Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 32
512 LÆKNAblaðið 2018/104
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Nýr forseti Alþjóðalæknafélagsins, Leonid
Eidelman, vonast til þess að þjóðum innan
vébanda þess fjölgi á næstu misserum.
Hann vill sjá araba og múslíma verða
meira áberandi innan félagsins. Eidelman
er þriðji Ísraelinn sem stýrir félaginu og
tók við stjórnartaumunum á aðalfundi
þess sem haldinn var í Hörpu. Skortur á
læknum og kulnum ráða ríkjum þetta ár
hans í embætti.
„Gullfallegt land. Ég var hér á ferðalagi
fyrir tveimur árum og naut þess virkilega
vel,“ segir Leonid Eidelman sem leiðir
Alþjóðalæknafélagið, World Medical
Association, WMA, næsta árið. „Ég hef
lítið annað séð en Hörpu í þessari ferð en
í þeirri síðustu fórum við fjölskyldan víða
um og fengum góða leiðsögn alvöru vík
ings. Hann var umhverfissinnaður og fékk
mig til að dást að landi og þjóð. Ég dáist
að því hvernig svona fámenn þjóð getur
haldið uppi nútímasamfélagi – með öllu
sem því fylgir og náð árangri.“
Eidelman settist niður með Læknablað-
inu milli fundarseta í Hörpu. Úti rigndi en
sólin skein þó í gegnum regnið þegar við
tylltum okkur niður úr augsýn annarra
ráðstefnugesta á Smurstöðinni á fyrstu
hæð glæsilega tónleikahússins. Eidelman
segir einnig magnað að finna kraftinn í
Læknafélagi Íslands.
„Það heldur úti fagtímariti á íslenskri
tungu. Þótt við höfum haft læknatímarit
á hebresku í rúm 90 ár er stöðug pressa,
og var á mér, að gefa ekki út tímarit sem
næði ekki til stærri hóps. Við höfum jú
ekki milljónir lækna í Ísrael og afar erfitt
að halda fast í þjóðleg gildi og þýðingu
hugtaka gegn efnahagslegum þrýstingi.
En hér á Íslandi ætti verkið að vera enn
erfiðara, enda íslenskir læknar rétt um
1000. Það er ekki annað hægt en að dást
að þessari elju.“ Samkvæmt Wikipedia eru
um 35.000 læknar í Ísrael.
Til Ísraels á níunda áratugnum
Eidelman flutti á fertugsaldri til landsins
helga. „Þegar ég flutti frá Eistlandi árið
1987 átti ég ekki von á því að svo miklar
breytingar væru þar í vændum. Það var
stutt í sögulega tíma þegar ég flutti en ég
sá þá ekki fyrir,“ segir hann. „Þegar ég
fór var ég svo viss um að Sovétríkin í öllu
sínu veldi yrðu eilíf. Ég var ekki mikill
spámaður,“ segir hann og hlær.
Fyrirkomulagið hjá Alþjóðalækna
félaginu er að menn gegna fyrst ársstöðu
sem viðtakandi forseti (President-Elect)
og verja svo ári sem fráfarandi forseti
(Immediate Past President) eftir að forseta
árinu er lokið. Því er um þriggja ára setu
að ræða sem leiðtogi innan félagsins.
Eidelman segir að 140 félög séu innan vé
banda Alþjóðalæknafélagsins.
„Það eru um 10 milljónir lækna um
allan heim í félaginu. Við erum talsmenn
þessara lækna og viljum að þeir viti
að við stöndum með þeim sem starfa í
samræmi við gott siðgæði. Við höfum
ákveðið að gefa fleiri þjóðum tækifæri til
þess að ganga til liðs við félagið. Ég vona
að araba og múslímaþjóðir – lönd við
Miðjarðarhafið og MiðAusturlönd – sem
standa utan félagsins, gangi í það,“ segir
hann.
Eidelman er lærður svæfinga og bráða
læknir og kenndi meðal annars á árum
áður í læknisfræði við hebreska háskólann
Hadassah Medical School í Jerúsalem.
Hann var yfirmaður svæfingadeildarinnar
í Rabin Medical CenterBeilinson Campus
í Petah Tikva þar í landi þegar hann var
kosinn í fyrra og hefur verið formaður
ísraelska læknafélagsins.
Kulnun ógni læknum
Eidelman vill meðal annars sem forseti
fara ofan í kjölinn á framtíðarhlutverki
lækna í samfélaginu. „Mun það breytast
og þá hvernig? Ég trúi því að með því að
kafa ofan í þetta mál getum við komið í
veg fyrir neikvæða þróun, sérstaklega ef
við vinnum að því að forða læknum frá
kulnun,“ segir hann.
„Margar rannsóknir sýna að allt að
helmingur lækna upplifir skerta starfs
orku og við vitum að læknar sem þjást af
kulnum veita ekki jafn góða læknisþjón
ustu. Við ættum því að reyna að gefa þeim
áþreifanlegar leiðbeiningar um hvernig
þeir forðast hana; og að skaðast á líkama
og sál,“ segir hann.
„Kulnun er heimsfaraldur
í nútímasamfélögum“
Þetta segir Leonid Eidelman, nýr forseti Alþjóðalæknafélagsins. Hann
tók við keflinu í Hörpu á aðalfundi félagsins sem haldinn var í fyrsta sinn
hér á landi
„Margir læknar fara snemma
á eftirlaun. Reyndustu
læknarnir hætta störfum því
þeir hafa ekki kraft til að halda
áfram; hafa misst þrautseigj-
una. Kulnun er heimsfaraldur í
nútímasamfélögum.“