa. Eins þarf að bjarga okk- ur frá verðtyggingunni, sem að mati frelsaranna er upphaf og endir alls óláns verkafólks, nærir verðbólguna og er orsök hárra vaxta. Þessa síð- ustu fullyrðingu get ég með engu móti skilið. Undirrituð hóf ung búskap og tók lán á árunum áður en verðtrygg- ingin var fundin upp. Þau lán báru 46% vexti og það margborgaði sig að taka þau, því verðbólgan var yfir 80%. Þessa tíma sakna ég þó ekki. Ég geri ekki ráð fyrir að í banka- viðskiptum nútímans verði lánað á neikvæðum vöxtum, en ég er víst hvorki byltingarsinni né frelsari og langt frá því að vera sérfræðingur í peningamálum. Hvers vegna óttast gömul kerling róttækar frelsishetjur? Hetjurnar hafa tamið sér að tala hátt og fara mikinn, tala illa um ákveðna leiðtoga og enginn spyr hvort eitthvað sé satt í því sem sagt er. Ný aðferð í fjölmiðlum: Skjóta, en spyrja ekki! Sá sem er skotinn kemur sjaldnast vörnum við. Lýðræðið er yndislegt, en þeg- ar lýðurinn, fólkið, félagsmenn- irnir taka ekki þátt, verða það örfá- ir af heildinni sem fara með völdin. Þá hefur lýðræðið snúist upp í and- hverfu sína. Vita t.d. margir hversu stór hluti íbúa BNA kusu Trump sem forseta? Hversu stór hluti í stærsta stéttarfélagi landsins hefur í raun kosið síðustu fjóra formenn? Hversu margir Reykvíkingar kusu flugvöllinn burt og hversu í raun það var lítið brot af þeim sem nota völlinn? Þetta eru bara þrjú dæmi af mörg- um þar sem meirihlutinn lætur mjög fámennan minnihluta ráða ferðinni og afleiðingarnar eru ófyrirséðar að ekki sé meira sagt. Það sem ég hef ekki síður áhyggjur af er að stundum er það svo að þeir sem telja sig vera róttæka eru það alls ekki, en tekst með hjálp samfélags- miðla og nettrölla að sannfæra aðra um að þeir séu best til þess fallnir að gera allt fyrir alla og það kosti ekki neitt. Það að „hinir“ séu ekki búnir að redda málunum sé bara af því að „hinir“ eru svo lélegir! Var ekki birt Þetta sem hér að ofan er ritað er ein af þessum greinum sem ég hef skrif- að en ekki birt. Var skrifað í Borgar- nesi 28.02.2018. Oft finnst mér gott að setja hugsanir mínar á blað, en ég hef enga sérstaka þörf fyrir að senda það allt frá mér. Það sem breytir því að ég ákvað að birta þetta er að nú er svo komið að hetjurnar eru komnar til valda og við hin hljótum að bíða spennt eftir betri tíð með blómum í haga. Hér á Vesturlandinu hafa hetjurn- ar smitað út frá sér og nú er kom- ið mótframboð til stjórnar Stéttar- félags Vesturlands. Eitthvað sem mér er sagt að hafi síðast gerst hjá Verkalýðsfélagi Borgnesinga árið 1964. Nú verða félagsmenn að gera það upp við sig hvort þeir eftirláta mjög litlum hluta félagsmanna að velja sér forystu og ekki síður hvort þeir velja þá, sem dást að stjórnar- háttum sem eiga rætur að rekja í úreltum slagorðum krepputímans, gulum vestum og ofbeldi að hætti Frakka. Þeir geta líka valið að treysta því að með þekkingu, þrautseigju og þrotlausri vinnu muni verkalýðs- hreyfingunni takast áfram að bæta kjör okkar allra. Hvort vilja félagsmenn aukinn kaupmátt og betri lífskjör í hægum skrefum - eða kollsteypur, með að- ferðafræði sem var stunduð fyrir 1990 áður en menn fundu upp þjóð- arsáttina? Signý Jóhannesdóttir. Höf. er formannsefni á A-lista trúnaðarráðs Stéttarfélags Vesturlands. Byltingin - étur hún ekki börnin sín? Frambjóðendur A listans til stjórnar Stéttarfélags Vesturlands. F.v. Signý Jóhannesdóttir, Baldur Jónsson og Jónína G. Heiðarsdóttir. Pennagrein Í fyrsta skipti frá stofnun Stéttar- félags Vesturlands geta allir félags- menn kosið í beinni kosningu, um tvo lista í næstkomandi stjórnar- kjöri sem fram fer dagana 1.-5. apríl. Mikilvægt er að allir félagsmenn nýti sér þetta tækifæri og hafi bein áhrif á framtíð félagsins með því að taka þátt í kosningunni. Kosið er um óbreytt ástand… eða nútímavæðingu á starfsemi félagsins með áherslur á bætta þjónustu við alla félagsmenn, inn- lenda sem og erlenda. Framboð B-lista er tilkom- ið vegna undirliggjandi óánægju margra almennra félagsmanna sem og trúnaðarmanna innan félagsins. Okkur finnst nauðsynlegt að svara þeirri óánægju með því að gefa félögum kost á að kjósa á milli tveggja lista og leyfa þeim að úr- skurða um framtíð félagsins. B-listinn stendur fyrir; betri þjónustu, breyttum vinnubrögð- um sem og bættum samskiptum. Með því að kjósa B-listann tryggir þú eðlilega endurnýjun í stjórn félagsins, þú velur ein- staklinga sem vilja hugsa um þína hagsmuni og eru tilbúnir að berj- ast fyrir þig og þínum réttindum. Eiríkur Þór Theodórsson Höf. er frambjóðandi B-listans til formanns Stéttarfélags Vesturlands Taktu afstöðu Pennagrein Pennagrein Laugardaginn 30. mars næstkom- andi verður hinn árlegi og alþjóð- legi umhverfisviðburður Earth Hour, eða Jarðarstund, haldinn í 12. skipti þar sem milljónir jarðar- búa koma saman til þess að vekja athygli á loftslagsbreytingum. Að því tilefni munu sveitarfélögin á Snæfellsnesi, í samstarfi við RA- RIK, taka þátt með því að slökkva á götuljósum klukkan 20:30-21:30 sem og ljós á stofnunum sínum. Þetta er í þriðja sinn sem sveitar- félögin taka þátt og hefur viðburð- urinn vakið lukku meðal íbúa og gesta. Einnig munu nokkrir veit- inga- og samkomustaðir á Snæ- fellsnesi bjóða upp á myrkvaða stemningu í tilefni Jarðarstundar sem tilvalið væri að nýta sér. Jarðarstund gefur okkur tæki- færi til að njóta samverustundar með fólkinu í kringum okkur sem og að huga að loftslagsbreytingum af mannavöldum. Geymum venjur nútímans – leggjum snjallsímann frá okkur, slökkvum á sjónvarp- inu og á ljósum, jafnvel þvotta- vélinni, og leggjum áherslu á það sem færir okkur hamingju og heil- brigt líf. Heilbrigðir og hamingju- samir íbúar eru mikilvæg auðlind fyrir sjálfbært samfélag. Ein jarð- arstund er stuttur tími, en þann tíma skulum við gefa okkur til að vera jarðbundin og njóta þess sem við höfum. Guðrún Magnea Magnúsdóttir. Höf. er verkefnastjóri umhverfis- vottunar Snæfellsness Verjum einni jarðarstund

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.