Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 34
514 LÆKNAblaðið 2018/104
Fjöldi innlendra lækna hélt fyrirlestra eða stýrði pallborðsumræðum
á alþjóðlegri ráðstefnu um læknisfræðilega siðfræði sem haldin
var dagana 2.-4. október síðastliðinn. Læknafélagið stóð fyrir ráð-
stefnunni samhliða aðalfundi Alþjóðalæknafélagsins, WMA, í Hörpu.
„Svið læknisfræðinnar er stórt og flók
ið. Það vekur áleitnar spurningar um líf
og dauða og það fjallar um margvíslega
hugsun og viðkvæm málefni í samfélaginu
okkar,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heil
brigðisráðherra við setningu ráðstefnu
Alþjóðalæknafélagsins sem haldin var
dagana 2.4. október síðastliðinn í Hörpu.
Ráðstefnan var haldin samhliða aðalfundi
Alþjóðafélagsins.
Norðurljósasalurinn var þétt setinn
þegar ráðstefnan um læknisfræðilega
siðfræði var sett. Samtökin hafa árlega
hist á ráðstefnu allt frá 1946 og var hún
nú í fyrsta sinn á Íslandi, á 100 ára afmæli
Læknafélags Íslands. Félagið er meðal
stofnenda samtakanna og var Jón Snædal,
yfirlæknir öldrunarlækna á Landspítalan
um, forseti ráðstefnunnar. Fyrir rúmum
áratug gegndi hann stöðu forseta Alþjóða
félagsins.
Jón er ánægður með ráðstefnuna og
segir í fyrsta sinn sem svo stór ráðstefna
er samhliða aðalfundinum. „Algjör
frumraun,“ segir hann. „Alltaf hefur verið
einn dagur undir vísindahluta en við juk
um það í tveggja og hálfs dags ráðstefnu,
þar sem oftast nær voru tvær samhliða
málstofur og að hluta til þrjár,“ lýsir hann.
Uppröðunin hafi kallað á að læknafélög
tækju með sér fleiri fulltrúa en þá sem
sátu aðalfundinn.
„Þannig fengu fleiri tækifæri til að sjá
hvað alþjóðafélagið er að fást við og tala
um og samtökin sjálf fengu hugmyndir
frá öðrum en þeim sem venjulega koma.
Ein málstofa var til að mynda opinn
vinnufundur hjá nefnd sem fjallar um
erfðalækningar og erfðafræði, þar sem
margir komu og létu í ljós skoðanir sínar
sem nefndin vinnur áfram með. Svo sýnist
mér að á mörgum málstofum hafi komið
fram sjónarmið sem hafi áhrif á vinnu
samtakanna,“ segir Jón.
Hann var sérstaklega ánægður með
staðsetninguna. „Það er ekkert slor að geta
boðið upp á Hörpu og sýna að við höfum
á að skipa mönnum og konum sem hafa
margt frambærilegt fram að færa.“
Reynir Arngrímsson formaður Lækna
félagsins setti ráðstefnuna. „Þáttur ís
lenskra vísindamanna vakti mikla athygli.
Það er hlustað á fulltrúa Læknafélags Ís
lands inni í alþjóðafélögunum rétt eins og
innan fastanefndar lækna hjá Evrópusam
bandinu. Það kom berlega í ljós á þessari
ráðstefnu.“
Svandís sagði ráðstefnur sem þessa gefa
okkur tækifæri til að læra hvert af öðru;
„Við náum að tengjast og dýpka skilning
okkar á siðferðilegum málum sem svo
vonandi mun verða hluti af framþróun
fræðanna, sem við erum öll þakklát fyrir.”
Líf og dauði á læknaráðstefnu í Hörpu
Alþjóðafélag lækna fundaði í fyrsta sinn á Íslandi
Næsti fundur WMA verður í
haldinn í Tíblísi í október
á næsta ári.
Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra talaði á ráð-
stefnu Alþjóðalækna félagsins.
Mynd/gag
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir