Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 20
500 LÆKNAblaðið 2018/104
Sjúklingurinn hafði fundið fyrir vægum verkjum í æxlinu
sjálfu en vegna vaxandi stærðar og legu æxlisins var aðalvandinn
vaxandi hreyfiskerðing við allar almennar athafnir daglegs lífs og
sérstaklega við göngu, sem ýtti undir enn frekari kyrrsetu.
Við uppvinnslu var hvorki mögulegt að fá tölvusneiðmynd
né segulómskoðun af sjúklingi vegna ofþyngdar hennar. Því var
fengin ómskoðun sem sýndi stórt þétt yfirborðslægt og fituríkt
æxli framan til neðarlega á kvið sem var aðskilið frá kviðveggnum
og virtist vera vel afmarkað. Flæðimæling (doppler) sýndi einung
is minniháttar blóðflæði og því ekki sterkur grunur um æðamis
smíð. Útlit benti fyrst og fremst til fituæxlis.
Eftir að sjúklingurinn hafði lokið blóðþynningarmeðferð vegna
blóðsegareks í lungum var hún tekin til aðgerðar 9 mánuðum síð
ar. Undirbúningur fyrir aðgerð var mikill og unninn í samvinnu
við hjarta og lungnalækna. Einnig var fengið álit og meðferð
arráðleggingar húðlækna til að ná húðinni yfir fyrirhuguðu að
gerðarsvæði sem bestri til að stuðla að góðum gróanda í skurðsári.
Fyrirhugað var að framkvæma aðgerðina í mænudeyfingu
til að draga úr áhættu við svæfingu vegna ofþyngdar sjúklings,
en það gekk ekki af þeirri sömu orsök og því var sjúklingurinn
svæfður. Innleiðing svæfingar gekk vel.
Æxlið með yfirliggjandi húð var fjarlægt. Húðin var snyrt
þannig að þetta varð nær Ulaga skurður frá nárum og niður að
ytri skapabörmum (mynd 2). Húðkantar voru teknir saman með
stökum saumum á djúpið, húð lokað með heftum en með húð
saumum aðlægt ytri skapabörmum. Ekki var þörf fyrir sérhæfða
enduruppbyggingu á skurðsvæðinu, né á ytri skapabörmum.
Sjúklingurinn var inniliggjandi á lýtalækningadeild Landspítal
ans í þrjá daga eftir aðgerð. Bataferli gekk vel og var án fylgikvilla.
Æxlið sem var fjarlægt vó 4490 g og mældist 30 x 27 x 8,5cm. Við
smásjárskoðun sást eðlilega þroskaður fituvefur án illkynja vaxtar
(mynd 3 og 4).
Umræða
Fituæxli geta myndast hvar sem er í líkamanum þar sem fitufrum
ur eru til staðar. Rúmmál þeirra eykst með aukinni líkamsþyngd
en minnkar ekki við þyngdartap.1 Risafituæxli eru fremur sjald
S J Ú K R A T I L F E L L I
Mynd 2. Eftir aðgerð, U-laga skurður frá nárum niður að ytri skapabörmum.
Mynd 3. Þverskurður af vefjasýninu sem sýnir gulan fituvef með hvítum bandvefs-
strengjum.
Mynd 4. Smásjármynd sem sýnir eðlilega þroskaðan fituvef og bandvef (H&E, x40).