Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 43

Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2018/104 523 F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 2 6 . P I S T I L L Í þingsályktun um lyfjastefnu til ársins 2022 er meðal annars stefnt að því að minnka notkun ávanabindandi lyfja á Ís­ landi. Einnig hefur starfshópur á vegum velferðarráðuneytis skilað tillögum um hvernig minnka megi ávísun ávanabind­ andi lyfja.1 Ástæðan fyrir þessum aðgerð­ um er mikil notkun þessara lyfja hér á landi. Svíar koma næst á eftir Íslendingum í notkun tauga­ og geðlyfja meðal Norður­ landaþjóða en árið 2017 fengu 27,7% Svía ávísað lyfjunum en 37,8% Íslendinga.2,3 Hluti tauga­ og geðlyfja eru ávanabind­ andi en árið 2017 fengu 92.000 einstak­ lingar2 ávísað ávanabindandi lyfjum4 á Íslandi. Af þessum einstaklingum fengu 1736 ávísað sem nemur þreföldum dags­ skammti (DDD), eða meira á hverjum degi af einu eða fleirum ávanabindandi lyfjum. Flestir (83.755 einstaklingar) fengu hins vegar innan við einn skilgreindan skammt á dag að meðaltali allt árið, sjá töflu I (*án methýlfenídats). Embætti landlæknis gaf nýlega út leið­ beiningar um góðar ávísanavenjur lækna sem nálgast má á heimasíðu embættisins. Þar er meðal annars fjallað um að ákveðn­ ar samsetningar ávanabindandi lyfja beri að forðast.5 Í töflu II kemur fram að margir eru að fá nokkrum ávanabindandi lyfjum ávísað en 5804 fengu ávísað fjórum eða fleiri mismunandi ávanabindandi lyfjum árið 2017. Þol getur myndast mjög hratt fyrir róandi lyfjum og sterkum verkjalyfjum. Sennilega finna tugir þúsunda Íslendinga fyrir vægum fráhvörfum frá ávanabind­ andi lyfjum á hverju ári og samkvæmt ofannefndum tölum skipta þeir þúsundum sem hafa þróað með sér þol og myndu upplifa veruleg fráhvörf ef ávísun lyfjanna yrði hætt. Einhverjir þessara hafa myndað fíkn í lyfin. Af ofannefndum tölum og af bréfaskiptum Embættis landlæknis við lækna má ráða að fjölmargir læknar á Íslandi virðast stunda viðhaldsmeðferð á fíknisjúkdómi upp á sitt eindæmi. Þessir læknar virðast líta svo á að heillavænlegast sé fyrir sjúklinginn, með tilliti til öryggis, líðanar, lifnaðarhátta (til dæmis vændis) og afbrota, að þeir ávísi fíknilyfjunum fast á þessa einstaklinga. Í nýlegri skýrslu frá velferðarráðuneytinu er skýrt tekið fram að „Viðhaldsmeðferð er aðeins framkvæmd á vegum læknis meðferðarstofnunar eða heilbrigðisstofnunar sem býður upp á slíka þjónustu.“1 Þetta ákvæði er skiljanlegt í ljósi eftirfarandi: Það er mjög örlagarík ákvörðun að skilgreina ákveðinn einstak­ ling þannig að hann muni aldrei hætta neyslu ávanabindandi lyfja og að setja hann fast á ávanabindandi lyf það sem eftir er ævinnar, sú ákvörðun verður varla tekin af einyrkja. Flestar rannsóknir á viðhalds­ meðferð miðast við þá sem eru að nota heróín í æð og ekki liggur alltaf ljóst fyrir hvernig heimfæra skuli þá þekkingu upp á Ísland. Einyrki á stofu eða heilsugæslu á Íslandi getur ekki gefið lyfin eins þétt og þarf í viðhaldsmeðferð heldur fær sjúk­ lingurinn lyf til langs tíma í einu. Þess vegna ratar hluti þeirra ávanabindandi lyfja sem læknir ávísar „til viðhaldsmeð­ ferðar“ til annarra aðila sem eykur fíkni­ vandann í landinu, þar með talin dauðsföll. Ekki er heldur unnt fyrir heimilislækna eða stofulækna að fylgjast reglulega með því hvort önnur efni finnist í þvagi. Til þess að þróa með sér lyfjafíkn þarf einstaklingurinn bæði að hafa fólgna í sér tilhneiginguna til lyfjafíknar og að rekast á lyfin. Það liggur í hlutarins eðli að margir sem gætu hafa orðið háðir ávanabind­ andi lyfjum verða það ekki ef minna er af ávanabindandi lyfjum í umhverfi þeirra og minna um að læknar ávísi þannig lyfjum á þá. Það er vandamál á Íslandi að þegar einn læknir reynir að takmarka ávísun á ávana­ bindandi lyf getur sjúklingur hæglega leit­ að til annarra lækna. Það skal áréttað að hjá meirihluta lækna á Íslandi eru þessi mál í góðu lagi. Heimildir 1. stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=3d1a8517­5f­ 66­11e8­942c­005056bc530c 2. Lyfjagagnagrunnur landlæknis 3. socialstyrelsen.se/statistik 4. landlaeknir.is/servlet/file/store93/item35570/Listi%20 yfir%20ávanabindandi%20lyf.pdf 5. landlaeknir.is/um­embaettid/greinar/grein/item31883/ Leidbeiningar­um­goda­starfshaetti­laekna­vid­avisun­ lyfja Fíknivandi vegna ávanabind andi lyfja á Íslandi Andrés Magnússon fíknigeðlæknir, Jón Pétur Einarsson lyfjafræðingur, Ólafur B. Einarsson sérfræðingur Tafla II. Fjöldi einstaklinga sem leysir út mismunandi mörg ávanabindandi lyf. Fjöldi lyfja 1 2 3 4 5 6 eða fleiri 10 eða fleiri Ár Fjöldi einstaklinga 2009 56.859 18.218 6869 2756 1105 895 33 2013 60.357 19.298 7456 2822 1178 787 23 2017 66.616 22.203 8749 3448 1438 918 22 Tafla I. Fjöldi einstaklinga á ári á mismunandi skömmtum ávanabindandi lyfja. Skammtar (DDD) á dag Skammtar 0 til 1 1 til 2 2 til 3 3 til 4 4 til 5 5 til 6 6 til 7 7 til 8 8 til 9 9 til 10 10 eða meira Ár Fjöldi Einstaklinga samtals 2009 69892 7984 1987 774 373 222 126 92 56 27 108 81641 2013 72924 8567 2183 787 432 216 133 75 59 27 58 85461 2017 80074 8511 2258 831 418 203 129 57 33 26 39 92579

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.