Skessuhorn - 27.03.2019, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 27
Þessa dagana heyrum við hljóma úr
ýmsum áttum gamalkunnug orð og
orðasambönd sem jafnvel gleðja al-
þingismenn íhaldsins svo að þeir
halda að Kalda stríðið hafi verið
sært upp frá dauðum. Orð eins og:
arðrán, auðvald, kapítalistar, vor í
verkó, óvinir alþýðunnar og fleira í
þeim dúr.
Þetta eru auðvitað allt gamlir
kunningjar, ekki síst hjá mér sem alin
er upp af verkalýðsleiðtogum sem í
raun voru gamaldags kreppukomm-
ar. Ég hef aftur og aftur á þeim 40
árum sem ég hef tekið þátt í starfi
verkalýðshreyfingarinnar þurft að
skóla sjálfa mig til. Þær vinnuað-
ferðir sem dugðu þegar leiðtogarnir
helltu niður mjólk, grýttu lögregl-
una, eða jafnvel börðu lögreglu-
menn í hausinn með hömrum í
slagsmálum um málefnin, duga ekki
til árangurs í dag. Mér var til dæm-
is innrætt að hjá Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur réði íhaldið og
verslunarráðið, á Akureyri væru
bara Framsóknarmenn sem væru
leiðitamir Sambandinu, en það væri
í lagi að vinna með Húsvíkingum
því þar væru framsæknir foringj-
ar, Gvendur Jaki hefði verið góður
leikari og fleira í þeim dúr. Þetta
er veganestið sem ég fékk í þeim
verkalýðsháskóla sem ég stundaði
nám við í gömlu kommahöllinni á
Siglufirði.
Síðan líða árin, samfélagið tekur
breytingum, nýtt fólk kemur fram á
sjónarsviðið og baráttuaðferðirnar
sem dugðu vel á árunum fyrir stríð
heyra nú sögunni til. Það er hollt
að þekkja söguna og getað horft til
baka og metið hvað af því sem mað-
ur lærði af gömlu meisturunum er
sígilt og hvað var beinlínis rangt,
eða stenst ekki tímans tönn.
Starf í forystu lítils stéttarfélags er
oftast vinna 24 x 7 ekki 9-5 vinna og
frí um helgar.
Allan þann tíma sem ég hef starf-
að fyrir verkalýðshreyfinguna hefur
það verið ákveðið ströggl að fá fólk
til starfa. Nákvæmlega þessa dagana
er ég að leita að trúnaðarmönnum
fyrir félagið mitt og gengur ekkert
alltof vel. Það er ákveðinn þrösk-
uldur sem þarf að toga fólk yfir, en
oftast eru þeir einstaklingar sem
koma til starfa á endanum mjög
ánægðir, þegar þeir kynnast síðan
starfinu. Ég hef líka kynnst einstak-
lingum sem koma með látum og
vilja endilega gerast trúnaðarmenn,
því það þurfi sko að breyta og bæta
ýmislegt. Visslulega þarf mörgu að
breyta og margt að bæta, en það
gerist sjaldnast með látum. Þeir
sem halda að það sé nóg að arga og
stappa niður fæti einu sinni, endast
sjaldan lengi í þessum störfum, gera
jafnvel meira ógang en gagn.
Lífið er langhlaup
Alþýðusamband Íslands, sem er
samband landssambanda og félaga
með beina aðild, fetar nú fyrstu
árin á sínu öðru hundraði. Sigr-
ar samstöðunnar hafa verið marg-
ir og merkilegir. Þeir sem tilheyra
21. öldinni eru t.d. fræðslusjóðir al-
menns verkafólks og Fræðslumið-
stöð atvinnulífsins. Eins mætti nefna
Virk starfsenduhæfingu og alla þá
starfsemi sem þar fer fram. Nýjasta
stórvirkið sem er í burðarliðnum er
Bjarg íbúðafélag, þar sem unnið er
með BSRB og er að danskri fyrir-
mynd. Okkur verkamönnum þess-
arar hreyfingar hættir stundum til
að vera ekki nægilega meðvituð um
hversu stór þau mál eru sem unnið
er að hverju sinni, meðan við erum
á kafi í vinnunni.
Ef einhver vinur minn er enn að
lesa, þá gæti verið að sá hinn sami
spyrji sig: Hvert er konan að fara?
Jú, ég hef áhyggjur af nýbreytni í
þessari hreyfingu. Nýbreytni sem
þó er gamalt vín á nýjum belgjum.
Upp eru risnir nýir frelsarar, ein-
staklingar sem telja sig geta frelsað
verkafólk á Íslandi frá óvinum al-
þýðunnar. Hvar eru svo þessir óvin-
ir? Jú, þeir eru víst í miðstjórn ASÍ
með forsetann í fararbroddi. Þeir
eru víst líka í eftirlaunasjóðunum
okkar, þar grasserar gróðahyggja og
geymsluþrá, sjóðasöfnun sem er af
hinu illa. Eins þarf að bjarga okk-
ur frá verðtyggingunni, sem að mati
frelsaranna er upphaf og endir alls
óláns verkafólks, nærir verðbólguna
og er orsök hárra vaxta. Þessa síð-
ustu fullyrðingu get ég með engu
móti skilið.
Undirrituð hóf ung búskap og tók
lán á árunum áður en verðtrygg-
ingin var fundin upp. Þau lán báru
46% vexti og það margborgaði sig
að taka þau, því verðbólgan var yfir
80%. Þessa tíma sakna ég þó ekki.
Ég geri ekki ráð fyrir að í banka-
viðskiptum nútímans verði lánað á
neikvæðum vöxtum, en ég er víst
hvorki byltingarsinni né frelsari og
langt frá því að vera sérfræðingur í
peningamálum.
Hvers vegna óttast gömul kerling
róttækar frelsishetjur?
Hetjurnar hafa tamið sér að tala
hátt og fara mikinn, tala illa um
ákveðna leiðtoga og enginn spyr
hvort eitthvað sé satt í því sem sagt
er. Ný aðferð í fjölmiðlum: Skjóta,
en spyrja ekki! Sá sem er skotinn
kemur sjaldnast vörnum við.
Lýðræðið er yndislegt, en þeg-
ar lýðurinn, fólkið, félagsmenn-
irnir taka ekki þátt, verða það örfá-
ir af heildinni sem fara með völdin.
Þá hefur lýðræðið snúist upp í and-
hverfu sína. Vita t.d. margir hversu
stór hluti íbúa BNA kusu Trump
sem forseta? Hversu stór hluti í
stærsta stéttarfélagi landsins hefur
í raun kosið síðustu fjóra formenn?
Hversu margir Reykvíkingar kusu
flugvöllinn burt og hversu í raun
það var lítið brot af þeim sem nota
völlinn?
Þetta eru bara þrjú dæmi af mörg-
um þar sem meirihlutinn lætur mjög
fámennan minnihluta ráða ferðinni
og afleiðingarnar eru ófyrirséðar að
ekki sé meira sagt.
Það sem ég hef ekki síður áhyggjur
af er að stundum er það svo að þeir
sem telja sig vera róttæka eru það alls
ekki, en tekst með hjálp samfélags-
miðla og nettrölla að sannfæra aðra
um að þeir séu best til þess fallnir að
gera allt fyrir alla og það kosti ekki
neitt. Það að „hinir“ séu ekki búnir
að redda málunum sé bara af því að
„hinir“ eru svo lélegir!
Var ekki birt
Þetta sem hér að ofan er ritað er ein
af þessum greinum sem ég hef skrif-
að en ekki birt. Var skrifað í Borgar-
nesi 28.02.2018. Oft finnst mér gott
að setja hugsanir mínar á blað, en ég
hef enga sérstaka þörf fyrir að senda
það allt frá mér. Það sem breytir því
að ég ákvað að birta þetta er að nú er
svo komið að hetjurnar eru komnar
til valda og við hin hljótum að bíða
spennt eftir betri tíð með blómum
í haga.
Hér á Vesturlandinu hafa hetjurn-
ar smitað út frá sér og nú er kom-
ið mótframboð til stjórnar Stéttar-
félags Vesturlands. Eitthvað sem
mér er sagt að hafi síðast gerst hjá
Verkalýðsfélagi Borgnesinga árið
1964. Nú verða félagsmenn að gera
það upp við sig hvort þeir eftirláta
mjög litlum hluta félagsmanna að
velja sér forystu og ekki síður hvort
þeir velja þá, sem dást að stjórnar-
háttum sem eiga rætur að rekja í
úreltum slagorðum krepputímans,
gulum vestum og ofbeldi að hætti
Frakka.
Þeir geta líka valið að treysta því
að með þekkingu, þrautseigju og
þrotlausri vinnu muni verkalýðs-
hreyfingunni takast áfram að bæta
kjör okkar allra.
Hvort vilja félagsmenn aukinn
kaupmátt og betri lífskjör í hægum
skrefum - eða kollsteypur, með að-
ferðafræði sem var stunduð fyrir
1990 áður en menn fundu upp þjóð-
arsáttina?
Signý Jóhannesdóttir.
Höf. er formannsefni á
A-lista trúnaðarráðs Stéttarfélags
Vesturlands.
Byltingin - étur hún ekki börnin sín?
Frambjóðendur A listans til stjórnar Stéttarfélags Vesturlands. F.v. Signý Jóhannesdóttir, Baldur Jónsson og Jónína G.
Heiðarsdóttir.
Pennagrein
Í fyrsta skipti frá stofnun Stéttar-
félags Vesturlands geta allir félags-
menn kosið í beinni kosningu, um
tvo lista í næstkomandi stjórnar-
kjöri sem fram fer dagana 1.-5.
apríl.
Mikilvægt er að allir félagsmenn
nýti sér þetta tækifæri og hafi bein
áhrif á framtíð félagsins með því að
taka þátt í kosningunni.
Kosið er um óbreytt ástand…
eða nútímavæðingu á starfsemi
félagsins með áherslur á bætta
þjónustu við alla félagsmenn, inn-
lenda sem og erlenda.
Framboð B-lista er tilkom-
ið vegna undirliggjandi óánægju
margra almennra félagsmanna sem
og trúnaðarmanna innan félagsins.
Okkur finnst nauðsynlegt að
svara þeirri óánægju með því að
gefa félögum kost á að kjósa á milli
tveggja lista og leyfa þeim að úr-
skurða um framtíð félagsins.
B-listinn stendur fyrir; betri
þjónustu, breyttum vinnubrögð-
um sem og bættum samskiptum.
Með því að kjósa B-listann
tryggir þú eðlilega endurnýjun
í stjórn félagsins, þú velur ein-
staklinga sem vilja hugsa um þína
hagsmuni og eru tilbúnir að berj-
ast fyrir þig og þínum réttindum.
Eiríkur Þór Theodórsson
Höf. er frambjóðandi B-listans til
formanns Stéttarfélags Vesturlands
Taktu afstöðu
Pennagrein Pennagrein
Laugardaginn 30. mars næstkom-
andi verður hinn árlegi og alþjóð-
legi umhverfisviðburður Earth
Hour, eða Jarðarstund, haldinn í
12. skipti þar sem milljónir jarðar-
búa koma saman til þess að vekja
athygli á loftslagsbreytingum. Að
því tilefni munu sveitarfélögin á
Snæfellsnesi, í samstarfi við RA-
RIK, taka þátt með því að slökkva
á götuljósum klukkan 20:30-21:30
sem og ljós á stofnunum sínum.
Þetta er í þriðja sinn sem sveitar-
félögin taka þátt og hefur viðburð-
urinn vakið lukku meðal íbúa og
gesta. Einnig munu nokkrir veit-
inga- og samkomustaðir á Snæ-
fellsnesi bjóða upp á myrkvaða
stemningu í tilefni Jarðarstundar
sem tilvalið væri að nýta sér.
Jarðarstund gefur okkur tæki-
færi til að njóta samverustundar
með fólkinu í kringum okkur sem
og að huga að loftslagsbreytingum
af mannavöldum. Geymum venjur
nútímans – leggjum snjallsímann
frá okkur, slökkvum á sjónvarp-
inu og á ljósum, jafnvel þvotta-
vélinni, og leggjum áherslu á það
sem færir okkur hamingju og heil-
brigt líf. Heilbrigðir og hamingju-
samir íbúar eru mikilvæg auðlind
fyrir sjálfbært samfélag. Ein jarð-
arstund er stuttur tími, en þann
tíma skulum við gefa okkur til að
vera jarðbundin og njóta þess sem
við höfum.
Guðrún Magnea Magnúsdóttir.
Höf. er verkefnastjóri umhverfis-
vottunar Snæfellsness
Verjum einni jarðarstund