Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 44
524 LÆKNAblaðið 2018/104
Athugasemdir við ritstjórnargrein
Magnúsar Gottfreðssonar í 10. tbl. 104 árg. Læknablaðsins 2018:
„Aldarafmæli spænsku veikinnar og viðbrögð við skæðum farsóttum á 21. öld“
Í ritstjórnargrein Magnúsar Gottfreðsson
ar í 10. tbl. 104. árgangs Læknablaðsins 2018
um spænsku veikina hér á landi er skil
merkilega sagt frá því hversu alvarlegur
faraldurinn var hér á landi á árinu 1918. Í
lok greinarinnar lætur Magnús hins vegar
að því liggja að viðbúnaður í dag hér á
landi gegn slíkum ógnum sé lítill sem
enginn og að það megi helst rekja til þess
að aðbúnaður/viðbúnaður á Landspítala
sé slæmur.
Rétt er að upplýsa lesendur Lækna-
blaðsins um að mikil vinna hefur verið
innt af hendi á undanförnum árum af
sóttvarnalækni og almannavarnadeild rík
islögreglustjóra í samvinnu við ýmsa aðila
í þjóðfélaginu við gerð viðbragðsáætlunar
gegn heimsfaraldri inflúensu. Slíkri áætl
un er ætlað að auka viðbragðsþol sam
félagsins sem mest þegar næsti faraldur
skellur á. Fjölmargir aðilar hafa komið að
áætluninni og var síðasta útgáfa gefin út á
árinu 2016.
Mikilvægt er að hafa í huga að við
brögð við alvarlegum farsóttum í fram
tíðinni er ekki bara hægt að dæma út frá
aðbúnaði á Landspítala heldur einnig
þeim viðbrögðum sem áætluð eru á öðr
um heilbrigðisstofnunum og í samfélaginu
öllu. Landspítali mun vissulega gegna
mikilvægu hlutverki þegar næsti heims
faraldur inflúensu ríður yfir og mikilvægt
að styrkja og bæta allan aðbúnað þar
sem mest en aðbúnaður og samfélagsleg
viðbrögð eru ekki síður mikilvæg. Í þessu
tilliti er einnig rétt að árétta að hér á landi
eru til birgðir af nauðsynlegum lyfjum
og vökva til þriggja til fjögurra mánaða,
veirulyf fyrir 40.000 manns, miklar birgðir
af hlífðarbúnaði og bóluefni hefur ver
ið tryggt fyrir að minnsta kosti 150.000
manns.
Það er því ekki hægt að taka undir
með Magnúsi að hér sé takmarkað birgða
hald af lífsnauðsynlegum lyfjum og að
Íslendingar séu illa búnir undir heimsfar
aldur inflúensu.
Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir
Sefitude — ný meðferð við kvíða og svefntruflunum
Sefitude er viðurkennt jurtalyf unnið úr rót
garðabrúðu. Styttir tímann til að sofna og
bætir gæði svefns.
Klínískar rannsóknir sýna sambærilega virkni
garðabrúðurótar og lágskammta oxazepam
en garðabrúðurót þolist mun betur.*
*Ziegler G. et al. (2002). Eur. J. Med. Res. 7(11), 480–6.
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki Sjá meira á florealis.is
Notkun Við vægum kvíða: fullorðnir, 1 tafla á dag allt að 3 á dag.
12–18 ára: 1 tafla á dag allt að 2 á dag.
Við svefntruflunum: fullorðnir og eldri en 12 ára: 1 tafla ½–1 klukkustund
fyrir svefn. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða
konum með börn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og
fylgiseðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.