Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2018/104 527
Staða læknis við
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands
í Borgarnesi
Á Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi fer fram fjölbreytt starfsemi
en auk almennrar heilsugæsluþjónustu eins og móttöku, ung-
barnaverndar, skólaheilsugæslu og mæðraverndar er þar teym-
isvinna í kring um vaktþjónustu að deginum, sykursýkismóttöku
og lífsstílsmóttöku. Upptökusvæði stöðvarinnar er víðfeðmt og
nær yfir 5500 ferkílómetra svæði. Þar eru u.þ.b 4000 íbúar auk
tveggja háskóla með nemendagörðum og ríflega 2000 sumar-
bústaða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika.
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Hæfnikröfur
Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði og sérfræðiviðurkenning í
heimilislækningum er æskileg. Góðrar íslenskukunnáttu er
krafist.
Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem
ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efna-
hagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Starfshlutfall er 100% en hægt að semja um annað, sem og
vaktbyrði.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt
skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun,
læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu
afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist
á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn
sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til yfirlæknis
heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Borgarnes er góður staður til að búa á, stutt í mikla náttúrufeg-
urð, mannlíf gott og starfsandi á stöðinni góður. Húsnæði í boði
á staðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 15.11.2018
Nánari upplýsingar veita
Linda Kristjánsdóttir - linda.kristjansdottir@hve.is - 432-1430
Þórir Bergmundsson - thorir.bergmundsson@hve.is - 432-1000